Hugur - 01.01.2015, Page 117

Hugur - 01.01.2015, Page 117
 Skynsamleg sjálfstjórn 117 annað verkefni fljótlega á eftir sem einnig krefst þess að þeir sigrist á löngun, þá er geta þeirra til þess minni en þegar þeir ganga óþreyttir til leiks. Þetta gildir jafnt þó verkefnin séu að öðru leyti ólík og langanirnar sem þeir þurfa að sigrast á af ólíku tagi. Viljastyrkur virðist sem sagt vera eins og vöðvi að því leyti að hann missir mátt við áreynslu. Einnig benda rannsóknir til að hann líkist vöðva í því að styrkjast við þjálfun. Sem dæmi má taka rannsókn þar sem þátttakendur þjálfuðu sig í að fara vel með peninga og leggja fyrir í stað þess að eyða þeim. Þjálfunin skilaði ekki eingöngu fjárhagslegum ávinningi því hópurinn varð jafnframt hæf- ari til að halda í við sig í mat og drykk og skoraði hærra á prófum í sjálfstjórn við lausn ýmissa þrauta.27 Í skrifum um þetta efni á ensku er orðalagið ego depletion notað og á íslensku mætti ef til vill nota orðið sjálfsþrot um það þegar viljastyrkurinn örmagnast. Ný- legar rannsóknir benda til að þreyta við að láta áform yfirvinna langanir sé lík þreytu við líkamlega áreynslu, þar sem úthald stjórnast í senn af lífeðlisfræðileg- um ástæðum og sálfræðilegum þáttum eins og áhuga og metnaði.28 Löngu áður en kenningar um sjálfsþrot komust á dagskrá höfðu rannsóknir sýnt að fólk hefur misjafna hæfni til að haga sér í samræmi við eigið gildismat og langtímamarkmið. Rannsóknir bandaríska sálfræðingsins Walters Mischel á þessari gerð af hæfni til sjálfstjórnar hófust á sjöunda áratug síðustu aldar þegar hann þróaði aðferðir til að mæla hæfni ungra barna til að fresta því að upp- fylla löngun þegar þau sjá sér hag í því. Í einni af frægustu tilraunum hans gátu fjögurra ára börn valið milli þess að borða einn bita af sælgæti strax eða bíða með það og fá þá tvo bita að lokum.29 Á ensku er hæfnin sem Mischel mældi kölluð trait self-control (skammstafað TSC). Próf til að mæla TSC hafa verulegt forspár- gildi um gæfu manna og gengi. Þeir sem skora hátt í bernsku skora að jafnaði líka hátt síðar á lífsleiðinni og gengur vel að tileinka sér heilbrigða lífshætti og ná árangri í námi og vinnu.30 Á síðustu árum hafa nokkrir rannsakendur kannað sambandið milli TSC og sjálfsþrots. Mörgum þykja niðurstöður þeirra athugana sæta nokkurri furðu, því í ljós hefur komið að einstaklingar sem skora hátt á TSC hafa ekkert meira úthald en aðrir þegar kemur að því að sigrast á freistingum. Þeir þreytast jafnvel fyrr á að yfirvinna langanir. Reynt hefur verið að skýra þetta með því að þeir sem skora hátt á TSC-prófi glími sjaldan við sterkar langanir sem ganga gegn ætlunum þeirra og hafi því litla þjálfun í að nota „sjálfstjórnar- vöðvann“.31 Með hliðsjón af mynd 3 er freistandi að geta sér þess til að hjá einstaklingum sem hafa þrek til að standast freistingar, og komast því seint í sjálfsþrot, sé sterk tenging milli athafna og ásetnings. Á myndinni er þessi tenging táknuð með ör úr þriðja í fimmta reit. Mér þykir trúlegt að hæfnin sem mæld er með TSC-prófum varði einkum tengsl langana við skilning á því hvað er réttast eða best að gera. Á myndinni er þetta samband táknað með næstneðstu örinni sem nær úr öðrum 27 Muraven, Baumeister og Tice, 1999; Baumeister, Gailliot, DeWall og Oaten, 2006. 28 Evans, Boggero og Segerstrom, 2015. 29 Mischel, 1996. 30 Hofmann, Luhmann, Fisher, Vohs og Baumeister, 2014. 31 Imhoff, Schmidt og Gerstenberg, 2014; Hofmann, Kotabe, Vohs og Baumeister, 2015. Hugur 2015-5.indd 117 5/10/2016 6:45:27 AM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.