Skagfirðingabók - 01.01.1969, Blaðsíða 124
SMÁRÆÐI UM GISSUR JARL DAUÐAN
eftir ÖGMUND HELGASON
Gissur Þorvaldsson jarl bjó síðustu æviár sín á Reynistað
í Skagafirði og dó þar árið 1268 sem fornar heimildir greina.1 í
þeim er hvorki getið um legstað hans né umbúnað grafarinnar,
fremur en vant var um flesta aðra menn að fornu. Það var ekki
fyrr en árið 1654, að fram kemur örstutt frásögn um þau efni. í
bréfi, sem Björn Jónsson, fræðimaður á Skarðsá, ritaði nefnt ár og
í er ýmis fróðleikur, segir svo um dauða Gissurar2: „so bar til ad
á þessu missere fieck Gisser Jarl sótt og andadist á Stad med gódre
Idran og var grafinn þar i midiu kirkiugólfe so sem merke hafa
siest á þeim þremur koparnöglum er setter voru i gólffiölina yfer
hans höfde".
Hvað viðkemur legstað Gissurar, að hann sé grafinn undir gólfi
Reynistaðarkirkju, þá er vitneskja um það einnig í samtíningi, sem
eignaður er Birni á Skarðsá og nú er í Árnasafni.3 Var sú heimild
prentuð síðar, er út voru gefnir fornir annálar.4 Hins vegar virðist
það atriði, að naglar hafi verið settir í gólffjölina yfir höfði Giss-
urar, hvergi koma fram annars staðar en hér í umræddu bréfi og
hafa algjörlega fyrnzt þar til nú, að vakið er máls á því. En þegar að
1 Islandske Annaler indtil 1578. Udg. Gustav Storm. Chria 1888. Dauða
Gissurar, árið 1268, er getið nálega í öllum annálunum það ár. Biskupa
sögur III, bls. 5. Útg. Guðni Jónsson. Rvík 1948.
2 A.M. 216 c, 4to.
3 Sbr. formála að annálaútgáfu Gustavs Storm, bls. LII—LIII, en þar segir
m. a. um viðbætur í A.M. 421, 4to: „Blad 1—10 ttír vi saaledes antage for
en Afskrift af Björn Jonssons Compilation." Síðan er þessi samtíningur upp-
talinn og þar á meðal umrætt atriði.
4 íslenzkir Annálar, bls. 138. Hafniæ 1847.
122