Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1988, Page 131

Andvari - 01.01.1988, Page 131
andvari MENNING OG BYLTING 129 tengdust með nýjum hætti, mannlegum orðum var stefnt gegn yfirsettri orð- ræðu. Skáldin leystu tungumálið úr viðjum, afhjúpuðu dulin teikn að baki orða, opinberuðu á þann hátt leynda og óræða einingu. Oft má greina aðkenn- ingu þess að sjálfsvitundin sé uppspretta tungumáls og merkingar. Slík kennd er þó einatt bæld eða blönduð yfirlýstum rétttrúnaði. Leynd og ljós ritskoðun kom í veg fyrir að gengið væri veginn á enda. Um og eftir seinustu aldamót losnaði smám saman um hömlur. Aðkenning breyttist í vissu. Sjálfsvitundin varð að frumlægum veruleika og um leið erfiðu viðfangsefni jafnframt því sem tungumálið glataði gagnsæi sínu og stoð í frum- texta. Eyður sköpuðust í orðræðu veruleikans. í ýmsum textum nýs tíma er tungumálið ógagnsætt, munaðarlaust. Jafnframt breyttust viðhorf manna til hins illa. Áður hafði það tengst guðdómlegu skipulagi. Nú lýsti það vanda sjálfsins frammi fyrir myrkum öflum sem ýmist áttu upptök sín í vitund eða náttúru en tengdust öðru fremur fjarveru skýlausrar merkingar. Táknkerfi sem tengst höfðu á rökrænan hátt en byggst endanlega á trúarlegri vissu voru tekin til endurskoðunar. Vensl hins sanna og fjarstæðukennda, rökvísa og óskyn- samlega breyttust. Þekkingarkerfið hafði byggst á einföldum venslum mælanda og viðmælanda. Handhafi orðsins skipaði stöðu frumlags er tjáir en móttakandi þess stöðu and- lags sem er tjáð. Formgerðin hafði verið guðfrœðileg í þeim skilningi að sann- leikur herrans drottnaði yfir þrælnum — orðræða hans dæmd til þagnar eða bannfærð, rekin út í tómið. Um aldamótin breyttist þessi einræða í gagnvirka samræðu þar sem orð hvors aðila um sig urðu jafngild. Andstæður störfuðu með nýjum hætti, tími kreppu, lausungar og umskipta rann upp. Ástæðan var meðal annars sú að tómarúm hafði skapast. Pekkingarkerfið huldi ekki lengur til fulls reynslu manna. Þrár sem áður voru göfgaðar eða bannsettar brutust upp á yfirborðið og ógnuðu öllu jafnvægi með tómleika sínum og andstöðu gegn túlkun. Það var eins og hinn gamli merkingarheimur hefði „sýkst“ og misst mátt sinn. Skáldsaga Jóns Trausta, Leysing (1907), lýsir upplausninni að nokkru leyti. í henni er meðal annars fjallað um verslunardeilur og þjóðfélagsbreytingar. Al- þýðuhreyfing rís gegn rótgrónu hefðarvaldi og ber sigur ú býtum, brýtur með því niður stigveldi hins gamla samfélags. Söguhöfundur fer berum orðum um það kerfi er hann lýsir fyrstu veldisárum Porgeirs Ólafssonar verslunarstjóra. bá störfuðu þrjú öfl saman í náinni eining: auðvaldið, ríkisvaldið og andlega valdið. Þau þrifust á „spekt og taumfýsi alþýðunnar“: kaupmaðurinn, dómar- mn og presturinn; hin heilaga þrenning íslensks bændasamfélags. Þessi öfl höfðu orðræðu veruleikans á sínu valdi og réðu því hverjir töluðu, hvernig, um nvað og hvenær. Hagsmunir þeirra voru samsamaðir því sem leyfilegt var og mögulegt í huga fólks. Frávik eins og nýjungar í verslun, útrás hvata og sjálf- stæð hugsun voru af hinu illa, óskynsamleg og ósiðleg, fjarstæðukennd.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.