Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1920, Blaðsíða 153
145
Því að fyrst verður myrkrinu eytt,
og (síðan) grundvallað um eilífð Ijós rjettlætisins frammi
fyrir drotni andanna«.
Sbr. § 14, 3.
§ 17. Heimsendir.
1. Hvers vegna heimurinn ferst.
Eins og áður hefir verið skýrt frá (§ 7. og § 11.), kcmur
meðvitundin um synd og spillingu heimsins víða fram í opin-
berunarritunum. Pessi heimur, þessi öld, var aðsetur syndar,
neyðar og ófullkomleika. 111 völd höfðu náð þar yfirráðum
og heimurinn var fullur af eymd og sorg og spillingu. Þess
vegna hlaut heinnirinn að farast, til þess að framtíðarvon-
irnar mættu rætast, vonirnar sem hundnar voru við komandi
heim eða komandi öld, liina veröldina. Kemur þessi skoðun
meðal annars fram í þessum ummælum Sibylluspánna:
»En þegar trú og guðrækni hverfur frá mönnunum og
rjeltlæti er falið í heiminum, og menn verða guðníðingar og
liía á vanhelgum fyrirtækjum, fremja smánarverk og breyta
illa og bleyðilega; enginn gefur gaum að hinum guðhræddu,
heldur lífláta menn þá alla, blindaðir af heimsku sinni, gleðj-
ast yfir ofbeldisverkum og snúa höndum sínum að blóðsút-
hellingum; þá vitið með vissu, að guð er ekki Iengur misk-
unnin einber, heldur gnístir hann tönnum í reiði og eyðir
þegar í stað öllu mannkvninu með ógurlegu báli.
ó, ógæfusömu, dauðlegu menn! Látið ekki þessa hluti
verða og neyðið ekki liinn mikla guð til þessara reiðiverka.
Látið heldur hverfa sverð og slunur, manndráp og olbeldis-
verk, og þvoið líkami yðar í sírennandi ám og leitið fyrir-
gefningar á fyrri verkum yðar með upplyftum liöndum og
biðjið með lofgerð um fyrirgefningu á yðar mikla óguðleika.
Þá mun guð sjá sig um hönd og ekki eyða yður. Hann
mun enn einu sinni stilla reiði sína, ef þjer undantekningar-
laust iðkið dýrmæta guðrækni í hjörtum yðar. En ef þjer
eruð illir i huga og hlýðið mjer ekki, heldur gleðjist í guð-
leysinu og heyrið öll þessi orð með eyrum, sem hneigjast
að illu, þá mun eldur koma yfxr alla jörðina og máttugt tákn
með sverði og hásúnu við sólarupprás. Öll jörðin mun heyra
hávaða og ógurlegt öskur. Og hann mun brenna alla jörðina
og eyða öllu mannkyni, og öllum borgunum og ánum og
19