Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Side 79

Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Side 79
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(2) 2012 79 atli HarðarSon hagnýtra menntarannsókna (e. Centre for Applied Research in Education) við Háskólann í Austur-Anglíu og var líka forseti Bresku menntarannsóknasamtakanna (e. British Educational Research Association). Hann sótti í enska hefð, einkum mennta- heimspeki Richards S. Peters (1919–2011). Þótt bakgrunnur þessara fræðimanna og hugmyndasögulegt samhengi rita þeirra sé áhugavert viðfangsefni er ætlunin hér að fjalla fyrst og fremst um andmæli þeirra gegn kenningum um að það sé mögulegt og æskilegt að skipuleggja námskrá út frá markmiðum, það er að segja gegn hefðinni sem ég hef kennt við þau Bobbitt, Tyler, Bloom og Taba. josEph schwAb Schwab andmælti námskrárfræðum í anda Tylers í þremur þekktum greinum sem birtust á árunum 1969 til 1973. Þær heita: The practical: A language for curriculum, The practical: Arts of eclectic og The practical: Translation into curriculum (endur- prentaðar með lítilsháttar breytingum í Schwab, 1978). Í þessum greinum beindi Schwab spjótum sínum einkum að áherslu námskrárfræðinga á hið fræðilega (e. the theoretical) og sagði að námskrárgerð væri ekki fræðilegt viðfangsefni þar sem hent- aði að hafa hugann við sértæk líkön eða skilgreinda og afmarkaða fleti veruleikans. Hún væri þvert á móti hagnýtt verkefni þar sem þyrfti að takast á við veruleikann í margbreytileika sínum. Í umfjöllun sinni um þessi efni lagði hann áherslu á að heimur skólans væri flókinn heimur með margvísleg tengsl við mannlífið og samfélagið og skólinn gegndi mörgum hlutverkum og skilningur manna á þeim væri takmarkaður. Hann benti líka á að engin fræðikenning næði utan um öll hlutverk skólans. Þær væru í besta falli sértekningar (e. abstractions) sem vörpuðu ljósi á einhverja þætti veru- leikans. Í greininni The practical: Arts of eclectic segir Schwab: Kenningar á sviði námskrárfræði eða um kennslu og nám geta ekki einar sér sagt okkur hvað skuli kenna eða hvernig það skuli gert, því spurningar um slík efni koma upp við raunverulegar aðstæður uppfullar af veruleika sem er einstakur og tilheyrir tilteknum tíma, stað, fólki og kringumstæðum. Kenningar innifela á hinn bóginn ekki slíkan raunveruleika. Það sem gerir kenningar fræðilegar, skipulegar, kerfisbundnar og haganlegar og gefur þeim, síðast en ekki síst, kost á að alhæfa er að þær eru sértekningar. Þær sértaka frá einstökum veruleika með því að horfa fram hjá stórum hluta hans. (Schwab, 1978, bls. 322) Í þessum orðum enduróma andmæli gegn rökhyggju sem finna má hjá Georg Hegel (1770–1831) og eftirmönnum hans og líka hjá öðrum heimspekingum sem sækja inn- blástur til Aristótelesar. Hegel lagði áherslu á að vitund okkar væri takmörkuð og næði ekki að hugsa nema hluta af menningunni, að í heiminum væri meira vit en hugur einstaklingsins næði að höndla og hluti þessa vits væri í samfélagsháttum og samspili sem við hefðum ekki náð að orða. Hagnýt verkefni sem okkur tekst stundum að leysa með viðunandi hætti með yfirvegun og samræðu verða því ekki alltaf leyst
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.