Skagfirðingabók - 01.01.1969, Blaðsíða 60
SKAGFIRBINGABÓK
Tungusveit, 8. Februarii þessa árs, viðvíkjandi þeim 11 vetra
gamla förupilti, Jóni Oddssyni, er á milli Breiðar og Goðdala
dauður fannst og frá heimili Ólafs Jónssonar gengið hafði. En
þar téður Ólafur hefur tildæmdan sjöttareið unnið, að hann hafi
hvorki skipað né skipa látið nefndum pilti burt af sínu heimili
Breið í Tungusveit í fyrra vetur á skírdag og af engum sínum
völdum ráðum eður ásetningi, vitund eður vilja hafi téður
ómagi líftjón fengið, þá virðist lögþingismönnum, að Ólafur ei
frekari útlátum mæta skuli en til X aura, og leggist þar til
spítelskra1 manna í sýslunni, sem ei annars hjá frændum laga-
framfæri eiga. Er þetta fyrir leitar forsómunina tilskikkað."
Málsskjöl frá þessum tíma munu ekki vera til, og þess vegna er
ekki hægt að vita, í hverju „leitar forsómun" Ólafs á Breið var
fólgin, né hitt, hvar förupilturinn fannst dauður. En ekki þykir mér
ólíklegt, að munnmælasagan fari rétt með það.
Þegar hin ritaða heimild er borin saman við munnmælasögur og
þjóðsögur, vakna ýmsar spurningar. Getur það verið, að förupiltur-
inn Jón Oddsson, þetta olnbogabarn 17. aldar, hafi gert álög á Breið,
þegar hann háði sitt dauðastríð? Er það tengt dauða Jóns, að villu-
gjarnt þótti á Geithúsmelum?
Spyr sá, sem ekki veit.
Skrifað í desember 1969.
1 þ. e. holdsveikra.
58