Skagfirðingabók - 01.01.1969, Page 149
MINNZT NOKKURRA REYKSTRENDINGA
Þau hjón Þorleifur og Sigríður áttu sjö börn, og heyrði ég þau
öll nefnd:
1. Guðrún; giftist Ólafi Andréssyni; bjuggu á Meyjarlandi nokkur
ár, fóru svo þaðan vestur um haf 1888.
2. Kristín; giftist Bjarna Péturssyni; bjuggu á ýmsum kotum á
Reykjaströnd, fóru vestur um haf 1888.
3. Helga; giftist Birni Þorbergssyni; bjuggu á Fagranesi fá ár, fóru
vestur 1890.
4. Sigríður; giftist Þórarni Jónssyni, fóru þau og vestur um haf.
5. Pétur.
6. Jón.
7. Jóhann.
Þorleifur var hreppstjóri í Sauðárhreppi frá 1871—79. Sýslu-
nefndarmaður var hann frá 1874—1880.
Þegar kom fram um 1888, voru flest börn þeirra Reykjahjóna
farin í burtu og þau þá orðin ellilúin og ekki fær um erfiðisvinnu.
Sáu þau sér þá ekki fært að halda áfram búskap, seldu því bú sitt
og keyptu húskofa á Eyrinni norðan við Sauðárkrók og fluttu þang-
að. Stundaði Þorleifur þaðan sjó á smáfari. Þarna dvöldu þau tvö
eða þrjú ár, fóru síðan vestur um haf ásamt þeim síðustu af börn-
um sínum.1
Ég man eftir Þorleifi. Hann var mikill maður vexti, líklega um
sex fet, en ekki að sama skapi gildur, stórskorinn í andliti og frem-
ur ófríður, en hafði glaðlegt viðmót og hreinan og höfðinglegan
svip.
Þá er þar frá að segja, sem fyrr var frá horfið, að þau Ólafur og
Signý fluttu að Reykjum ásamt Þorvaldi syni sínum. Ekki hef ég
séð eða heyrt neitt um það, hvenær Ólafur dó. En Signý var á
Reykjum í skjóli Þorvaldar sonar síns, þar til Þorleifur hætti bú-
1 Þau hjón fluttust til Vesturheims árið 1891. Þar lézt Þorleifur árið 1916,
en Sigríður árið 1934.
147