Tímarit Máls og menningar - 01.11.2012, Blaðsíða 146
146 TMM 2012 · 4
Höfundar efnis:
Ármann Jakobsson, f. 1970. Rithöfundur og prófessor í íslenskum bókmenntum við
HÍ. Síðasta skáldsaga hans var Glæsir, 2011.
Árni Bergmann, f. 1935. Rithöfundur og fyrrverandi ritstjóri Þjóðviljans. Síðasta bók
hans var Glíman við Guð, 2008.
Árni Björnsson, f. 1932, þjóðháttafræðingur.
Ástráður Eysteinsson, f. 1957, prófessor og forseti Hugvísindasviðs við HÍ. Árið 2007
kom út ritið Modernism í ritstjórn hans og Vivian Liska.
Bergur Ebbi Benediktsson, f. 1981. Hefur starfað á margvíslegum vettvangi lista,
m.a. tónlist, skáldskap og uppistand. Árið 2010 kom út eftir hann ljóðabókin Tími
hnyttninnar er liðinn.
Bjarni Randver Sigurvinsson, f. 1968. Guðfræðingur og stundakennari við HÍ og
Háskólann á Bifröst. Meðal bóka hans má nefna Trúfélagið Krossinn, 1997.
Egill Arnarson, f. 1973, heimspekingur.
Gísli Magnússon, f. 1974, tónlistarmaður og skáld sem notar einnig listamannsnafnið
gímaldin. Nýjasta plata hans er Þú ert ekki sá sem ég valdi, 2012.
Guðni Elísson, f. 1964. Prófessor og forseti Íslensku- og menningardeildar HÍ. Síðustu
bækur hans eru Rekferðir (2011) og Hef ég verið hér áður? Skáldskapur Steinunnar
Sigurðardóttur (2011) sem samin var með Öldu Valdimarsdóttur.
Gunnar Harðarson, f. 1954. Skáld og prófessor í heimspeki við HÍ.
Kristján Þórður Hrafnsson, f. 1968. Rithöfundur og bókmenntafræðingur. Síðasta
skáldsaga hans, Hinir sterku kom út árið 2005.
Matthías Johannessen, f. 1930. Skáld. Síðasta ljóðabók hans var Söknuður, 2011.
Olga Markelova, f. 1980. Bókmenntafræðingur, þýðandi og ljóðskáld. Hún yrkir bæði
á móðurmáli sínu, rússnesku og íslensku og býr til skiptis í Reykjavík og Moskvu.
Ólafur Páll Jónsson, f. 1969, dósent í heimspeki við Menntavísindasvið HÍ. Síðasta
bók hans var Lýðræði, réttlæti og menntun: hugleiðing um skilyrði mennskunnar,
2011.
Páll Valsson, f. 1960. Rithöfundur og ritstjóri Skírnis. Síðasta bók hans var Vigdís,
kona verður forseti, 2009.
Sigríður Albertsdóttir, f 1960. Bókmenntafræðingur og íslenskukennari við Sor-
bonne-háskóla í París.
Sverrir Norland, f. 1986. Rithöfundur og tónlistarmaður. Ljóðabók hans Með mínum
grænu augum kom út árið 2010.
Úlfhildur Dagsdóttir, f. 1968. Bókmenntafræðingur og verkefnastýra hjá Borgarbóka-
safni Reykjavíkur. Árið 2011 kom út eftir hana bókin Sæborgin: Stefnumót líkama
og tækni í ævintýri og veruleika.
Þorleifur Hauksson, f. 1941. Bókmenntafræðingur og rithöfundur. Árið 2011 sendi
hann frá sér bókina Úr þagnarhyl, ævisögu Vilborgar Dagbjartsdóttur.
Þorsteinn Þorsteinsson, f. 1938. Bókmenntafræðingur. Síðasta bók hans var Ljóðhús,
þættir um skáldskap Sigfúsar Daðasonar, 2007.
Þröstur Helgason, f. 1967. Doktorsnemi í bókmenntafræði við HÍ og fyrrverandi rit-
stjóri Lesbókar Morgunblaðsins.
Æsa Guðrún Bjarnadóttir, f. 1978. Bókmenntafræðingur.