Hugur - 01.01.1988, Page 112
HEIMURINN EINS OG HANN ER
HUGUR
um hið gefna og hafa látið svo lítið að orða ágreiningsefnið upp
á nýtt og tala nú um „gninneiningar“ (ground-elements) og
„frumskýrslur“ (protocol-sentences).5 En með einum eða
öðrum hætti er mikið um það talað að komast niður á hinar
upprunalegu og ómenguðu eindir sem öll þekking er sett saman
úr. Það gefur til kynna að þekkingaröflun sé vinnsla á hráefni
yfir í fullbúna vöru; og skilningur á þekkingu er því talinn
krefjast þess að við komumst að raun um nákvæmlega hvert
þetta hráefni er.
Fyrirfram virðist þetta vera ofureinfalt. Carnap vildi að
grunneiningamar í kerfi sínu í Aufbau væru sem næst því að
vera frumforsendur allrar þekkingar.6 Til þess að komast að
þeim segir hann að við verðum að hreinsa venjulega reynslu af
öllum niðurstöðum hvers konar greiningar á því sem við í
upphafi verðum fyrir. Þetta þýðir að þurrkaður er út allur
skilsmunur gerður eftir rúmi eða eiginleikum, svo að ein-
ingamar í kerfinu em stórir kekkir, sem hver um sig hefur að
geyma alla reynslu manns á tilteknu augnabliki. En þetta jafn-
gildir því að fella reynsluna í tilbúna tímaröð og Camap virðist
telja að það sem er í raun og vem gefið samanstandi ekki af
þessum stóru kekkjum, heldur af einum samfelldum straumi.
En ef þessi leið er farin að hinu gefna er þar með gert ráð
fyrir því að þekkingar verði einungis aflað með sundurgrein-
ingu (analysis). Aðrir heimspekingar líta fremur svo á að
hennar sé einungis aflað með samantekt (synthesis) og að hið
gefna sé mergð öragna sem við verðum að fella saman til þess
að öðlast þekkingu. Enn aðrir hugsuðir telja að báðar þessar
skoðanir gangi of langt, og að heimurinn sé gefinn í kunnug-
legum, meðalstómm bitum sem séu bæði greindir að og tengd-
ir saman. í skoðunum á hinu gefna birtast þannig afbrigði af
fmmspekilegri heildarhyggju, eindahyggju og fjölhyggjum
5 Lykilhugtak (Aufbau (sjá næstu neðanmálsgrein). í næstu efnisgrein
gefurGoodman fullnægjandi skýringu á hugtakinu íþessu samhengi.
6 Maðurinn er Rudolf Camap (1891-1970), þýskur heimspekingur sem
fluttist til Bandaríkjanna á nasistatímanum og starfaði þar. Einn helsti
málsvari rökfræðilegrar raunhyggju 20. aldar. Verkið er Derlogische
Aufbau der Welt (Meiner: Berlin, 1928) og er það fyrsta meginrit
hans.
110