Hugur - 01.01.1988, Page 122
RITDÓMAR
HUGUR
upprunnin í uppreisn Karls Popper gegn þessum hefðbundnu raun-
hyggjukenningum. Kenningum Poppers sjálfs eru gerð afar góð skil og
síðar er sagt frá kenningum Lakatos, Kuhns, Feyerabends og Laudans. En
þessir fjórmenningar hafa haft forystu í þeim umræðum sem hófust með
kenningum Poppers. Bókinni lýkur á kafla um formgerðarstefnuna í
vísindaheimspeki.
Eg fæ ekki betur séð en Erlendur geri þeim heimspekingum sem hann
fjallar um rétt til. Hann endursegir kenningar þeirra, greinir aðalatriðin frá
aukaatriðunum og segir frá rökum, sem hafa komið fram gegn þeim. Allt
þetta gerir hann, að því er mér virðist, af fullkomnu hlutleysi og án þess að
leggja neinn endanlegan dóm á þessar kenningar. Þetta ber ekki að skilja
svo að í bókina sé ekkert að sækja sem ekki má eins finna annars staðar,
því þótt Erlendur eyði mestu máli í það að endursegja kenningar annarra,
þá tekst honum býsna vel að greina hismið í þeim frá kjamanum og gera
skilmerkilega grein fyrir aðalatriðum þeirra þannig að lesandinn fái í senn
skilning á og yfirsýn yfir þau vandamál sem rædd eru. Auk þess hefur
bókin þann sjaldgæfa kost að vera gagnorð og laus við útúrdúra.
Vísindaheimspeki er kynning á vissum umræðuhefðum innan vísinda-
heimspekinnar og höfundur bætti nær engu við frá eigin brjósti. Enda
yflrlýst ætlun hans að semja kennslubók, sem lýsir mismunandi sjónar-
miðum á eins hlutlausan hátt og unnt er.
Atli Harðarson
Arnór Hannibalsson
UM RÆTUR ÞEKKINGAR
SIÐFRÆÐIVÍSINDA
HEIMSPEKIFÉLAGSVÍSINDA
RÖKLEG AÐFERÐAFRÆÐI
Útgáfa höfundar, Reykjavík 1985
ÞEKKING OG AÐFERÐ
UM FJÖGUR RIT EFTIR ARNOR HANNIBALSSON
Rómverskur orðskviður segir að skilningur lesenda skapi bókum örlög.
Mér hefur þótt nokkuð í bresta að þessi sannindi væru höfð að leiðarljósi
við bókagagnrýni hérlendis. Á miklu ríður til dæmis, þegar fræðirit eiga í
hlut að þau séu ekki metin til annars verð en til er ætlast af höfundarins
hálfu. Gagnrýnandinn verður að leitast við að semja sig að hinum
væntanlega lesendahóp og leggja dóm á verkið þaðan, út frá samræminu
milli ætlunar og árangurs höfundar. Mun uppskorið eins og til var sáð?
Þau fjögur rit Arnórs Hannibalssonar sem ég hef fyrir framan mig í
dag, Um rætur þekkingar, Siðfræði vfsinda, Heimspeki félagsvfsnda og
120