Tímarit um menntarannsóknir - 01.06.2012, Page 19

Tímarit um menntarannsóknir - 01.06.2012, Page 19
19 Rauntengsl eða merkingartengsl? yfirhöfuð. Hefur það slíka hvöt í móður- kviði? Í vöggu? Hefur það hvöt til að læra að taka höndum um hluti, læra að skríða, að ganga, klifra, borða með skeið? Án efa hafa börn hvöt til að gera allt þetta en ann- að mál er hvort þau hafa hvöt til að læra að gera það. Þau hafa samt af þessu lært og þegar eitthvað verður okkur lærdómsríkt án þess að við ætluðum að læra af því sér- staklega þá segjum við að við höfum „lært af reynslunni“. Með skólum er reynt að ná lærdómsríkri reynslu nemendanna undir stjórn og gera hana markvissa með því að einangra hinn æskilega námsþátt hennar, það sem læra skal, og fá nemandann með einum eða öðrum hætti til að einbeita sér að honum sérstaklega. Þannig á til dæmis að vera hægt að einangra nákvæmlega það sem læra þarf til að kunna þýsku og setja unglingnum það fyrir, til dæmis með þýskum stíl. Þessi viðleitni skólans til að einangra valda námsþætti og stjórna nám- inu í þeim getur (að margra dómi) orðið á kostnað reynslunnar; hún verði ein- hæfari og þannig rýrari af ýmsu því sem lærdómsríkt er og að sama skapi fækki kostum þess sem nemendur hafi sjálf- kvæma hvöt til að gera. Með því reynir enn meira á aðkvæma námshvöt nemenda og iðulega verður að viðurkenna að hún hrekkur ekki til og unglingurinn fæst ekki til að gera þýskustílinn beinlínis af náms- hvöt sinni. Þá verður að grípa til annarra ráða sem vonandi duga til. Til dæmis að hann sjálfur bæti sér upp með sjálfsaga það sem á vantar af námshvötinni! Þessi viðleitni skóla til að einangra það sem læra skal og gera úr því óblandin námsleg viðfangsefni hefur sætt gagnrýni nafntogaðra skólamanna og hugsuða um menntun, svo ekki sé minnst á mótþróa nemendanna sjálfra. Skoða má mennt- unarheimspeki Johns Dewey beinlínis sem andsvar við henni og þeim náms- og kennsluháttum sem af henni leiða (sjá ýmsar greinar í safni ritstýrðu af Jóhönnu Einarsdóttur og Ólafi Páli Jónssyni, 2010). Í stað þess að einangra námsþættina til hins ýtrasta og einhæfa námið að sama skapi boðaði hann að námsleg viðfangs- efni barnanna skyldu beinlínis sett inn í og unnin upp úr margbreytilegum reynslu- heimi þeirra og miða að því að auðga hann af aukinni lærdómsríkri reynslu. Þeirri lærdómsríku reynslu var ætlað að setja þá nýju þekkingu, þá auknu færni og getu sem barn öðlaðist við námið, í heildrænt samhengi. Það samhengi fengist ekki bara með tilvísunum í reynsluheim barnsins heldur með því að námið sjálft færi fram í slíku samhengi í verki. Og ekki einungis verklegu samhengi, að börnin lærðu um lögmál eðlisfræðinnar eða sögu mannkyns við verklega framkvæmd, heldur félags- legu samhengi. Námsleg markmið skólans yrðu gerð að sameiginlegu úrlausnarefni þess samfélags sem skólinn myndaði um þau. Af þeirri reynslu ykist börnunum þroski eða með öðrum orðum getan til að bera uppi síaukna þekkingu sína og gefa henni hlutverk í hugarheimi sínum og at- höfnum. Nám þeirra yrði af þessu sannar- lega menntandi í þeim skilningi að auka þeim tilvistarlegan styrk. Þau styrktust að þekkingu, færni og getu í hverjum nýjum snertifleti við heiminn sem námsleg við- fangsefni þeirra opnaðu þeim. Víkjum aftur að hvöt barna til að leika sér. Sé barn spurt að því hvers vegna það
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.