Hugur - 01.01.1988, Page 91

Hugur - 01.01.1988, Page 91
GUNNAR HARÐARSON HEIMSPEKI OG FORNMENNTIR Á ÍSLANDI Á 17. ÖLD* Um fræðaiðkun Brynjólfs biskups Sveinssonar Einhverjum kynni að þykja það ofmælt, ef ekki beinlínis þver- sagnakennt, að halda því fram að Brynjólfur biskup Sveinsson (1605-1675) hafi verið einn mikilvirkasti fræðimaður sinnar tíðar á íslandi þegar lítið sem ekkert af verkum hans komst á prent, bæði sökum þess að honum var ekki mjög tamt að ljúka þeim sem hann byrjaði á og eins vegna hins að hann byrjaði sjaldnast á þeim sem hann lagði drög að. Verða menn þá að hafa hugfast að aðstæður til umsvifamikillar útgáfu- og fræða- starfsemi voru tæpast fyrir hendi í Skálholti um miðja sautj- ándu öld. Þó að Brynjólfi yrði lítið úr verki eiga íslendingar fræðimennsku hans að þakka að enn eru varðveitt mörg bestu skinnhandrit íslensk, til að mynda Flateyjarbók og Konungsbók Eddukvæða, en þeim safnaði Brynjólfur í því skyni að gefa þau út á prenti. í fræðaiðkun Brynjólfs má sjá stöðugt samspil tveggja menningarheima, hins norræna og hins latneska. 011 menntun Brynjólfs byggðist á hinum lameska, lærða heimi. En einmitt í krafti þessarar menntunar var Brynjólfur fær um að skilja hinn menningarheiminn sem hann tilheyrði, hinn íslenska. Segja má að starf hans hafi miðað að því að brúa bilið * Greinarkorn þetta er að stofni til fyrirlestur sem fluttur var á dönsku á málþinginu Latínubókmenntir á Norðurlöndum eftir siðskipti á Biskops Arnö í Svíþjóð í ágústbyrjun 1987. I þeim fyrirlestri voru dregnar saman helstu niðurstöður, og nokkru aukið við, af málþingi Heim- spekistofnunar um heimspeki Brynjólfs Sveinssonar sem haldið var í Reykjavík í júlí 1986 í samvinnu við Institut for græsk og latinsk middelalderfilologi við Kaupmannahafnarháskóla. Þaðan komu fræði- mennimir Sten Ebbesen, Frits Saaby Pedersen og Lars B. Mortensen. Þingið sátu, auk þeirra og greinarhöfundar, Jakob Benediktsson og Sigurður Pétursson. Um Brynjólf og Ramus má einnig lesa í grein minni „Verkefni íslenskrar heimspekisögu", Skímir 1985, bls. 45-70. — Mikael Karlssyni og Páli Skúlasyni þakka ég yfirlestur og gagnlegar ábendingar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.