Tímarit Máls og menningar - 01.11.2012, Blaðsíða 32
B j a r n i R a n d v e r S i g u r v i n s s o n
32 TMM 2012 · 4
ingjar hans og vinir hafa haft margt jákvætt um hann að segja og ljóst er að
hann var bæði hjálpsamur og fórnfús.11 Mannkostir hans og samúð ýmissa
með baráttumálum hans, eða a.m.k. aðdáun á þrautseigju hans, hafa átt
stóran þátt í því að mynda í kringum hann fjölmenna aðdáendahreyfingu
sem hefur farið vaxandi á síðari árum og gefið honum táknrænt félagslegt
hlutverk sem „mótmælanda Íslands“. Umfram allt var Helgi þó helgimynda-
brjótur (iconoclast) og aðgerðarsinni (activist) sem beitti gjörningum,
ögrun, háði, níði og jafnvel klámi til að árétta andmæli sín gegn þeim
gildum, hugmyndum, táknum, stofnunum og einstaklingum sem hann
var ósáttur við. Sem helgimyndabrjótur fetaði hann þar að vissu leyti í fót-
spor þeirra anarkista og kommúnista sem á fyrri hluta 20. aldar réðust með
sambærilegum eða róttækari hætti gegn þeim trúar- og þjóðfélagsstofn-
unum sem þeir vildu kollvarpa eða umbylta víða um heim.
Helgi kynnti sjónarmið guðleysingja öllum þeim sem áhuga höfðu, óháð
aldri, og er siðrænn húmanismi þar meðtalinn.12 Nafnið Siðmennt er komið
frá Helga og átti það félag eftir að heiðra hann sérstaklega fyrir framlag
hans án þess þó að hann hafi alla tíð verið virkur þátttakandi í starfsemi
þess. Gísli Gunnarsson prófessor við HÍ segir í grein á vef Vantrúar að Helgi
hafi yfirleitt átt „samleið með lífskoðunarfélaginu Siðmennt, bjó m.a. til
nafn félagsins og átti alla tíð góð samskipti við aðra siðræna húmanista“.13
Sömuleiðis kemur fram í viðtali við Reyni Harðarson í DV að Helgi mætti á
fundi Siðmenntar „um nokkurt skeið“.14 Þegar hann lést árið 2009 var það
Siðmennt sem sá um útför hans.15
Þjóðkunn táknmynd í lifanda lífi
Helgi Hóseasson kom oft við sögu í fjölmiðlum vegna mótmæla sinna
og birtust ýmis viðtöl við hann í gegnum árin, auk þess sem hann prýðir
umslag rokkplötu Atómstöðvarinnar, Exile Republic.16 Árið 1997 kom út
bókin Meðan einhver ennþá þorir: Mannréttindabarátta Helga Hóseas-
sonar eftir Einar Björgvinsson, en hún segir frá sögu hans og málflutningi
í máli og myndum og gerir fjölmiðlaumfjölluninni ágæt skil.17 Heim-
ildamyndin Mótmælandi Íslands (Þóra Fjelsted & Jón Karl Helgason: 2003)
var styrkt af Kvikmyndamiðstöð Íslands og tilnefnd til Edduverðlauna fyrir
kvikmyndatöku og bestu heimildamynd ársins.18 Í tilefni frumsýningarinnar
í kvikmyndahúsum voru skipulögð mótmæli „víða um Reykjavík til heiðurs
Helga“ og birti Morgunblaðið í því sambandi mynd af fjölda ungs fólks með
mótmælaspjöld á lofti með slagorð frá honum eða í anda hans.19 Heim-
ildamyndin hefur síðan verið sýnd a.m.k. þrisvar í Ríkissjónvarpinu20 og á
sérsýningu í félagsmiðstöðinni Snarrót á vegum Vantrúar haustið 2004 en
þangað var m.a. þingmönnum boðið.21 Eftir andlát Helga árið 2009 efndi
félagið svo aftur til sýningar á myndinni í Friðarhúsinu í samvinnu við Sam-
tök hernaðarandstæðinga.22