Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1920, Blaðsíða 126
118
inga sem Messiasarnöfn. Heiti þessi eru: Hinn snmrði, hinn
rjeitláti, lxinn úivaldi og mannssonurinn.
»Hinn smurðk, á arameisku messiha (meschicha), á he-
bresku ham-massiah (maschiach), á grísku 6 xQiazóg, var að
visu vel þekt orð frá gamla testamentinu. »Smurði prestur-
inn« var æðstipresturinn nefndur1) og drottins smurði var
konungstitill.2 3) En elsta dæmi þess, að farið sje að nota
heili þetta í sjerstakri merkingu sem nafn á framtíðarkon-
unginum þráða, höfum vjer í 1. Enoksbók.8)
»Hinn rjeltláik er í 1. Enoksbók4) notað sem Messíasar-
heiti, einnig »hinn útvaldk, og þekkjast þess áður ekki dæmi
í bókmentum Gyðinga. Skulu hjer teknir helstu staðirnir í
bókinni, er lýsa hinum útvalda:
»49 1 Visku er úthelt eins og vatni,
og dýrðin dvínar ekki frammi fyrir honum að eilífu.
2Þvi að hann er máttugur í öllum leyndardómum rjett-
lætisins,
og ranglæti mun hverfa eins og skuggi
og ekkert framhald eiga.
Þvi að hinn útvaldi stendur frammi fyrir drotni andanna,
og dýrð hans varir frá eilífð til eilífðar
og vald hans frá kynslóð til kynslóðar.
81 honum býr andi vísdóms,
og andi sá, sem veitir þekkingu,
og andi skilnings og máttar,
og andi þeirra, sem sofnað hafa í rjettlæti.
4 Og hann skal dæma leynda hluti,
og enginn skal geta talað lygi frammi fyrir honum,
því að hann er hinn útvaldi frammi fyrir drotni andanna
samkvæmt velþóknun hans.
53 c Og þessi fjöll, sem augu þín hafa lilið,
járnfjallið, eirfjallið og silfurfjallið,
gullfjallið, fjallið úr mjúkmálmi og blýfjallið,
öll þessi skulu verða sem vax frammi fyrir eldi
í nærveru hins útvalda,
eins og vatn, sem rennur niður hæð,
og þau skulu afllaus verða frammi fyrir fótum hans.
1) 3. Móseb. 4, 3. 5. o. v.
2) 1. Sam. 24, 7. o. v.
3) 48, 10.; 52, 4.
4) 38, 2.; 53, 6.