Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1941, Blaðsíða 156
132
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
SJÖUNDI FUNDUR
Sjöundi þing-fundur var settur laust eftir
kl. 1:30 s. d. Fundarg-jörningur árdegis
fundar var lesinn og samþyktur. Séra
Guðmundur Árnason lagði fram álit um
samvinnumál við ísland, í fjórum liðum:
Nefndarálit í samvinnumálinu
Nefndin leyfir sér að leggja fyrir þingið
eftirfylgjandi álit og tillögur:
I.
Nefndin lýsir ánægju sinni yfir því, að
þrfr merkir Vestur-íslendingar, ásamt kon-
um slnum, hafa heimsótt ísland sem gestir
pjóðræknisfélags íslands og Eimskipafé-
lagsins á sfðastliðnu ári. pessir menn eru:
Gunnar Björnsson, sem var gestur pjóð-
ræknisfélagsins, og þeir Árni Eggertson og
Ásm. P. Jóhannsson, sem voru gestir Eim-
skipafélagsins. Skoðar hún þessar heim-
sóknir sem mikilvægan þátt f samvinnu ís-
lendinga austan hafs og vestan.
II.
Einnig stunda fleiri fslenskir námsmenn
nú nám við háskóla f Canada og Banda-
rfkjunum en nokkru sinni fyr. Má skoða
þá alla sem fulltrúa fslensku þjóðarinnar
hér vestra. Vill nefndin leggja til að þing-
ið lýsi ánægju sinni yfir því, að tveir þess-
ara manna, þeir pórhallur Ásgeirsson og Dr.
Friðgeir Ölason flytja erindi á þessu þingi;
og leggur hún til, að stjórnarnefnd félagsins
geri alt, sem hún getur, til þess að gera þess-
um mönnum dvölina hér vestra ánægju-
lega, og greiði götu þeirra á allan hátt, sem
hún getur og þeir kunna með að þurfa.
III.
Viðvfkjandi tillögum og bendingum, sem
felast í meðfylgjandi bréfi frá stjórn pjóð-
ræknisfélags íslendinga til stjðmamefndar
pjóðræknisfélags Vestur-íslendinga, dagsett
27. jan. 1941, vUl nefndin benda á, að
flestar þeirra eru þess eðlis, að þurfa að
athugast rækilega. Vill nefndin leggja til
að stjórnarnefndin taki þessar bendingar til
fhugunar og reyni að hagnýta þær, eftir
þvf sem unt er. Sérstaklega vill þð nefnd-
in leggja til að tilboði hr. Steingríms Ara-
sonar, sem nú er í New Vork, um að ferðast
meðal Vestur-fsl. og flytja fyrirlestra og
sýna hreyfimyndir frá íslandi, ef kringum-
stæður hans leyfa, sé gaumur gefinn, eftir
þvf sem nefndin sér sér fært að styrkja
hann til fararinnar, beinlfnis eða óbeinlfnis.
IV.
Viðvíkjandi ósk pjóðræknisfélags ísl. um
að send verði 300—400 af Tímaritinu, til
útbýtingar meðal meðlima félagsins, viU
nefndi . skora á stjórnarnefndina, að verða
við j.v;ssu, ef mögulegt er, og jafnvel að
auka upplagið, ef nauðsyn krefur, þó að
það hafi nokkurn aukakostnað í för með
sér.
Dagsett 2 6. febrúar 1941.
Guðm. Árnason
Árni Eggertson
S. Thorvaldson
G. L. Jóhannson
ó. Pétursson.
Jóhannes Húnfjörð og Ásm. P. Jóhannsson
lögðu til að nefndarálitið sé tekið fyrir lið
fyrir lið. Var það samþykt.
Fyrsti liður var lesinn og samþyktur;
annar liður sömuleiðis.
priðji liður var lesinn og ræddur af þeim
Ásm. P. Jðhansson og Elfas Elfasson.
Lögðu þeir til að nafni Vigfúsar Sigur-
geirssonar sé bætt inn f þennan lið, og til-
boð hans athugað af stjðrnarnefndinni.
Var síðan samþyktur með téðri breyting.
Fjórði liður var sfðan lesinn og samþykt-
ur, og að síðustu nefndarálitið f heild sinni.
Árni G. Eggertson, K.C. reifaði Stríðs
spamaSar skírteina máliS. Kvað hann
takmark stjðrnarinnar að safna 2 miljón-
um dala f Canada til þessara þarfa, af
þeirri upphæð væri Manitoba-fylki ætlað að
safna $520,000. Kvað ræðumaður það
vaka fyrir nefnd þeirri, er þetta mál hefir
með höndum að safna eins mörgum á-
skriftum og unt væri. Kvað hann íslend-
inga. hafa tækifæri til að sýna á þennan
hátt áhuga sinn fyrir þeim málstað, sem
hér væri um að ræða. Hugmyndin væri
að safna $500.00 á meðal íslendinga á
þessum slóðum. Forseti þakkaði ræðu-
manni erindi hans og fræðslu um þetta
mál.
Var nú kominn tilsettur tfmi fyrir kosn-
ingar embættismanna, og það atriði þvf
tekið fyrir. Mrs. H. Lindal gjörði fyrir-
spurn um það hvort henni mundi heimilt
að fara með 7 atkvæði frá Icelandic Junior
League. Framsögumaður kjörbréfanefndar
taldi þetta ekki hægt, lögum samkvæmt.
Las skrlfari þá, samkvæmt tilmælum for-
seta, 21. grein aukalaga félagsins sem fjall-
ar um kjörgengi fulltrúa.
Séra Guðmundur Arnason lagði fram
skýrslu útnefninganefndnr, á þessa leið: