Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1941, Page 100

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1941, Page 100
76 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA Brátt komst þó Jón í allgóð efni, enda veitti honum ekki af því, því hann var stöðugt að hjálpa fólki, sem flutti inn í bygðina, sveitungum sínum, er komu alslausir og leituðu eðlilega til hans. Voru allir bygð- arbúar yfirleitt hjálpsamir við ný- komendur, en þó mun Jón í því hafa skarað fram úr öllum. Bæði á fyrstu árum og síðar tók hann á móti heilum fjölskyldum, fæddi þær um lengri eða skemmri tíma og bjálpaði þeim til að byrja búskap. Hefir hjálpsemi hans verið mjög rómuð af öllum, sem til þektu, og þó eigi um skör fram. Jón var ekki aðeins mikill dugn- aðarmaður og hjálpsamur, heldur líka forgöngumaður margra fyrir- tækja, sem til aukinnar menningar innan bygðarlagsins horfðu. Hann eignaðist mikið land og kom upp stóru búi. Hann var með fyrstu hvatamönnum að því, að smjörgerð- arhúsi var komið upp í bygðinni. Var hlutafélag stofnað í þeim til- gangi árið 1902 og átti Jón sæti í stjórnarnefnd þess fleiri ár. Einnig var hann einn þeirra, sem gengust fyrir því að hið fyrsta samkomuhús bygðarinnar var reist. Fyrstu all- mörg árin var engin kirkjuleg starf- semi í bygðinni og höfðu þá ýmsir hinna eldri Islendinga þann sið að lesa húslestra eins og þeir höfðu verið vanir að gera á íslandi. Hélt Jón Sigurðsson uppi húslestrum um skeið í skólahúsi, sem var skamt frá heimili hans, og las í Helga postillu. Jón var lesari góður, rómurinn sterkur og skýr. Náttúrlega sóttu nágrannarnir þessar lestrarsamkom- ur hans. Einnig las hann stundum til skemtunar á samkomum, sem haldnar voru, og tók yfirleitt mik- inn þátt í öllu andlegu félagslífi. Nokkru eftir aldamótin voru söfnuð- ir myndaðir innan bygðarinnar. Gekst séra Röngvaldur Pétursson fyrir myndun únítarasafnaðar þar og var Jón Sigurðsson einn af helstu stuðningsmönnum hans í því máli og forseti safnaðarins um mörg ár. Jón var einn þeirra manna, sem maður aldrei gleymir eftir að hafa kynst þeim einu sinni. Hann var meðalmaður á hæð og nokkuð þrek- vaxinn. Svipurinn var hreinn, djarfmannlegur og gáfulegur. Manni varð strax hlýtt til hans þegar mað- ur fór að kynnast honum. Hann var mjög hreinskilinn maður, sagði meiningu sína blátt áfram og hik- laust, hver sem átti hlut að máli. Hann var ör í skapi og nokkuð stórbrotinn og gat eflaust orðið erfiður viðfangs, ef hann mætti mót- spyrnu, sem honum fanst ósann- gjörn. En jafnframt þessum skap- lyndiseinkennum var djúp samúð með fólki yfirleitt, rótgróin trygð við vini og svo algerlega falslaus drenglund, að jafnvel þeim, sem voru honum algerlega ósammála, gat ekki annað en verið hlýtt til hans. Hann var bjartsýnn og talaði aldrei um erfiðleika í því skyni að víla eða kvarta, enda mun hann sjaldan hafa brostið kjark. Hann var gæddur góðlátlegri og skemti- legri kýmnisgáfu, og oft skein glettni úr augum hans, þegar hann hnipti í mann og sagði eitthvað spaugilegt. Hló hann þá oft dátt og hjartanlega um leið. Eg kyritist Jóni fyrst sumurin 1906 og 7. Kom eg þá oft á heimili hans og dvaldi þar stundum dögum saman. Flutti hann þá póst milli þriggja póstafgreiðslustaða og fór
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.