Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Page 11

Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Page 11
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(2) 2012 11 i n g Ó l fU r ÁS g e i r J Ó H a n n eS So n Efninu sem birst hefur í Uppeldi og menntun má skipta í fimm meginflokka. Í fyrsta og langumfangsmesta flokknum eru ritrýndar greinar, sem voru 151 á 20 árum eða réttara sagt 19 árum þar sem fyrsta heftið, afmælisritið, var ekki ritrýnt. Þessi flokkur fékk þó aðeins nýlega heitið Ritrýndar greinar en gekk lengi undir öðrum heitum, svo sem Um fræðilegt efni eða einfaldlega Ritgerðir. Næsti flokkur er óritrýndar greinar, en hann var nokkuð algengur fyrstu ár tíma- ritsins. Þeim var einkum ætlað það hlutverk að segja frá skólastarfi, meðal annars nýbreytni- og þróunarstarfi af ýmsu tagi, eins og kemur fram í orðum ritnefndar í 2. árgangi. Þarna birtust 23 greinar á árabilinu 1993–2000. Þessi flokkur var áberandi á fyrri hluta tímabilsins og gekk undir nöfnum eins og Frásagnir úr skólastarfinu eða Starfið. Sumar greinanna í þessum flokki sýnist mér að hefðu staðist gæðakröfur til ritrýndra birtinga. Hér eru einnig flokkaðar allar greinar 1. árgangs sem ég tel líka að flestar hefðu staðist kröfur til ritrýndra birtinga. Birting óritrýndra greina, ef frá eru taldir þrír ritdómar, féll alveg niður um nokkurra ára skeið. Líklegt er að tilkoma Netlu í ársbyrjun 2002, sem lagði strax áherslu á fjölbreyttar gerðir efnis, hafi valdið því að Uppeldi og menntun breyttist hvað þetta varðar. Nýr bálkur greina, svokallaðra viðhorfsgreina, hefur verið í flestum heftum Upp- eldis og menntunar frá og með 2005. Viðhorfsgreinar eru a.m.k. tvær en oftar þrjár eða fjórar stuttar greinar um afmarkað efni sem ritnefnd ákveður, svo sem um stöðu ein- stakra skólastiga eða um eitthvert málefni innan menntavísinda. Viðhorfsgreinar fara ekki í gegnum ritrýningarferli en hefur verið ritstýrt af ritnefnd eða, í síðustu viðhorfs- þáttum, sérstökum ritstjórum. Eitt slíkt þema var á ensku, um leikskólastigið, þar sem leitað var til fimm erlendra sérfræðinga um málefnið sem skrifuðu þrjár greinar. Efni þess heftis var allt um menntun ungra barna og er þetta líklega eina formlega þemahefti tímaritsins. Annað dæmi um þema sem tekið hefur verið fyrir í viðhorfs- greinum var um Bolognaferlið í háskólum landsins, níu greinar samtals, árið 2010. Þá var tekinn upp sá háttur að ritstjórar viðhorfsgreinanna rituðu sérstakan inngang um viðhorfsflokkinn og ágrip um hann í heild á ensku. Bersýnilegt er að ritnefndir hafa lagt mismikla áherslu á ritdóma því að um nokk- urra ára skeið féll flokkurinn alveg niður en hann hefur nýlega verið endurvakinn af krafti. Þessi flokkur hét á fyrstu árunum Um bækur og námsefni. Mismunandi er hvort þessir dómar hafa verið um eina bók eða fleiri. yfirleitt hafa ritdómar verið um íslenskt efni en nokkrar erlendar bækur hafa þó fengið umfjöllun. Í 2. hefti 2011 birtust tveir dómar um sömu bókina og var annar þeirra svokallaður léttlesinn texti. Ritdómar eru að jafnaði óritrýndir en í fyrra hefti ársins 2012 var þó birtur svokallaður ítardómur, ritrýndur. Ritnefnd vonast til þess að geta birt fleiri ítardóma, annaðhvort sem greinar um tiltekið rit eða samantekt um tvö rit eða fleiri, og að geta styrkt ritrýningarferli um slíkt efni. Meðal viðhorfsgreina árið 2009 voru tvær greinar um ritið Almenningsfræðsla á Íslandi 1880–2007. Með þeim má segja að birst hafi 26 ritdómar á árunum 1992–2011. Auk efnis í þessum meginflokkum hafa þrívegis birst viðtöl við forystumenn Kennaraháskóla Íslands og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Þá voru nótur við lag Jóns Ásgeirssonar og ljóð Stefáns Harðar Grímssonar í afmælishefti og skrá um ritverk Jónasar Pálssonar í sama hefti. Loks má geta þýðingar Gunnars Ragnarssonar á grein Johns Dewey.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.