Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1997, Blaðsíða 44
„Sjáið merkið, Kristur kemur, krossins tákn hann ber“
dagana 27.-30. september það ár.33 Einnig tók þátt í mótinu kristni-
boðinn Asbjörn Hoaas sem var hér á landi á vegum SÍK.
Eftir að Jónas sneri heim aftur að námi loknu sinnti hann um tíma
bankastörfum og var á ný kjörinn formaður KSF í október 1951. Gegndi
hann því starfi þar til hann fluttist burt úr Reykjavík og tók við embætti
sóknarprests í Vík í Mýrdal sumarið 1953 eftir að hafa fallið í prests-
kosningum um Háteigsprestakall haustið 1952.
Prestsþjónusta heima og heiman
Þann tíma sem Jónas þjónaði Víkurprestakalli (1953-1963), og árin
sem hann var prestur Islendinga í Kaupmannahöfn (1964-1970), voru
tengsl Jónasar við KFUM og systurfélög þess eðlilega í lágmarki. Nokkuð
reglulega var hann þó fenginn til að tala á fundum eða samkomum og
stöku greinar birtust eftir hann í blöðum félaganna. Þá var Jónas ætíð í
bréfasambandi við fólk úr félögunum og fylgdist þannig með gangi mála.
Sjálfur stóð Jónas fyrir barnasamkomum í skólanum í Vík og stofnaði
kristniboðsfélag í prestakallinu sem starfaði um nokkurt skeið. Átti félagið
meðal annars eitt sinn fulltrúa á kristniboðsþingi í Vatnaskógi og Jónas
átti áfram sæti í stjórn SIK til ársins 1966, þótt eðli máls samkvæmt
gæti hann ekki verið ýkja virkur þátttakandi í almennum stjórnar-
störfum. Þá má geta þess að Bjarni Eyjólfsson, formaður SÍK, kom eitt
sinn í heimsókn í Mýrdalinn til að kynna kristniboðið og tímaritið Bjarma.
Tengsl Jónasar við KSF voru sömuleiðis lítil á þessum árum en í lok
sjötta áratugarins og byrjun þess sjöunda fór mjög að draga úr þeirri
guðfræðilegu spennu sem verið hafði milli KSF og Bræðralags. Var það í
takt við almenna þróun í íslensku kirkjunni þar sem hefðbundnar
fylkingar gamal- og nýguðfræðinga tóku að riðlast í kjölfar þess að
prófessor Sigurbjörn Einarsson var kjörinn biskup árið 1959. Um svipað
leyti tók verulega að dofna yfir starfi KSF og Bræðralags.34 Lagðist
starfsemi Bræðralags reyndar með öllu niður árið 196535 en KSF lifði
OO
°° Sr. Christen Hallesby var sonur prófessors Ole Hallesby og hafði m.a. starfað við
biblíuskóla norska heimatrúboðsins. Sjá nánar Fundagerðabók KSF 1951-1957, þar
sem dagbók heimsóknarinnar er skráð og Kristilegt stúdentablað XVI. árg. Rvík 1.
des. 1951, ení blaðinu er m.a. grein eftir sr. Christen Hallesby og stuttlega sagt frá
heimsókn þeirra hjóna til íslands.
34 Allmargir félagsmenn Bræðralags sögðu sig t.d. úr félaginu árið 1959 í tengslum við
biskupskosningar það ár, þar sem þeim mislíkaði að vera með bréfi í nafni félagsins
hvattir til að kjósa sr. Einar Guðnason í Reykholti.
35 Með vissum rétti má segja að Félag guðfræðinema, sem stofnað var árið 1950, hafi
smám saman yfirtekið hlutverk Bræðralags að nokkru leyti því í raun varð Bræðralag
með tímanum nánast eingöngu félag presta og guðfræðinema en náði takmarkað til
annarra stúdenta. Um það leyti sem Bræðralag var að lognast út af stóð starf Félags
42