Tímarit um menntarannsóknir - 01.06.2012, Side 20

Tímarit um menntarannsóknir - 01.06.2012, Side 20
20 Gunnlaugur Sigurðsson og Kristján Kristjánsson leiki sér þá svarar það gjarnan að það geri svo vegna þess að það sé gaman. Börnum þykir gaman að leika sér. Af því mætti draga þá ályktun að hvöt barna til að leika sér væri það gaman sem þau hafa af leikn- um. En þar höfum við sennilega hrapað að niðurstöðu. Þetta gaman barnanna er vissulega ekki ofmælt, þau hafa gaman af því að leika sér. Það jafngildir þó ekki því að þau geri það sem þau gera í leiknum til þess að hafa af því gaman: að á hverju augnabliki miði þau að því að gera það sem þeim finnst, hvað þá vænti, að sé gaman. Sprautufíkill sprautar sig vegna þess að hann væntir af því vellíðunar en ekki vegna upplifunarinnar af nálar- stungunni. Hún er aukaatriði. Er það sem börnin gera í leik sambærilegt aukaatriði miðað við það gaman sem þau hafa af því? Ef við litum svo á að börn í leik væru að finna upp menninguna, og tungumálið þar með, þá gætum við orðað þetta svo að í leik gefi börn athöfnum sínum merkingu, móti hana í orð og setji orð sín í athöfn. Þegar þess er gætt að börnin eru ekki að finna upp menninguna þá er nær að segja að þau finni huga sínum farveg í merk- ingarbærum athöfnum og orðum. Hlut- lægur veruleiki verður ekki merkingar- heimur þeirra fyrir þær sakir einar að vera efnislegur og skynrænn. Með því upp- fyllir hann að vísu forsenduna að vera til fyrir barninu en hlutlægur merkingarheimur verður hann – eins og Wittgenstein og Winch minna okkur sífellt á – sakir þeirra tjáskipta sem barnið á um hann við aðra. Efasemdir um rauneðli hugtaksins námshvöt Það er ekki víst að mikill „leikur“ sé í því að gera þýskan stíl, eins og íslenskum fram- haldsskólanemum er uppálagt að gera, og óvíst hvað muni bera þá athöfn uppi and- spænis því sem kann að vera henni mót- drægt í huga unglings. Hvað leggst með og hvað á móti þýska stílnum? Þetta er vissu- lega viðfangsefni menntunarfræði eins og hún hefur orðið til fyrir hugsun fræði- manna og í reynsluheimi kennara og nem- enda. Með óhjákvæmilegri einföldun má segja að hún reki tvenna slóð sem í stöku stað sameinast eða jafnvel víxlast. Annars vegar slóð námshvatarinnar (e. motivation); hins vegar sjálfsagans (eða systurhugtaka hans, sjálfsstillingar og sjálfstjórnar; e. self- discipline, self-regulation, self-control). Víkjum fyrst að námshvötinni en í næsta kafla að sjálfshugtökunum. Á þessari vegferð hefur menntunar- fræðin átt vaxandi samleið með aðferða- fræði sálfræðilegra rannsókna um efnið og látið henni eftir leiðsögnina um lendur þess veruleika sem hugtökin taka til (sjá t.d. Amalíu Björnsdóttur, Baldur Kristjáns- son og Börk Hansen, 2008). Sú leiðsögn hefur helgast af nauðsyn þess að skila afdráttarlausum og helst mælanlegum niðurstöðum. Rannsóknir í menntunar- fræðum hafa því hneigst til þess að við- fangsefnið sé tekið tökum raunvísinda á náttúrulegum veruleika, þeim sem mynd- aður er af rauntengslum orsaka og afleið- inga. Frá því sjónarmiði er til dæmis rök- rétt að gera að tilgátu sinni að unglingur geri þýskustíla vegna þess að hann langi til að kunna þýsku. Löngun hans til að kunna þýsku verði honum hvöt til að læra
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.