Tímarit Máls og menningar - 01.06.1998, Blaðsíða 15
BRÉF TIL KRISTÍNAR GUÐMUNDSDÚTTUR
að í Utah þángaðtil 1890 að stjórnin tók til að útrýma því. Fólk lifði hér
flestalt í fátækt. Ólafur Eiríksson (Ólafssonar) kallaði sig Ólson. Hann hafði
í Danmörku lært til listamanns og málara. Hann átti ekkert erindi til Utah
því hér var ekkert verkefni handa manni á því sviði, svo hann lifði í fátækt
alla ævi hér. Sveinn Eiríksson (Ólafssonar) lærði í Danmörku að verða
málari, skreytari og bíldskurðarmaður. Árið 1885 snerist hann til trúar
jósepíta og fluttist til Independece, Missouri. Hann lifði í fátækt. 1910 var
hann skráður týndur. Við vitum ekki hvað hefur orðið af honum. Morm-
ónatrúboðar þeir sem sneru föður mínum, þeir nefndust Þórður Diðriksson
og Jón Eyvindsson. Þórður snaraði Perlunni Góðu úr ensku á íslensku (svo
hjá karli, en rángt; bók Þórðar er nær því að vera þýðíng og samantekt úr
mormónariti sem heitir The Voice of Warning. H.L.). Flestir íslendíngar þeir
er fluttu til Spánarforks voru ágætlega verki farnir: smiðir, maskínistar
(Machanists, stendur hjá karli, - hálfóskiljanlegt) úrsmiðir, læknar, skreyt-
arar, íjármenn, ræðumenn, bændur, kolamenn, og málmnemar, járnbraut-
arverkstjórar, húsagerðarmenn. Thurber Thorvaldsson 250 W. 4th North.
Provo. Utah. Sími númer: FR 3-72 46.“
Þessi ritgerð minnir ögn á stílinn á Íslendíngabók Ara fróða, segir amk.
hérumbil jafnfátt - og þó jafnmart.
Ég hef gleymt að borða kvöldmat og komið miðnætti, ég er þreyttur og
fer að sofa vertu blessuð og sæl
þinn
Halldór
Bréfið er birt með góðfúslegu leyfi Auðar Laxness og kann ég henni
hugheilar þakkir fyrir. Ennfremur þakka ég œttingjum Kristínar Guð-
mundsdóttur jyrir að hafa boðið það til birtingar í TMM. Um Kristínu
má lesa nánar í minningargrein Halldórs Kiljans Laxness um hana í 4.
hefti 1976.
Ritstj.
TMM 1998:2
13