Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1920, Blaðsíða 12
4
um vald yfir ástríðum og geðshræringum, sem sjeu mann-
inum af guði gefnar til þess hjá trúuðum manni að komast
undir stjórn skynseminnar.
Pirke Aboth eða ummœli feðranna. Það er safn af um-
mælum, lífsreglum og spakmælum fræðimanna Gyðinga frá
ýmsum tímum, sumra er lifðu fyrir Ivrists burð, en flestir
æðilöngu síðar.
Sagan um Aliikar. Það er frásaga um vanþakldæti, er
sýnir hve mikið ilt sá löstur leiðir af sjer. Yafasamt er um
aldur ritsins í núverandi nrynd, en nýlega hefir fundist æfa-
gönrul heimild, sem er miklu eldri en það timabil, sem hjer
er um að ræða.
Þá er komið að þriðja og langmerkilegasta flokki rang-
feðruðu ritanna; það eru opinberunarritin. Það er sá ílokk-
urinn, sem ætlunin var að skýra bjer frá.
Opinberunarrit er þýðing á griska orðinu ánonáhyi?. Er
það myndað af sögninni ájroy.akvmeiv, sem þýðir að afhjúpa
eða opinbera. Felst því í nafninu, að um rit sje að ræða,
sem fræða vilji menn um hið marga og mikilvæga, sem þá-
tíminn áleit öllum hulið, nema hinum fáu, sem fyrir guð-
dómlega afhjúpun og opinberun hafði verið leyft að skygn-
ast inn í það, sem dauðlegum mönnum annars var ekki
unt að þekkja eða vita neilt um.
Opinberunarritin eru ýmist talin 8 eða 9, auk Daníels-
bókar í gamla teslamentinu, sem nýrri rannsóknir lelja til
þessa ílokks. Það sem ber á milli með töluna er, hvort Æfi
Adams og Evu skuli talið til opinberunarritanna eða ekki.
Sumir gera það, en aðrir til skáldrita í sögubúningi, eins og
lijer er gert, þar eð efni ritsins gerir það miklu eðlilegra að
skipa því undir þann ílokkinn.
Opinberunarritin eru þessu samkvæmt hjer alls talin 8,
auk Daníelsbókar, og eru þau þessi:
Tvær bækur kendar við Enok. Önnur nefnd fyrri eða
eþíópska Enoksbók, en hin siðari eða slafneska Enoksbók
eða leyndardómabók Enoks.
Erfðaskrár œltfeðranna 12 (12 patriarka testamentin).
Gyðinglegu Sibylluspárnar.
Himnaför Móse.
Tvær bækur kendar við Barúk. Önnur nefnd opinberun
Barúks sýrlenska eða önnur Barúksbók, en hin þriðja Bar-
úksbók eða opinberun Barúks gríska.
Fjórða Esrabók.