Hugur - 01.01.2015, Page 5
Hugur | 27. ár, 2015 | s. 5–7
Inngangur ritstjóra
Ég lít á mig sjálfan og ég lít á okkur sjálf sem andlegar, efnislegar, líkamlegar
verur í senn, óaðgreinanlegar í þeirri merkingu að ég get ekki skilið hugann,
hugmyndirnar eða hugsanirnar frá líkamanum. Ég er minn eigin líkami um
leið og ég er þessi hugsandi vera í líkama mínum.1
Í þessum orðum Páls Skúlasonar vefjast saman tveir meginþræðir Hugar 2015:
hugsun Páls og hugsun um líkamann, og í líkamanum. Á árinu kvöddum við
með mikilli eftirsjá líkama Páls Skúlasonar, eins áhrifamesta og eftirminnilegasta
heimspekings Íslandssögunnar. En hugsun hans lifir að eilífu. Rétt eins og hugsun
hans líkamnaðist í öllum hans athöfnum á meðan hann lifði, heldur hún áfram að
líkamnast í öllum þeim orðum sem hann gaf okkur. Þau fjölmörgu verk sem eftir
hann liggja munu halda hugsun hans lifandi í gegnum samræður okkar og kom-
andi kynslóða við þessi verk. Páll tók mjög vel í þá ósk mína að fá að birta viðtal
við hann í Hug og er það enn eitt dæmið um hversu gjafmildur hann var á hugsun
sína, og óþreytandi allt fram á síðasta dag við að deila henni með öðrum. Ég er
honum, fjölskyldu hans, og Jóni Ásgeiri Kalmanssyni óendanlega þakklát fyrir að
hafa gert viðtalið sem birtist hér að veruleika þrátt fyrir erfiðar kringumstæður.
Þakkir fá einnig Vilhjálmur Árnason fyrir að deila með okkur minningarorðum
sínum um Pál og þau Ólafur Páll Jónsson, Róbert Jack og Bára Huld Beck fyrir
umfjallanir sínar um þrjár af þeim bókum sem Páll gaf út á síðustu árum. Það efni
sem hér birtist og er tileinkað Páli, ásamt fyrirhugaðri ráðstefnu um heimspeki
hans vorið 2016, er í mínum huga mikilvægt skref í því verkefni komandi kynslóða
að halda áfram að vinna úr óþrjótandi brunni frjórrar hugsunar Páls.
Eins og kemur fram í tilvitnuninni hér að ofan, var staða okkar sem líkamlegar
verur, ekki síður en andlegar og efnislegar verur, Páli hugleikin, enda var hugs-
un hans undir sterkum áhrifum fyrirbærafræðinnar, þeirrar greinar heimspek-
innar sem hefur beint athygli sinni hvað mest að líkamanum. Fyrirbærafræðin
er vaxandi fræðigrein hér á landi eins og annars staðar á Norðurlöndunum og
þýðing Steinars Arnar Atlasonar og Egils Arnarsonar á kafla úr Fyrirbærafræði
skynjunarinnar eftir Maurice Merleau-Ponty sem hér birtist styður við þann vöxt.
Áður hefur þýðing á formála sömu bókar birst í Hug2 og vonandi verður þýðing á
bókinni í heild sinni að veruleika í náinni framtíð.
1 Viðtal Jóns Á. Kalmanssonar við Pál Skúlason, bls. 17
2 Maurice Merleau-Ponty, Formáli að Fyrirbærafræði skynjunarinnar, Jón Laxdal Halldórsson, Páll
Skúlason og Björn Þorsteinsson þýddu, Hugur, 20. árgangur, 2008, s. 113–126.
Hugur 2015-5.indd 5 5/10/2016 6:44:51 AM