Skagfirðingabók - 01.01.1969, Page 154
SKAGFIRBINGABÓK
spara. En öllum skepnum vildi hann láta líða vel, eftir því sem mögu-
legt var.
Kristín hét ekkja Ingimundardóttir. Hún bjó á Ingveldarstöðum
syðri. Hjá henni hafði alizt upp dótturdóttir hennar, er líka hét
Kristín. Hún var Magnúsdóttir.1 Þessarar stúlku fékk Þorvaldur og
giftust þau vorið 18872 og fengu þá hálft Hólkot til ábúðar það ár,
en vorið eftir fengu þau allt kotið og bjuggu þar síðan til dauðadags
1932 eða alls 45 ár.
Á þessum árum höfðu búið í Hólakoti þarna á ströndinni Sveinn
Gíslason og Kristín Jónsdóttir. Hún var dóttir Kristínar á Ingveldar-
stöðum, en móðir Kristínar konu Þorvaldar. Hafði Kristín Jónsdóttir
átt hana áður en hún giftist Sveini.
Nú var það árið 1887, 31. ágúst, að Sveinn í Hólakoti andaðist.
Svo stóð á þetta sumar, að prestslaust var í Fagranessókn, því séra
Tómas Þorsteinsson, er þar hafði þjónað, hafði sagt af sér, en nýr
prestur ekki kominn. Þjónaði því brauðinu séra Bjarni Pálsson, sem
þá var á Ríp í Hegranesi, síðar í Steinnesi í Þingi. Var hann því
fenginn til að jarðsyngja Svein í Hólakoti, og var jarðarförin ákveðin
í vikunni fyrir göngurnar.
Tíð var hin versta um þessar mundir. Tveim eða þrem dögum
áður en jarðarförin hafði verið ákveðin, gjörði stórhríð með fann-
komu, svo gil öll fylltust þarna á ströndinni, svo færð var hin versta.
Jarðarfarardagsmorguninn hafði máð snjó af láglendi og stærri fannir
sigið og þétzt. Veður var norðan, þungbúið og leit út fyrir úrfelli.
Líkkistan var flutt á hesti að Fagranesi. Gekk seint með útbúning
eins og gengur, og svo varð að taka kistuna af hestinum og bera
hana yfir gil þau, sem á leiðinni eru. Var því farið að líða mjög á
daginn, þegar til kirkjunnar kom, og prestur orðinn mjög órólegur.
Fór nú jarðarförin fram, og að henni endaðri var komið rökkur,
rigning og bleytuhríð. Talar þá prestur við ekkjuna um það, hvort
hún geti ekki útvegað sér mann til fylgdar austur að Héraðsvatnaósi.
Færðin innan ströndina hafi verið afleit um morguninn og hann
treysti sér tæplega til að vera einn á ferð í myrkri og illviðri.
1 Sigurðssonar, á Heiði í Gönguskörðum, Guðmundssonar; sjá hér síðar.
2 1 Skagf. æviskrám segir, að þau hafi gifzt 1891.
152