Hugur - 01.01.2015, Page 164
164 Hugur | Ritdómar
er þegar skjalasöfnum er komið á fót og
varðar hvaða heimildir rata þangað og er
gefið pláss. Áhugasvið og úrval fræða-
fólks eða grúskara sem velja heimildir
eða texta í skjalasöfnum og skrifa þær
síðan inn í hina almennt viðteknu sögu er
þriðja stigið. Að lokum verður til frásögn
sem er viðtekin sem Sagan, hin almennt
viðtekna saga sem oft endurspeglar ráð-
andi valdatengsl.3 Trouillot var sjálfur frá
Haítí og lagði mikla áherslu að kynna og
varðveita haítíska pólitíska, menningar-
og hugmyndasögu.
Ég tel að framtakið sé ekki aðeins gott
heldur jafnvel nauðsynlegt út frá lýð-
ræðislegu sjónarmiði. Fleiri sjónarhorn á
heimspeki og hugmyndasögu veita mun
blæbrigðaríkari sýn á okkur sjálf, söguna
og heiminn og geta líka verið mikilvægur
þáttur í valdeflingu jaðraðra hópa. Ég tel
að höfundum verksins hafi tekist vel til og
dagbókarformið er sniðug leið til að læða
inn litlum fróðleiksmolum í hversdaginn.
Textarnir eru mismunandi, sumir ein-
blína á kenningar og fræði viðkomandi
hugsuðar meðan aðrir segja meira frá
lífshlaupi þeirra. Það er ágætis áminning
um að heimspekingar eru fólk af holdi
og blóði sem á í ástarsamböndum og
eignast börn. Í tilviki sumra kvennanna
sem kynntar eru hefur lífshlaup þeirra
og kynhlutverk einmitt annaðhvort verið
notað gegn þeim eða staðið í vegi fyrir
því að þær hafi getað helgað sig fræðum.
En síðast en ekki síst hefur reynsla þeirra
í sumum tilvikum haft áhrif á heimspeki
þeirra og viðhorf til heimsins, að þeirra
eigin mati.
Að lokum vil ég gera eina athugasemd
við það að bókatitlar og hugtök séu ávallt
þýdd yfir á íslensku en upprunalegum
titli er sleppt. Ef lesendur verða forvitn-
ir og vilja glugga í þessar bækur, getur
verið flókið að finna þær því verkin hafa
ekki nærri því öll verið þýdd á íslensku
og íslensku titlarnir eru oft eigin smíð
höfunda dagbókarinnar – veganesti fyrir
ritstjóra og höfunda þegar þessu merka
framtaki verður hleypt af stokknum í
næsta sinn.
Valgerður Pálmadóttir
1. Sem dæmi má nefna erindi sem Eyja
hélt hjá RIKK árið 2012: http://www.
hi.is/vidburdir/er_heimspekin_kven-
fjandsamleg
2. Gadamer, Hans Georg. Truth and
Method. Önnur endurskoðuð útgáfa.
Bloomsbury: New York, 2004.
3. Trouillot, Michael-Rolph. Silencing the
Past: Power and the Production of History.
Beacon Press: Boston, 1995.
Hugur 2015-5.indd 164 5/10/2016 6:45:48 AM