Hugur - 01.01.2015, Blaðsíða 120
120 Atli Harðarson
geta verið hálka, lausamöl, sprungið dekk, syfja, ölvun, yfirlið, hraðakstur, bilun í
stýri eða bremsum, vond birtuskilyrði, hvassviðri og margt fleira. Ef til vill er gott
að hafa þetta dæmi um stjórn á bíl í huga þegar við fellum siðferðilega dóma um
fólk sem skortir skynsamlega sjálfstjórn. Í báðum tilvikum er trúlega jafn hæpið
að alhæfa um siðferðilega ábyrgð. Stundum þegar menn missa stjórn er eðlilegt
og sanngjarnt að kalla þá til ábyrgðar og stundum ekki. Það er líka gott að hafa
þetta dæmi í huga þegar við reynum að finna ráð til að draga úr hættu á stjórn-
leysi. Það er ekki gáfulegt að einblína á ráð af einni gerð. Ökumaður á til dæmis
allt í senn að forðast að neyta áfengis áður en hann sest undir stýri, fylgjast með
veðurspá og gæta þess að hjólbarðar séu í lagi. Ætli sá sem vill hafa skynsamlega
stjórn á sjálfum sér þurfi ekki líka að passa upp á margt fremur en eitt? Að kunna
fótum sínum forráð er ansi stórt verkefni. Mér er nær að halda að til þurfi nær all-
ar gáfur sem fólk hefur, hvern þann stuðning sem hægt er að fá og góðan skammt
af heppni til viðbótar.34
Heimildir
Ainslie, G. 1999. The Dangers of Willpower. Getting Hooked: Rationality and Addiction
(bls. 64–92). Ritstj. J. Elster og O. J. Skog. Cambridge: Cambridge University Press.
Aristóteles. 1995. Siðfræði Níkomakkosar, síðara bindi. Þýð. Svavar Hrafn Svavarsson.
Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag.
Aristóteles. 2009. Ηθικά Νικομάχεια, Τόμος Δεύτερος. Sótt af http://www.gutenberg.
org/ebooks/29011.
Atli Harðarson. 2004. Frelsi sem dygð og frjálsmannleg samfélagsskipan: Saman-
burður á Spinoza og Locke. Hugur 16, 219–234.
Baumeister, R. F., Bratslavsky, E., Muraven, M. og Tice, D. M. 1998. Ego depletion: Is
the active self a limited resource? Journal of Personality and Social Psychology, 74(5),
1252–1265.
Baumeister, R. F., Gailliot, M., DeWall, C. N. og Oaten, M. 2006. Self-regulation and
Personality: How Interventions Increase Regulatory Success, and How Depletion
Moderates the Effects of Traits on Behavior. Journal of Personality, 74(6), 1773–1801.
Elster, J. 1989. Nuts and Bolts for the Social Sciences. Cambridge: Cambridge University
Press.
Evans, D. R., Boggero, I. A. og Segerstrom, S. C. 2015. The Nature of Self-Regulatory
Fatigue and “Ego Depletion”: Lessons From Physical Fatigue. Personality and Social
Psychology Review: An Official Journal of the Society for Personality and Social Psychology.
Sótt af http://psr.sagepub.com/content/early/2015/07/30/1088868315597841.long
Gjelsvik, O. 1999. Addiction, Weakness of the Will, and Relapses. Getting Hooked:
Rationality and Addiction (bls. 47–64). Ritstj. J. Elster og O. J. Skog. Cambridge:
Cambridge University Press.
Gold, N. 2013. Team Reasoning, Framing, and Self-Control. Addiction and Self-
Control: Perspectives from Philosophy, Psychology, and Neuroscience (bls. 48–66). Ritstj.
N. Levy. New York: Oxford University Press.
34 Meðan þessi grein var í vinnslu lásu Ólafur Páll Jónsson heimspekingur og Harpa Hreinsdóttir
eiginkona mín drög að henni og gáfu mér fjölmörg ráð og ábendingar. Ég færi þeim báðum mínar
bestu þakkir. Einnig þakka ég ritrýni Hugar fyrir afar gagnlegar ábendingar sem komu að góðum
notum við lokafrágang greinarinnar.
Hugur 2015-5.indd 120 5/10/2016 6:45:28 AM