Hugur - 01.01.2015, Blaðsíða 139
„Gagnrýnin hugsun“ í gæsalöppum 139
þekkingu inn í fræðilega umræðu með vísunum í hvernig megi búa til rými fyrir
gagnrýni sem iðkuð er á styðjandi hátt og með hlýju. Með því að greina hug-
myndir samtímaspekings sem vinnur heimspeki sögulega en nálgast hugmyndina
um gagnrýni einnig á tilvistarlegan hátt beinist athyglin óhjákvæmilega að því
hvernig megi stuðla að einhvers konar gagnrýnni mótun. Þetta rímar við hina
íslensku hefð sem með upprunalegri spurningu Páls spyr sig hvort hægt sé að
móta þessa gagnrýnu kennd sem oft á tíðum birtist okkur í menningunni sem
sjálfsprottið eðli „gagnrýninna manneskja“ en ekki lærð hegðun. Þar sem þessi
grein fjallar aðallega um gagnrýni þá er hér hvorki rými né grundvöllur til þess að
kafa djúpt í kennslufræðilegar pælingar heldur aðeins hægt að benda á möguleika
þess áhuga sem kemur fram í tengingu gagnrýni við miðlun. Að hugsa með öðr-
um þýðir að huga þarf að miðluninni hvort sem sú hugsun gerist á kaffihúsi, í
skólastofu eða við eldhúsborðið.
Í því ákalli eftir breytingum sem heyrst hefur ótt og títt eftir hrun var ríkjandi
sú hugmynd að öllu þyrfti að breyta strax. Eins og hægt væri að setja mælistiku á
þau fyrirbæri samfélagsins sem breyta þyrfti og mæla út breytinguna sem þyrfti
til. Þær hugleiðingar sem spretta upp úr kennslu og miðlun sýna hins vegar að
hversu miklu leyti bæði rými og næði vantar til að leyfa nýjum hugmyndum að
gerjast; erfiðum hugmyndum sem kannski hríslast í gegnum líkamann á þann
hátt að maður vill frekar deyfa þær heldur en að takast á við þær. Að benda á að
við þurfum slíkt næði leiðir ekki til aðgerðaleysis heldur frekar skilnings á því að
sum iðja þurfi tíma til að gerjast og að menntun og mótun þurfi að taka mið af því.
Tilvistarlegar hugmyndir Butler um gagnrýni virðast bæði huga að þess konar
næði fyrir gagnrýna skoðun á sjálfri sér og samfélaginu en einnig að meiri usla,
meira andófi og kannski beinna andófi við mótmælum gegn samfélagskerfinu
sem heild. Það felast enn fremur ýmis spennandi tækifæri til þess að halda við og
umbylta hinni gagnrýnu hreyfingu Butler handan niðurbrots þekkingarmúrsins
með þeim hlýju og styðjandi straumum sem streyma fram í hugmyndaheiminn
í dag.
Heimildir
Adorno, Theodor. 1998. Critical Models: Interventions and Catchwords. New York. Col-
umbia University Press.
Alcoff, Linda. 1991. The Problem of Speaking for Others. Cultural Critique No. 20
(Winter 91–92).
Barad, Karen, Dolpjin, Rick, van der Tuin, Iris. 2012. An Interview with Karen Barad.
New Materialism: Interviews & Cartographies. Ann Arbor: Open Humanities Press.
Björn Þorsteinsson. 2005. Tími mannsins: Gagnrýnin hugsun í óræðri veröld. Hugsað
með Páli – Ritgerðir til heiðurs Páli Skúlasyni sextugum. Ritstj. Róbert H. Haraldsson,
Salvör Nordal, Vilhjálmur Árnason. Reykjavík: Háskólaútgáfan.
Butler, Judith. 1990. Gender Trouble – Feminism and the Subversion of Identity. New
York og London. Routledge.
Butler, Judith. 2005. Giving an Account of Oneself. New York. Fordham University
Press.
Hugur 2015-5.indd 139 5/10/2016 6:45:35 AM