Andvari - 01.01.1893, Page 69
63
Inngangseyrir.
13. gr. Inngangseyri má verja til að prenta
lög fjelagsins og stofnbrjef þess. Afgangurinn leggst
i fræðslusjóðinn.
Stofnfje.
14. g'i'. Stofnfje má verja til vörukaupa, húsa-
bygginga, vörufiutninga og hvers annars, samkvæmt
tilgangi fjelagsins. Sje stofnfjeð meira en þurfa
þykir til framkvæmda fjelagsins, má lána það móti
tryggu veði og vöxtum. Fulltrúafundur ákveður upp-
hæð vaxtanna. — 15. gr. Af stofnfjenu skal greiða
vexti, 5% árlega, og skulu þeir leggjast á verzlun
fjelagsins með öðrum kostnaði, að svo miklu leyti
sem stofnfjeð stendur ekki annarstaðar á vöxtum.
Gjalddagi á vöxtum er 31. desember. — 16. gr. Eig-
endur stofnfjár fá ekki vexti af því fyr en staðið hef-
ur fullt almanaksár hjá fjelaginu, og ekki nema
eptir stofnbrjefatölu. Þeir vextir, sem eptir þessu
ekki fallatil eiganda stofnfjár, falla til fræðslusjóðs.
— 17. gr. Leggja skal vexti af stofnfje fjelagsmanna
við stofnfje hans, ef hann segir svo fyrir eða hefur
ekki gengið eptir þeim innan 3 rnánaða frá gjald-
daga. Vextir utanfjelagsmanns, sem ekki er gengið
eptir innan 12 mánaða frá gjalddaga, falla til vara-
sjóðs
Fjélagsmannalisti og stofnfjárbólc.
18. g’r. Um leið og menn ganga i fjelagið skal
innfæra nöfn þeirra, stöðu og heimili í þar til gjörða
bók í fjelagsmannalista. Þegar fjelagsmaður skiptir
um heimili eða deildir, skal strax tilkynna það stjórn-
arnefndinni, sömuleiðis ef fjelagsmaður deyr. Skal
stjórnarnefndin innfæra allar slíkar breytingar í fje-
lagsmannalistann. — 19. gr. Um leið og fjelags-