Hugur - 01.01.1988, Síða 119
HUGUR
NELSON GOODMAN
lýsing nær til eins þeirra. Munurinn á vini mínum og mér er í
stuttu máli sá reginmunur sem er á algildishyggju og afstæðis-
hyggju.
Þar eð dulspekingurinn er gagntekinn af því hvemig heim-
inum er háttað, og hann kemst að raun um að sá háttur verður
ekki tjáður, þá hlýtur hann á endanum að bregðast við spum-
ingunni hvemig heimurinn er með þögn, eins og hann kannast
við. Þar eð ég hef fremur áhuga á háttum heimsins, hlýtur
viðbragð mitt að vera það að setja saman eina lýsingu eða fleiri.
Svarið við spumingunni „Hver er háttur heimsins? Hverjir era
hættir heimsins?“ er ekki „suss“, heldur spjall.
6. Eftirmáli.
í inngangi þessarar ritgerðar talaði ég um að myndakenningin
um tungumálið væri bersýnilega ósönn. Með nokkurri sjálfum-
gleði lýsti ég yfir því að lýsing gefi ekki mynd af því sem lýst
er, og endurspegli ekki einu sinni gerð þess sem hún lýsir. Rot-
höggið á myndakenninguna um tungumálið var að heimurinn
eins og hann er verði ekki settur fram eða endurspeglaður með
lýsingu. En síðan höfum við uppgötvað að þetta er ekki heldur
gert með myndum. Ég byrjaði á því að kasta frá mér mynda-
kenningunni um tungumálið og endaði með því að taka upp
tungumálskenninguna um myndir. Ég hafnaði myndakenning-
unni um tungumálið á þeirri forsendu að gerð lýsinga væri
ekki í samræmi við gerð heimsins. En svo dró ég þá ályktun að
ekki væri til neitt, sem kalla mætti gerð heimsins, til þess að
vera í samræmi eða ósamræmi við. Menn gætu sagt að mynda-
kenningin um tungumálið væri jafnósönn og jafnsönn og
myndakenningin um myndir; eða með öðram orðum, það sem
er ósatt er ekki myndakenningin um tungumálið heldur tiltekin
algildiskrafa bæði um myndir og tungumál. Ef til vill lærist
mér síðar meir að það sem virðist alveg bersýnilega rangt er
það stundum ekki.9
Logi Gunnarsson þýddi.
9 Jörundi Guðmundssyni, Mikael M. Karlssyni, Sigurði Kristinssyni,
Vilhjálmi Árnasyni og Þorsteini Gylfasyni vil ég þakka ómetanlega
aðstoð.
117