Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Side 177
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(2) 2012 177
Námskrá í heilsurækt
inngAngur
Börn og unglingar sem hreyfa sig lítið, hafa lítið þrek og of hátt hlutfall fitu í líkama
með tilliti til aldurs, eru líklegri til að þróa með sér áhættuþætti tengda hjarta- og æða-
sjúkdómum en aðrir. Með daglegri hreyfingu og réttri næringu er hægt að minnka
fitumagn líkamans, stuðla að hagstæðri líkamsþyngd, auka loftháð þol og um leið
að draga úr framangreindum áhættuþáttum (Peluso, Encandela, Hafler og Margolis,
2012). Það er því ekki að ástæðulausu sem vísindamenn og aðrir sem með þessum
málum fylgjast hafa af því áhyggjur að langvinnir lífsstílstengdir sjúkdómar eru helsta
dánarorsök í heiminum og verða fleira fólki að aldurtila en allar aðrar ástæður saman-
lagt. Með vel skilgreindum, áhrifaríkum og gagnlegum íhlutunum væri hægt að koma
í veg fyrir stóran hluta þessara dánarorsaka (Alwan, 2011).
Til að stemma stigu við þróun af þessum toga má velta fyrir sér hvort hægt sé að
finna leiðir í skólakerfinu sem hindra þróun áhættuþátta langvinnra sjúkdóma meðal
barna og unglinga. Það er því fagnaðarefni þegar út kemur íslensk aðalnámskrá leik-,
grunn- og framhaldsskóla þar sem lögð er sérstök áhersla á heilbrigði og velferð sem
einn af grunnþáttum menntunar (Mennta- og menningarmálaráðuneytið, 2012a). Á
sumarmánuðum 2012 fylgdu í kjölfarið drög að námskrám ýmissa námsgreina grunn-
skóla, þar á meðal drög að námskrá fyrir skólaíþróttir. Þessi drög má nálgast á heima-
síðu mennta- og menningarmálaráðuneytisins en auglýstu umsagnarferli er nú lokið
(Mennta- og menningarmálaráðuneytið, 2012b).
Þessi grein fjallar um hin nýju drög og hvort þau boði nýjungar í íþróttakennslu
grunnskóla á Íslandi. Lagt er mat á það hvernig tekist hefur til við að flétta grunnþætti
menntunar inn í ný drög um íþróttakennslu í skólum og hvort þeir setja mark sitt á
hin nýju drög.
grunnÞættir mEnntunAr
Menntastefnan í nýrri aðalnámskrá grunnskóla frá árinu 2011 byggist á sex
grunnþáttum: læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindum, jafnrétti
Janus guðlaugsson
MenntavísIndasvIðI hÁskóla íslands
Uppeldi og menntun
21. árgangur 2. hefti 2012