Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Síða 132

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Síða 132
Tímarit Máls og menningar “Hljóðs bið eg allar kindir“. Samkvæmt orðum hans er þarna komin hin „nýja Völuspá“ sem birtist lesend- um í fyrsta skipti, því þessi texti „skipti sköpum varðandi heildartúlkun kvæðis- ins“: í þessum upphafsorðum Konungs- bókar sé völvan sem sé einungis að ávarpa mennina en ekki goðin, en svo túlkar útgefandi framhaldið á þann hátt, að mennirnir vilji að hún segi söguna í áheyrn Oðins. I samræmi við þetta skýrir hann síðan 28. vísu á þann hátt að völvan hafi áður aflað sér visku hjá Óðni en ekki öfugt: þekking hennar komi frá honum. En sitthvað virðist nú bogið við þessa kenningu. Ljóðlínan „Hljóðs bið eg“ er of stutt, og þótt Völuspá sé ekki að öllu leyti reglulegt kvæði, er ekki hægt að benda henni til stuðnings á neina aðra þríkvæða ljóðlínu (nema þá „á Gimlé“ í 62. vísu, sem þó hefur sennilega verið á eilítið eldra málsstigi „á Gimléi“). Það væri í meira lagi undarlegt að byrja svo voldugt kvæði sem Völuspá er á óreglu- legri ljóðlínu, þessi mikla áhersla sem þannig myndast á fornafninu „eg“ er harla óeðlileg, og stuðlasetningin „eg - allar“ er þess vegna heldur ekki sann- færandi. Hvað hrynjandi og stuðlasetn- ingu snertir fellur hins vegar allt í Ijúfa löð ef orðinu „helgar“ er bætt inn í, og eru þess vegna miklar líkur á því að Hauksbók geymi hér réttan texta. Er ekki meiri leiðrétting að taka „helgar" eftir henni heldur en eignarfallið „Heimdallar" („Heimdalar" kemur tvisvar fyrir í Konungsbók, og er því ekki hér bein pennaglöp). En fleira mætti nefna. Ef völvan ávarpar einungis mennina eru orðin „allar kindir" heldur óljós: þau segja meira en „megir Heimdallar" og eru því ekki tvítekning á hugsun þeirra orða, en hins vegar er ekki skýrt hvað við er átt. Það er líka óeðlilegt að mennirnir vilji að völvan segi sögu sína í áheyrn Óðins, en samt ávarpi hún þá eingöngu en ekki höfuðgoðið sjálft. Væri það ekki brot á siðareglum? Það bætir gráu ofan á svart að túlka 28. vísu, sem erfitt er að skilja öðru vísi en svo að þar sé Óðinn að leita frétta hjá völvunni, á þann hátt að völv- an hafi fengið visku sína hjá Óðni: hún á sem sé að þylja yfir honum það sem hann sjálfur hafði áður sagt henni! Til þess að eitthvert vit fáist í þetta þyrfti eiginlega að breyta nafni kvæðisins (sem stendur hvort sem er ekki í Konungs- bók né heldur Hauksbók heldur aðeins í Snorra-Eddu og útgefandi hefði því átt að sleppa ef hann hefði viljað vera í samræmi við sínar eigin kenningar) og kalla Völuspá „Munnlega prófið“. Það kemur fram í kvæðinu, að ræða völv- unnar er staðsett á vissu augnabliki heimssögunnar, og þá er Óðinn farinn að leita sér visku með ýmsu móti, m.a. hjá skyggnum og yfirnáttúrulegum ver- um. Sá skilningur eldri fræðimanna að völvan flytji spá sína að beiðni Óðins frammi fyrir goðum og mönnum er rökréttur og í góðu samræmi við text- ann í heild. Því verður ekki betur séð en útgefandi styðji sig hér við gallaðan texta eða hreina ritvillu eins handrits (gegn vitnisburði annars handrits) og búi til kenningu sem hvorki er haus né sporður á, og er það heldur rassbögu- legt að fara svona með upphaf kvæðis- ins og „umgerð" spárinnar. Þá mætti al- veg eins halda því fram, að upphafsorð- in „Hljóðs bið eg allar kindir" sýni að Völuspá sé hjarðljóð. Sú kenning útgefanda að menn eigi að taka kvæðið eins og það er og vera ekki með neinar vangaveltur um það sem 386
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.