Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1941, Blaðsíða 147
ÞINGTÍÐINDI
123
aSa þingnefnd er áður áttu sæti í sögu-
nefndinni. Fanst ýmsum óviðkunnanlegt
að sögunefndarmenn væru kvaddir til starfs
í þessari þingnefnd sem hafa skyldi það
hlutverk að rannsaka gjörðir sögunefndar
á árinu; töldu þeir heppilegra að aðrir
menn óháðir málinu skipuðu þessa nefnd.
Mrs. Backman lagði til og H. Hjaltalín
studdi breytingartillögu um 5 menn ut-
an hinnar fyrri sögunefridar til að fjalla
Um þetta mál. Var þessi tillaga rædd um
hríð. Að lokum gjörði Bjarni Dahlman
breytingartillögu við br.tillögu studda af
Ara Magnússyni, þess efnis að 3 menn úr
fyrverandi sögunefnd að viðbættum öðrum
tveimur, sem ekki hefðu verið í þeirri
nefnd, væri falið þetta mál til meðferðar.
Var þessi tillaga samþykt. Voru þá þessir
útnefndir:
Séra Guðmundur Árnason, Ásmundur P.
Jóhannsson, Dr. Sig. Jfll. Jóhannesson,
Elias Elíasson, GIsli Jónsson.
Ragnar H. Ragnar lagði til að útnefn-
ingu skyldi lokið. Var sú tillaga studd af
Sveini Thorwaldson. Lýsti þá forseti ofan-
greinda menn rétt kjörna I milliþinganefnd
I sögumálinu.
Sveinn Pálmason, gjaldkeri sögunefndar
ejörði munnlega grein fyrir fjárhag sögu-
fyrirtækisins eins og hann horfir við hérna
niegin hafsins. Hafði bókin selst vel, en
allmikið fé var enn útistandandi hjá út-
sölumönnum bókarinnar viðsvegar úti um
bygðir, Væri þessvegna ekki unt að gjöra
fulinaðarskýrslu. pó kvað ræðumaður
næstum $600.00 innkomna í sjóð sögu-
nefndar.
Otbreiðslumál. Ásm. P. Jóhannsson
lagði til að 5 manna nefnd sé skipuð til
að fjalla með útbreiðslumál.. Var till.
studd af Sveini Thorwaldson og samþykt.
Hlutu þessir útnefningu forseta:
Mrs. María Björnson, GIsli Sigmundson,
Rjarni Daiman, Thor Marvin, S. S. Laxdal.
Fjárniálanefnd. Árni Eggertson lagði
f'l og Gisli Sigmundson studdi, að forseti
skipi þriggja manna fjármálanefnd. Sam-
bykt. Voru þessir tilnefndir:
Ásmundur P. Jóhannsson, ólafur Péturs-
s°n, Sveinn Thorwaldson.
Fræðslumál. Kristján Indriðason og
Thor Marvin lögðu til að forseti skipi
fimm manna fræðslumálanefnd. Var til-
lagan samþykt. Voru þessir skipaðir:
Mrs. Einar P. Jónsson, Einar Magnús-
s°n, Haraldur ólafsson, Gunnar Sæmund-
son, Mrs. Eyjólfur Melan.
Samvinnumál við ísland. Kristján
Indriðason og Thor Marvin lögðu til að
forseti skipi fimm manna nefnd til að at-
huga samvinnumál við ísland. Voru þess-
ir skipaðir af forseta:
Séra Guðmundur Árnason, Grettir L. Jó-
hannsson, Árni Eggertson, Ólafur Péturs-
son, Sveinn Thorwaldson.
Ótgáfumál. Árni Eggertson og Thor
Marvin lögðu til að forseti skipi fimm
manna útgáfumálanefnd. Voru þessir út-
nefndir:
Bókanefnd. Vara-forseti Gisli Jónsson
og Ari Magnússon lögðu til að slept sé að
útnefna í bókanefnd að þessu sinni. Ás-
mundur Jóhannsson gjörði breytingartill
studda af Árna Eggertsyni að forseti skipi
þrjá menn í bókasafnsnefnd. Var tillagan
samþykt, og þessir tilnefndir af forseta:
Gunnbj. Stefánsson, H. T. Hjaltalín og
Bergth. Thorvardson.
Forseti bauð þá velkominn til þings séra
Sveinbjörn Ólafsson frá Thief River Falls.
Minn., og bauð honum að ávarpa þingið.
Séra Sveinbjörn flutti þá lipra ræðu á ís-
lensku máli. Afsakaði hann sitt íslenska
málfar með yfirlýsing um að hann hefði
um tuttugu ára skeið verið fjarvistum frá
íslensku félagslífi. Reyndist afsökun prests.
ins ástæðulaus hæverska. þvi málið lifir
enn á vörum hans. Var ræða hans glögg-
ur vottur um gildi ræktarseminnar við Is-
lenskt mál og menning. Eigum við að
vera þakklát fyrir hinn íslenska menningar-
arf, sem okkur er I blóði borinn, hvað
ræðumaður. Að hann talaði af einlægni
var ijóst af látbragði hans og orðum.
Fór forseti því næst vingjarnlegum orð-
um um þjóðræknisstarf séra Sveinbjörns.
Hefir hann árum saman unnið að því' máli
í kyrþey og flutt fjölda erinda um Islensk
mál. Var ummælum forseta tekið með
lófaklappi til heiðurs og þakkar séra Svein-
birni.
Voru því næst auglýsingar bornar fram
af Gunnbirni Stefánssyni og Ásmundi P.
Jóhannssyni. Var fundi þá frestað til kl.
9.30 næsta dag, samkvæmt tillögu Árna
Eggertsonar og Sigmundar Laxdal. Fundi
slitið.
PRIÐJI FUNDUR
priðji fundur pjóðræknisfélagsins var
settur kl. 10 f. h. þriðjudaginn 25. febrúar
1941. Fundargjörningur slðasta fundar var
lesinn upp og samþyktur með smávægileg-
um breytingum. Forseti las svohljððandi