Tímarit um menntarannsóknir - 01.06.2012, Blaðsíða 70
70
Kristín Bjarnadóttir
fyrir að um helmingur árganga sem fædd-
ir voru á árunum 1962–1965 á Íslandi hafi
haft Bundgaard-námsefnið.
Hörður Lárusson var þá námstjóri í
stærðfræði í Menntamálaráðuneytinu.
Hann var þá sjálfur að semja framhald
Bundgaard-námsefnisins fyrir unglinga-
stigið. Hörður ritaði í Menntamál 1972:
Meðal foreldra, kennara og fleiri, sem fylgzt hafa
með störfum skólanna síðustu árin, hafa farið
fram miklar umræður um nýtt námsefni í stærð-
fræði, sem fyrst var tekið upp í barnaskólum
Reykjavíkur haustið 1966. Menn hafa haft mjög
skiptar skoðanir á þessu nýja námsefni, og er
ekki nema gott eitt um það að segja. Námsefnið
í heild hefur ekki verið kynnt almennt, né heldur
þau markmið, sem stefnt er að, og má vera að
það valdi nokkru um hluta þeirrar gagnrýni, sem
fram hefur komið. Útbreiðsla þessarar nýjungar
varð miklu meiri og örari en ráð var fyrir gert, og
nú í vetur, þ.e. skólaárið 1971–72, munu næstum
öll börn í 1. bekk barnaskólanna í Reykjavík, auk
fjölmargra annarra úti á landi, læra þetta nýja
námsefni (Hörður Lárusson, 1972, bls. 9).
Önnur grein um nýju stærðfræðina
birtist í næsta hefti Menntamála 1972 eftir
reyndan og roskinn kennara í stærðfræði
og eðlisfræði, Magnús Sveinsson. Hann
bar lof á Guðmund Arnlaugsson og bók
hans Tölur og mengi. Síðan sagði hann:
Þótt þessar nýju reikningsaðferðir séu ágætar í
sjálfu sér og rökfræði þeirra sé til skilningsauka
og létti að einhverju leyti annað nám, þá verður
að telja það mjög hæpið að láta fræði þessi flæða
hömlulaust á örskömmum tíma yfir allt fræðslu-
kerfið. Ég hef heyrt, að t.d. Danir taki þessu með
varúð, reyni kerfið fyrst í nokkrum aldursflokk-
um, en séu ekkert á leið með að steypa því yfir
allt skyldunámsstigið. Einnig hef ég heyrt, að til
séu skólar bæði í Danmörku og víðar á Norður-
löndum, sem ekki hafi innleitt þessar reikningsað-
ferðir hjá neinum aldursflokki. (Magnús Sveins-
son, 1972).
Yfirvöld drógu smám saman úr út-
breiðslu Bundgaard-námsefnisins eftir
1972 á meðan verið var að þróa nýtt náms-
efni með vandlegri prófun, minnug vand-
ans sem upp kom þegar námsefni nýju
stærðfræðinnar dreifðist hratt um landið.
Alþýðublaðið birti frétt 24. júlí 1973 undir
fyrirsögninni „Stærðfræðikennarar lögðu
allt of mikið upp úr kennslu mengis“. Þar
sagði Hörður Lárusson óeðlilega mikið
hafa verið lagt upp úr hugtökum mengja-
fræðinnar í stað þess að nota þau sem
hjálpartæki við kennslu hefðbundinna að-
ferða. Hörður taldi engan vafa á því að sú
tilhögun hefði dregið úr þjálfun nemenda
í talnameðferð, sem m.a. væri til baga við
nám í framhaldsskólum og í atvinnulífinu
0%
20%
40%
60%
80%
100%
1959 1960 1961 1962 1963 1964 1965 1966 1967 1968
Hlutfallslegur fjöldi nemenda sem
tóku Bundgaard-námsefni eftir
fæðingarárum
2. mynd Hlutföll nemenda
sem tóku Bundgaard-náms-
efnið allt upp í 6. bekk
(Menntamálaráðuneytið,
skólarannsóknadeild, 1977).