Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2011, Page 75
XV VISINDARAÐSTEFNA Hl
FYLGIRIT 66
Inngangur: Fiskolía, rík af ómega-3 fjölómettuðum fitusýrum, hefur
jákvæð áhrif í sumum langvinnum bólgusjúkdómum og einnig í
sumum sýkingum. Flakkboðinn CCL2 er mikilvægur í togi mónócýta úr
beinmerg í blóð og einnig úr blóði til heilbrigðra og sýktra vefja. CCL2
binst flakkboðaviðtakanum CCR2 sem er tjáður af undirgerð mónócýta
sem gjarnan eru kallaðir hefðbundnir eða bólgumónócýtar. Markmið
rannsóknarinnar var að ákvarða áhrif fiskolíu á yfirborðssameindir
mónócýta og styrk flakkboða í blóði músa.
Efniviður og aðferðir: Kvenkyns C57BL/6 mýs fengu fóður byggt á
vestrænu fæði með eða án 2,8% fiskolíu. Helmingur músanna í hvorum
hóp var sprautaður með inneitri (lípópólísakkaríð, LPS) í kviðarhol
þremur eða 48 klst. áður en blóði var safnað. Yfirborðssameindir og
flakkboðaviðtakar á blóðfrumum voru greindir í frumuflæðisjá og
styrkur CCL2 í sermi mældur með ELISA aðferð.
Niðurstöður: Heilbrigðar mýs sem fengu fiskolíu voru með minna
hlutfall af hefðbundnum mónócýtum í blóði en mýs sem fengu
viðmiðunarfóður. Eftir sprautun með inneitri jókst hlutfall hefðbundinna
mónócýta í blóði músa sem fengu fiskolíu en ekki í blóði músa sem
fengu viðmiðunarfóður. Styrkur CCL2 í sermi heilbrigðra músa
sem fengu fiskolíu var minni en styrkur CCL2 í sermi músa sem
fengu samanburðarfóður. Hins vegar var styrkur CCL2 í sermi LPS-
sprautaðra músa sem fengu fiskolíu meiri en í sermi músa sem fengu
viðmiðunarfóður.
Alyktanir: Niðurstöðumar benda til þess að fiskolía hafi dempandi
áhrif á bólguvirkni í jafnvægi og ef til vill í langvinnri bólgu en auki
hins vegar bólguviðbragð eftir sýkingu. Dempandi áhrif fiskolíu í
heilbrigðum músum samræmist jákvæðum áhrifum hennar á langvinna
bólgusjúkdóma en aukið bólguviðbragð gæti að hluta skýrt jákvæð áhrif
hennar í sumum sýkingum.
E 182 Áhrif fiskolíu í fóðri músa á hjöðnun (lausnarfasa) bólgu
Valgerður Tórnasdóttir121, Amór Víkingsson* 2, Jóna Freysdóttir2-3, Ingibjörg
Harðardóttir1
‘Lífefna- og sameindalíffræðistofu HÍ, 2rannsóknastofu í gigtsjúkdómum, 3ónæmisfræðideild
Landspítala
valgerd@hi.is
Inngangur: Tíðni langvinnra bólgusjúkdóma hefur aukist á
Vesturlöndum síðustu áratugi. Ein möguleg skýring á þv£ er minnkuð
bólguhjöðnun samfara breyttu mataræði. Markmið rannsóknarinnar
var að ákvarða áhrif fiskolíu í fóðri músa á myndun og hjöðnun bólgu.
Efniviður og aðferðir: Mýs fengu fóður með eða án fiskolíu og voru
bólusettar með BSA og mild lífhimnubólga mynduð. Kviðarholsfrumum
og -vökva var safnað á nokkrum tímapunktum. Yfirborðssameindir á
frumum voru skoðaðar í frumuflæðisjá. Styrkur frumu- og flakkboða í
kviðarholsvökva var mældur með ELISA aðferð.
Niðurstöður: Þremur stundum eftir myndun lífhimnubólgu höfðu
tnýs sem fengu fiskolíubætt fóður fleiri neutrófíla í kviðarholi og
styrkur IL-6, IL-12, KC, MlP-la og MCP-1 var hærri en hjá músum
sem fengu viðmiðunarfóður. Eftir 12 klst. voru hins vegar færri
neutrófílar í kviðarholi músa í fiskolíuhópnum og styrkur IL-12 lægri.
