Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Page 14

Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Page 14
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(2) 201214 tímaritið Uppeldi og menntUn tvítUgt og skýrist munurinn af því að sami rýnir rýndi bæði upprunalega gerð og nýja eða endurskoðaða gerð. Almenna reglan er sú að leitað er til tveggja rýna í fyrstu umferð. Þess er gætt að a.m.k. annar ritrýnir af tveimur sé með doktorspróf og að ritrýnar hafi ólíka sýn á viðfangsefnið, til dæmis að annar ritrýnirinn hafi hagnýta reynslu af rann- sóknarefninu en hinn reynslu og þekkingu á hugtökum eða aðferðum. Ef þess þarf er leitað til fleiri ritrýna þannig að það er ekki fátítt að höfundur fái rýni frá þremur. Lengst af voru bara ritrýndar einu sinni þær greinar sem höfundum bauðst að senda inn í endurskoðaðri gerð eða með minni háttar breytingum. Ritnefnd hefur nú tekið upp þann hátt að styrkja rýningarferlið með því að slíkar greinar fari aftur í rýni enda er það gert hjá þeim erlendu tímaritum sem Uppeldi og menntun vill bera sig saman við. Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands var upphaflegur útgefandi tímarits- ins. Árið 2005 urðu Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri formlegir samstarfs- aðilar að útgáfunni og Kennaraháskóli Íslands eða SRR – Símenntun, Rannsóknir, Ráð- gjöf innan KHÍ voru til skiptis skráð sem útgefandi. Með sameiningu Háskóla Íslands og Kennaraháskólans árið 2008 varð Menntavísindasvið Háskóla Íslands útgefandi í samvinnu við Háskólann á Akureyri. Með tilkomu fleiri útgefanda fengu nýir aðilar fulltrúa í ritnefnd á sama hátt og lengst af hefur verið reynt að láta ritnefndina spanna fjölbreytni innan menntavísinda, bæði í rannsóknarsviðum og aðferðum. Tímaritið hefur alla tíð verið gefið út í pappírsútgáfu og selt í áskrift og eins og staðan er nú gerir áskriftarsala talsvert meira en að standa undir prentunar- og út- sendingarkostnaði. Kostnaður við ritstýringu, frágang handrita, yfirlestur og umbrot yrði sá sami þótt tímaritið væri ekki prentað, og við sem að tímaritinu stöndum vitum ekki hvort hægt yrði að selja áskriftir ef tímaritið hættir að koma út á pappír. Útgáfa tímaritsins á vef er nýtilkomin. Ákveðið var að birta tímaritið á vefnum Tímarit.is vegna þess að þar var hægt að setja tímaritið samfellt frá upphafi með lægstum kostnaði. Tímaritið kom fyrst þar inn snemma árs 2011 og er nú birt með um árs birtingartöf. Birtingartöf í EBSCO-host er átta mánuðir og má búast við birtingar- töfin verði samræmd í þessum tveimur gagnasöfnum. Frá og með 2011 – 20. árgangi – var bætt við efnisorðum á íslensku og ensku, auk upplýsinga um það hvenær handrit var fyrst sent til skoðunar hjá tímaritinu og hvenær greinin var síðan samþykkt. Enn fremur eru nú ítarlegar upplýsingar um höfunda, bæði á íslensku og ensku. Lengi var notað heimildaskráningarkerfi kennt við Chicago/Turabian, lagað að íslensku af Indriða Gíslasyni og Baldri Sigurðssyni (1993). Árið 2002 var byrjað að nota hið svokallaða APA-kerfi, kennt við Félag bandarískra sálfræðinga. Hefur það verið notað síðan en þróast eftir því sem nýjungar hafa komið fram. Nú er stuðst við Gagnfræðakver handa háskólanemum, sem er íslensk gerð APA-kerfisins, frágengin af Friðriki H. Jónssyni og Sigurði J. Grétarssyni (2007), en einnig hafa nokkur atriði tekið breytingum í meðförum tímaritsins. Útlit tímaritsins hefur þróast og breyst eins og annað en samt hefur því verið haldið „gamaldags“ með nútímalegum hætti. Með gamaldags á ég við að kápan fær sérstakan lit með hverju hefti. Frá og með 20. árgangi hefur þess líka verið gætt að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.