Tímarit um menntarannsóknir - 01.06.2012, Page 160

Tímarit um menntarannsóknir - 01.06.2012, Page 160
160 Guðrún Björg Ragnarsdóttir og Anna-Lind Pétursdóttir sjón með en bekknum var skipt í í 16 til 25 nemenda hópa eftir námsgrein hverju sinni. Kennt var í opnu kennslurými sem var skipt í vinnusvæði með skilrúmum og var stuðningsfulltrúi Andra innan handar í bóklegum kennslustundum. Andri var jákvæður gagnvart allri samvinnu við full- orðna en helsti vandi hans var truflandi og á stundum ofbeldisfull hegðun gagnvart skólafélögum. Einnig átti Andri til að yfir- gefa kennslustundir án leyfis og sótti þá mjög í félagsskap unglinga. Fyrri íhlutun hafði meðal annars falið í sér svokallaða brosbók þar sem eingöngu voru skrifaðar jákvæðar athugasemdir, félagsfærniþjálf- un og táknstyrkja skólans fyrir jákvæða hegðun. Birgir var átta ára, greindur með ADHD og vitsmunaþroska á tornæmisstigi í 1. bekk og hafði verið á metylfenídati í rúmt ár. Birgir var í 3. bekk með 23 nemendum sem einn kennari hafði umsjón með og kenndi í hefðbundnum kennslustofum. Árganginum með tæplega 50 nemendum var kennt í fjórtán til sextán nemenda hópum í íslensku, stærðfræði og sam- félagsfræði. Birgir naut stuðnings sér- kennara í sjö bóklegum kennslustundum á viku ásamt fleiri nemendum. Birgir stóð vel félagslega, en vandi hans fólst í því að hann meðtók ekki fyrirmæli sem gefin voru yfir hópinn, stóð oft á fætur og olli mikilli truflun í kennslustundum, einkum ef hann þurfti að bíða eftir aðstoð. Honum gekk illa að einbeita sér, var undir meðal- lagi í námslegri getu og þurfti kennari helst að sitja hjá honum til að fá hann til að vinna. Meðal fyrri íhlutunar var að sitja hjá „rólegum“ sessunauti nálægt kenn- araborði, með stundatöflu límda á borðið. Einnig voru gefin skýr fyrirmæli og tákn- styrkjar fyrir jákvæða hegðun. Davíð var átta ára, greindur með ADHD og mótþróaþrjóskuröskun fimm ára gamall og með ódæmigerða einhverfu og þroskamynstur óyrtra námserfiðleika (e. socio-emotional learning difficulties) meðan á rannsókn stóð. Hann var í 3. bekk með 23 nemendum, sama bekk og Birgir. Davíð naut stuðnings sérkennara í 21 bóklegri kennslustund á viku ásamt fleiri nemendum. Davíð stóð sig vel í íþróttum og tengdist félögum í gegnum fótboltaiðkun en átti erfitt með að setja sig í spor annarra og átti það til að beita önnur börn ofbeldi þó dregið hefði úr því á yfirstandandi skólaári. Kennarar og foreldrar lýstu honum sem „órólegum, hvatvísum, ögrandi, uppátektarsömum og mótþróafullum“. Að sögn kennara var Davíð einnig „gleyminn og óþolinmóður“, fylgdi illa fyrirmælum og sýndi truflandi hegðun og vanvirkni í sumum kennslu- stundum. Fyrri íhlutun fól meðal annars í sér brosbók með eingöngu jákvæðum at- hugasemdum, hvatningarbók með mark- miði um að fylgja fljótt fyrirmælum um að koma til kennara að lesa og að sitja nálægt kennaraborði með stundatöflu límda á borðið. Námsefni var líka stundum ein- faldað eða stytt fyrir Davíð. Mælitæki, markhegðun og áreiðanleiki skráninga Í virknimatsviðtölum við kennara, for- eldra og þátttakendur og við gerð stuðn- ingsáætlunar var stuðst við eyðublöð sem
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.