Fjörutíuogátta klst. eftir myndun lífhimnubólgu var hlutfall eosínófíla
í kviðarholi músa sem fengu fiskolíu hærra en í viðmiðunarhópi og
makrófagar tjáðu meira af hlutleysis flakkboðaviðtakanum D6. Þá var
styrkur TGF-þ í kviðarholsvökva einnig hærri. Fimm og 10 dögum
eftir lífhimnubólgumyndun tjáðu makrófagar meira af D6 sem og
af flakkboðaviðtakanum CCR7 og styrkur TGF-þ var hærri en hjá
viðmiðunarhópi. Um frumniðurstöður er að ræða og munur milli
hópanna ekki í öllum tilvikum tölfræðilega marktækur. Unnið er að
endurtekningu tilraunanna.
Ályktanir: Þessar frumniðurstöður benda til að í upphafi bólgusvarsins
auki fiskolía bólguhvetjandi boðefni en á síðari stigum bólgusvarsins
auki fiskolíugjöf bólguhemjandi boðefni og tjáningu á sameindum sem
eru mikilvægar fyrir hjöðnun bólgu. Þannig er mögulegt að fiskolía
geri viðbrögð við bólguáreiti hnitmiðaðri og stuðli að hámarks árangri
ónæmissvarsins.
E 183 Fiskolía eykur hlutfall neutrófíla í blóði og kviðarholi músa
fjörutíu og átta stundum eftir sprautun með inneitri
Hildur H. Arnardóttir1-2-3, Jóna Freysdóttir1'2'3, Ingibjörg Harðardóttir1
'Lífefna- og sameindalíffræðistofu HÍ, 2rannsóknastofu í gigtsjúkdómum, 3ónæmisfræðideild
Landspítala
ih@hi.is
Inngangur: Fiskolía hefur jákvæð áhrif í sumum langvinnum
bólgusjúkdómum og einnig í sumum sýkingum. Flakkboðarnir CXCLl
(KC), CXCL2 (MIP-2) og CCL3 (MlP-la og viðtakarnir sem þeir bindast
gegna mikilvægu hlutverki í togi neutrófíla á sýkinga- og bólgustaði.
Markmið rannsóknarinnar var að ákvarða áhrif fiskolíu á styrk
flakkboða og á flakkboðaviðtaka á frumum í sermi og kviðarholsvökva
músa.
Efniviður og aðferðir: Kvenkyns C57BL/6 mýs fengu fóður byggt
á vestrænu fæði með eða án 2,8% fiskolíu. Helmingur músanna
í hvorum hópi var sprautaður með inneitri (LPS) í kviðarhol
þremur eða 48 klst. áður en blóði og kviðarholsvökva var safnað.
Yfirborðssameindir og flakkboðaviðtakar á blóð- og kviðarholsfrumum
voru greindir í frumuflæðisjá. Styrkur CXCLl, CXCL2 og CCL3 í sermi
og kviðarholsvökva var mældur með ELISA aðferð.
Niðurstöður: Sérstæðir neutrófílar, sem voru stærri og minna kymdir
en aðrir neutrófílar, greindust í blóði músa sem höfðu verið sprautaðar
með LPS. Mýs sem fengu fiskolíu voru með hærra hlutfall af þessum
sérstæðu neutrófílum en mýs sem fengu viðmiðunarfóður. Mýs
sem fengu fiskolíu voru einnig með hærra hlutfall hefðbundinna
(allra) neutróffla í kviðarholi en mýs sem fengu viðmiðunarfóður, 48
klst. eftir LPS sprautun. Þá jók fiskolía styrk CCL3 bæði í sermi og
kviðarholsvökva þremur og 48 klst. eftir sprautun með inneitri.
Ályktanir: Niðurstöðurnar benda til þess að fiskolía hafi áhrif á tog
neutróffla í blóð og kviðarhol í kjölfar sýkinga og að áhrif hennar gætu
að hluta til verið vegna áhrifa á flakkboðann CCL3. Aukinn fjöldi
neutróffla í blóði og kviðarholi bendir til sterkara ónæmissvars sem gæti
mögulega haft jákvæð áhrif í ónæmisbælingu sem á sér stað í kjölfar
bráðablóðeitrunar.
E 184 Sumarexem, smámýsofnæmi í hrossum. Bólusetning í húð og í
eitil með smámýs ofnæmisvökum með og án IC31Ó ónæmisglæði
Sigurbjörg Þorsteinsdóttir', Sigríður Jónsdóttir1, Eliane Marti2, Eman Hamza2, Jozef
Janda2, Ben Wizel3, Vilhjálmur Svansson'
'Tilraunastöö HÍ í meinafræði að Keldum, 2dýrasjúkdómadeild Háskólans í Bern, Sviss,
3Intercell Vín, Austurríki
sibbath@hi.is
Inngangur: Sumarexem er ofnæmi af gerð I í hrossum gegn próteinum
sem berast við bit smámýs (Culicoides spp). Exemið er vandamál í
islenskum hestum sem fluttir eru út. Við höfum framleitt ofnæmisvakana
LÆKNAblaðið 2011/97 75