Hugur - 01.01.2015, Page 157

Hugur - 01.01.2015, Page 157
 Um heimspeki náttúrunnar 157 þetta fjallar siðfræði náttúrunnar. Hún leitast við að skýra boð og bönn, dygðir og lesti, verðmæti og gildi sem eru í húfi í hegðun manna gagnvart náttúrunni og fyrirbærum hennar“ (72). Páll end- ar þessa litlu hugleiðingu á að benda á mikilvægi siðfræði náttúrunnar, að fram- tíð lífs á jörðinni sé undir því komið að mennirnir tileinki sér heilsteypta og sið- ferðislega hugsun. Í þessum orðum felst mikil ábyrgð fyrir mannkynið og skyldur mannanna liggja ljósar fyrir. Páll veltir fyrir sér gildi náttúru á nokkrum stöðum í bókinni en það er eitt af höfuðviðfangsefnum náttúrusið- fræðinnar. Hann veltir fyrir sér í erindi frá árinu 1995, „Að búa á landi“, hvort land eða staðir, fjöll og melar, holt og hólar hafi siðferðisgildi, þ.e. hvort hægt sé að gera illt gagnvart „dauðri“ nátt- úru og hugsanlega gera henni rangt til. „Merking hinnar dauðu náttúru og gildi felst einmitt í þessu: að vera grunnur og umgjörð hinnar lifandi náttúru – bera uppi lífið, umvefja það – og taka svo við leifum þess þegar það lygnir augunum í hinsta sinn“ (76). Mönnum ber því siðferðileg skylda til dauðrar náttúru af þessum sökum, þeir eru af jörðu komnir og háðir henni. Þess vegna finnst Páli mikil mistök vera falin í því viðhorfi að líta á náttúruna sem eign manna og að leyfilegt sé að gera hvað sem er undir því yfirskini. Við eigum ekki landið í þeim skilningi og getum hreinlega ekki gert það sem okkur lystir. Hann lítur svo á að við séum með landið að láni frá for- feðrum okkar og að okkur beri að skila því í góðu ásigkomulagi fyrir komandi kynslóðir. Heiti erindisins er lýsandi fyrir það viðhorf að mennirnir eigi ekki landið, heldur séu þeir íbúar þess: „Sið- ferðislögin gildi ekki bara í samskiptum milli manna eða í tengslum þeirra við dýr eða aðrar lífverur, þau gildi ekki síður í samskiptum þeirra við landið og jörðina alla, fossana og fjöllin, melana og móana“ (77). Bókin er stutt og mjög þægileg í lestri. Hún útskýrir á mannamáli þessi flóknu mál og það ættu allir sem áhuga hafa á umhverfismálum og umræðu í kringum þau að hafa gagn og gaman af þessari bók. Hún hentar því ekki bara fræðilega heiminum, heldur er hún að mínu mati mjög aðgengileg vegna þess hvernig Páll setur hana fram. Erindin og hugleiðingarnar eru flestar stuttar og hæglega er hægt að grípa niður í bókinni nánast hvar sem er. Erindin eru mislöng og þrátt fyrir að bókin sé samansafn ritverka sem spanna yfir tuttugu ár, sem skrifuð eru af mis- munandi tilefnum og sett fram á ólíkan máta, þá myndar hún samt eina heild. Páll Skúlason er mikilvægur höfundur þegar kemur að umhverfis- og nátt- úrusiðfræði. Skrif hans skipta miklu máli fyrir alla þá sem nema þessi fræði og þá sem leggja áherslu á þessi málefni. Og flestir sem fjallað hafa um siðfræði nátt- úrunnar eru sammála um að við þurfum að endurskoða margar hugmyndir og kenningar sem í dag ráða mestu um af- stöðu okkar til umhverfis og náttúru. Von mín er sú að ýmsar hugmyndir sem reif- aðar eru í þessu riti megi stuðla að slíkri endurskoðun. Bára Huld Beck 1. Hermann Stefánsson. „Landsins gagn og nauðsynjar“. Morgunblaðið, 24. janúar 1999. Hugur 2015-5.indd 157 5/10/2016 6:45:43 AM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.