Úrval - 01.05.1953, Síða 10
s
Orval
jörð var breytt í blómlegan
trjágarð. Þama var gott að
lifa. Þeim fæddust þrjú böm.
Það má öllum ljóst vera, að
þessi höfimdur, sem ekki gerði
kröfu til að vera skáld, var
það engu að síður. Þessi fyrr-
verandi tugthúslimur, sem
skorti hugrekki til uppreisnar
gegn því þjóðfélagi, er hafði
leikið hann svo grátt, dró upp
mynd af auðnuleysingja, sem
enginn fær gleymt. Þetta gerði
hann í næstu bók sinni, Wer
einmcd aus dem Blechnapf
frisst, sem er lýsing úr fangels-
inu. Iivorttveggja er það, að
sá einn gæti sagt svona frá, er
sjálfur hefur verið fangi, og
einnig er hitt ljóst, að einung-
is skáld gæti skapað slíka
persónulýsingu. Svo ístöðulaus
og vesöl er þessi persóna, svo
ósvífinn og huglaus í senn, svo
gjörspillt, og þó svo átakan-
lega mannleg. Við fáum ekki
að vita, hvernig hann varð
svona, fáum aðeins að sjá
hvernig hann er nú. Það er
ógleymanlegt. Því að skyndi-
lega rennur það upp fyrir
manni, hvernig ástatt er fyrir
þessum Villa Kufalt: Hann er
einmana, svo algerlega ein-
mana, að enginn maður getur
verið meir einmana, svo mis-
kunnarlaust yfirgefinn af öll-
rnn.
Kvöldið, sem hann var lát-
inn inn til að byrja nýja
fangavist, skríður hann í flet-
ið í klefanum ánægður yfir
því að hafa loksins aftur eitt-
hvað fast við að vera.
*
Þeir sem töldu, að snilld
Fallada lægi einkum í lýsing-
um hans á flibbaöreigum og
tugthúslimum, lásu með nokk-
urri furðu næstu bók hans Wir
hatten mal ein Kind. Þetta er
sveitasaga frá eyjunni Riigen
og þar segir m. a. frá hinum
undarlega heiðingja, Jóhannesi
Gántschow, sem er að sínu
leyti jafn einstæður í þýzkri
skáldsagnalist og Pinneberg og
Villi Kufalt.
En auk hinna töfrandi mann-
lýsinga hefur bókin að geyma.
heillandi lýsingar á sveitinni:
gömlum, uppgrónum trjágörð-
um, gróðursælum högum í
stormum vetrarnæturinnar og
hestum á beit. Skáldið birtir
okkur hér hið ævintýralega,
dularfulla í tilverunni. Þessi
bók er það ágætasta sem frá.
hendi Fallada hefur komið.
Næstu árin skrifaði hann
ævintýri og nokkrar stuttar
sögur. En 1938 kom út sagan
Wolf unter Wölfen, 1200 blað-
síðna verk, þar sem gefin er
ýtarleg lýsing á hörmungunum
og ólgunni í Þýzkalandi á dög-
um gengishrunsins mikla. Og
1940 kom svo „Hackendahl
gefst aldrei upp“, saga um
vagnekil í Berlín, sem arkar til
Parísar og heim aftur.
I þessari bók lýsir Fallada
einnig ungum atvinnuleysingj-
um, sem í örvæntingu sinni