Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1941, Side 47

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1941, Side 47
FJÓLUHVAMMUR 23 kindahornum. Eins gerðu dreng- irnir á næstu bæjum, þar á meðal Steini Ásdísar. Og hver um sig spertist við að eignast sem flest horn. Þá tók eg mig til og klipti smákringlur úr pappa og krotaði á þær alls konar myndir og rúnir, og lét sem þetta væri peningar. Fyrir þessa peninga keypti eg horn- in af leikbræðrum mínum, og gerð- ist brátt eins ríkur eins og þeir gerðust fátækir. En alt í einu hættu þeir að selja mér horn sín. Ari í Odda var kominn á stað með nýjan gjaldeyri. Það voru kringl- óttar blýplötur á stærð við tuttugu og fimm-eyring. Hann virtist hafa ógrynni af þeim, og keypti hornin okkar hinna, hvað sem þau kost- uðu. Það var, held eg, Steini Ás- dísar, sem komst að því, hvernig auður Ara var til kominn. Ari, nefnilega, hnuplaði selahöglum frá föður sínum og flatti þau út með hamri. Og nú var ekki annað en vera sér út um selahögl og renni- lóð til að verða ríkur, og viti menn! £>að kom brátt að því, að horn feng- ust ekki keypt fyrir blýpeninga. En eg var ekki alveg af baki dottinn. Eg tók að krota á blýplöturnar. Hinir drengirnir reyndu að leika það eftir mér, en árangurslaust. Mínar plötur voru fallegastar og eg varð aftur einvaldur í þessum braskleik okkar. (Þögn). Aðalbjörg: Og svo — Ragnar: Svo var það einu sinni, að eg sat hérna upp á klöppinni. Hún var þá hærri en nú. Það var a sumardegi í blíðu veðri, eins og uúna, og eg horfði yfir ásinn út í Ejóluhvamm. Eg sá Tröllasæti, íjörðinn, Ausuna, hafið og himin- inn, og þá hugsaði eg með mér — Aðalbjörg: Þú hugsaðir með þér— Ragnar: Eg hugsaði með mér, að ef allir drengir í heimi kæmu með alla pappapeninga og blýpeninga og silfurpeninga og gullpeninga, sem til eru, og byðu mér þá — (Hlær). Aðalbjörg: Að hverju ertu að hlæja, Ragnar? Haltu áfram. Ragnar: Ef þeir byðu mér þá fyrir að mega þurka út þessa fallegu mynd, þá segði eg þeim að fara beint til fjandans með alla sína peninga. Aðalbjörg: Eg trúi því! Ragnar: Seinna fórum við, nokkr- ir drengir í berjamó suður fyrir Fellsá. Um morguninn gátum við stiklað á steinum yfir hana, en þeg- ar við ætluðum heim, um kvöldið, hafði hún vaxið, svo við máttum bíða með að komast yfir hana, til næsta morguns. Við höfðum allir tekið með okkur ofurlítinn bita í nesti; en Ari í Odda langmest. Og eftir að við vorum orðnir vel svang- ir, fórum við að bjóða Ara peninga fyrir matarbita; en hann bara hló að okkur. Svo skifti hann matnum jafnt milli allra — Aðalbjörg: Og þú heldur að Ari hefði farið eins að, þó blýið ykkar hefði verið gull. Ragnar: Eg er viss um það. Hann var barn og vissi að matur- inn var meira virði en blý — eða gull-kringlur. Eg held að menning- in sé í svo óreyndri æsku, að við eigum eftir að vaxa upp úr þessu aurabraski. Aðalbjörg: Heldurðu að þú sért vaxinn upp úr því? Ragnar: Eg vona það — að svo miklu leyti sem einstaklingurinn fær að vaxa upp, á meðan þjóðirn- ar eru í peninga-leik. (Stendur upp.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.