Tímarit um menntarannsóknir - 01.06.2012, Blaðsíða 155
155
„Nú er ég alveg búinn að fatta hvernig ég á að vera“
Heildstæður stuðningur við jákvæða
hegðun felur í sér stigskiptar aðgerðir til
að mæta ólíkum þörfum nemenda fyrir
stuðning. Á fyrsta stigi eru almennar að-
ferðir notaðar með öllum nemendum, í
öllum aðstæðum, til að kenna viðeigandi
hegðun og fyrirbyggja erfiða hegðun.
Dæmi um slíkar aðferðir er bein kennsla
skólareglna með hlutverkaleikjum og
markviss styrking viðeigandi hegðunar
(Sprague og Golly, 2004/2008). Á öðru
stigi eru sértækari aðferðir fyrir afmarkað-
an áhættuhóp 7–10% nemenda sem þurfa
meiri stuðning til að sýna viðeigandi hegð-
un. Dæmi um slíkar aðferðir eru einföld
hvatningarkerfi með skýrum væntingum
og tíðri viðgjöf á hegðun nemenda. Slík
úrræði duga fyrir marga nemendur með
hegðunarerfiðleika (Hawken, Macleod og
Rawlings, 2007; Zuilma Gabriela Sigurðar-
dóttir og Anna-Lind Pétursdóttir, 2000),
sérstaklega þá sem sækjast eftir athygli
fullorðinna (March og Horner, 2002). Hins
vegar eru einstaka nemendur í hverjum
skóla með alvarlega eða langvinna hegð-
unarerfiðleika sem þurfa einstaklingsmið-
uð úrræði. Slíkar þriðja stigs aðferðir fela
í sér einstaklingsmiðaða stuðningsáætlun
sem byggist á virknimati (Sprague og
Golly, 2004/2008).
Virknimat
Virknimat (e. functional behavioral assess-
ment) er vinnuferli til að ákvarða áhrifa-
þætti á erfiða hegðun með áherslu á að
skoða virkni (e. function), tilgang eða hlut-
verk hegðunar fyrir einstakling í tilteknu
umhverfi (O´Neill o.fl., 1997). Virknimat er
ein aðferð hagnýtrar atferlisgreiningar til
að kortleggja aðdraganda (e. antecedents)
sem kveikir erfiða hegðun og afleiðingar
sem viðhalda erfiðri hegðun. Við virkni-
mat er hægt að nota beina athugun þar
sem tilvik um erfiða hegðun eru skráð um
leið og þau gerast ásamt aðdraganda og
afleiðingum hegðunarinnar í svokallaðri
AHA-skráningu. Við endurteknar AHA-
skráningar ætti að koma í ljós mynstur
í áhrifaþáttum sem kveikja og viðhalda
erfiðu hegðuninni. Einnig er hægt að afla
upplýsinga með virknimatsviðtölum við
kennara, foreldra eða nemandann sjálfan.
Viðtöl geta sérstaklega gagnast við að afla
upplýsinga um einstaklingsbundna bak-
grunnsáhrifavalda (e. setting events) sem
ýta undir að erfið hegðun eigi sér stað.
Niðurstöður virknimats eru settar fram
í tilgátu um tilgang erfiðrar hegðunar
sem felur í sér lýsingu á hinni óæskilegu
hegðun og aðdraganda, afleiðingum og
bakgrunnsáhrifavöldum hennar (O‘Neill
o.fl., 1997). Tilgangi erfiðrar hegðunar má
skipta gróflega í tvo flokka (O´Neill o.fl.,
1997). Annars vegar gæti erfið hegðun
þjónað þeim tilgangi að veita aðgang
að einhverju eftirsóknarverðu, svo sem
athygli félaga, aðstoð kennara eða tíma í
tölvu. Þá er talað um að erfið hegðun sé já-
kvætt styrkt þar sem eitthvað eftirsóknar-
vert gerist í kjölfar hennar sem eykur líkur
á að hún sé endurtekin við sömu aðstæður.
Ef til dæmis nemandi sem blótar og hendir
bókinni í gólfið fær umsvifalaust aðstoð
kennara er líklegra að hann endurtaki þá
hegðun til að fá aðstoð í framtíðinni. Hins
vegar gæti erfið hegðun þjónað þeim til-
gangi að forða einstaklingi frá einhverju
óþægilegu, s.s. stríðni félaga, kröfum