Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1941, Blaðsíða 149
ÞINGTÍÐINDI
125
hætt aS treysta dómgreind og fjármála-
hyggindum framkvæmdarnefndar I þessu
fnáli. Bygginguna taldi hann tvímælalaust
meira virSi en þess fjár, sem nefndin hefir
samiS um aS borga fyrir hana. GjörSi
hann ennfremur grein fyrir því hversvegna
hætt var aS starfrækja skólann. Var aSal-
ástæSan sú, aS skólanefnd Winnipegborgar
gjörSi ráSstafanir til þess aS veita kenslu
endurgjaldslaust í 12. bekk, en einmitt sá
bekkur hafSi veriS aSaltekjulind skólans.
Guðman Levy lagði til að nefndarálitið sé
tekið fyrir liS fyrir lið. Tillögu þá studdi
Sveinn Thorwaldson. Séra Guðm. Árna-
son mælti með gjörðum nefndarinnar t
Þessu máli. Mrs. H. Lindal vildi þakka
stjðrnarnefndinni fyrir framtakssemi henn.
ar í þessu máli. Taldi hún æskilegt að
byggingin væri kyr í eigu íslendinga, gæti
Það þannig orðið félaginu til inntekta og
Um leið orðið eins konar heimili fyrir Is-
lenskan félagsskap t Winnipeg. Sveinn
Thorwaldson taldi kaupin á fasteign þess-
ari hafa mælst vel fyrir út um bygðir.
Skólamálið kvað hann hafa snert við-
kvæman streng t hugum íslendinga víðs-
vegar, og hefði þótt sjálfsagt að bjarga
hyggingunni undan hamri uppboðshaldar-
ans.
Mrs. Bergþór E. Johnson og Mrs. H.
Lindal lögðu til að 1. liður nefndarálitsins
sé samþyktur, og nefndinni um leið greitt
Þakkaratkvæði fyrir starf hennar. Var
hðurinn þó enn ræddur um hrtð. Ásmund-
úr P, Jóhannsson lofaðist til að losa félagið
við alla ábyrgð í sambandi við þessi fast-
eignakaup fyrir 15. apríl, ef þingið vildi
ekki þann samning, sem framkvæmdar-
uefndin hefði þegar gjört t þessu máli.
Ölafur Pétursson taldi auðið að fá $5000.00
íyrir bygginguna nú þegar, svo augljóst
v®ri að hér væri um góð kaup að ræða.
Ari Magnússon taldi ekkert athugavert við
fjármálahlið þessa máls, en áleit að nefnd-
in hefði ekki haft leyfi til að taka sér
vald til þess að gjöra slík kaup, væri hér
lagt út á varasama braut, og þetta atriði
Vrði ef til vill notað síðar til fordæmis og
féttlætingar öðru braski nefndarinnar, sem
ekki væri eins heppilegt og þetta kynni að
vera frá fjárhagslegu sjónarmiði félagsins.
Var nú beðið um atkvæði, og fyrsti liður
eíðan samþyktur í einu hljóði.
Voru þá tveir síðari liðir nefndarskýrsl-
unnar sameinaðir I einn, og urðu nokkrar
úmræður um hann. Mrs. H. Lindal benti
á nauðsyn þess að koma upp lestrarstofu
“club room” í byggingunni. Ásmundur P.
Jóhannsson taldi óhjákvæmilegt að selja
húsið ef ekki fengist hagkvæmt lán til að
gjöra félaginu mögulegt að breyta því.
Taldi hann ekki unt að koma fyrir lestrar-
stofu, nema ef vera kynni í kjallarahæð
hússins. ólafur Pétursson tók einnig til
máls. Taldi hann unt að koma fyrir á-
minstri lestrarstofu með nýrri skipun her-
bergja á fyrstu hæð hússins pegar hér
var komið lögðu þeir Árni Eggertson og
Carl Jónasson tii að síðari liður skýrslunn-
ar skyldi samþyktur. Var hann síðan
samþyktur, og málið þannig afgreitt. Var
þá fundarhlé til kl. 1.30 e. h. samkvæmt
tillögu ólafs Péturssonar og Árna Eggert-
sonar.
FJÓRÐI FUNDUR
Fjórði fundur pjóðræknisfélagsins var
settur kl. 2 e. h. Fundarbók var lesin
og samþykt með breyting, sem krafist var
af Arnljóti Olson, að fyrirspurn hans um
það, hvort Jóns Bjarnasonar skóli hefði
nokkru sinni verið starfræktur af Pjóð-
ræknisfélaginu og neitandi svar forseta,
hafði verið bætt inn I fundargjörninginn á
þeim stað sem það mál var til umræðu.
Forseti benti á að Minningarrit um Dr.
Röngvald Pétursson væri nú til útbýtingar
á þingi. Margir notuðu sér tækifærið að
eignast rit þetta sem rifjar upp minning
hins látna leiðtoga féiagsins.
ólafur Pétursson gjörði grein fyrir stríðs.
sparnaðar sktrteinasölu, gat þess að sérstök
nefnd, skipuð Guðman Levy, Ólafi Péturs-
syni, Gretti Jóhannssyni og Árna Eggert-
syni, yngri, hefði mál þetta með höndum.
Hvatti forseti menn til að kaupa þessi skír-
steini, og í sama strenginn tók einnig Ás-
mundur Jóhannsson og lagði hann um leið
fram $40.00 tillag til þessa máls. Taldi
hann það pjóðræknisfélaginu metnaðarmál
að sem mest væri keypt af þessum frí-
merkjum, og sýndi sanna hollustu gagn-
vart landi og þjóð.
Forseti vék úr sæti, til að gefa skýrslu
um Leifs Eiríkssonar myndastyttuna. Er
stytta þessi nú niður komin I Marine
Museum í New Port News, Virginia, og
verður geymd þar uns henni verður ráð-
stafað frekar. Liggur nú frumvarp fyrir
þjóðþingi Bandartkjanna um að taka við
styttu þessari, og fá henni hentugan stað.
Verður styttan, ef frumvarpið nær fram
að ganga, þá skoðuð sem gjöf frá Vestur-
fslendingum til Bandaríkjanna. Skrifari,
sem sat t forseta stóli, lýsti skýrsluna við-