Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2011, Blaðsíða 90
XV VISINDARAÐSTEFNA Hl
FYLGIRIT 66
við sóragigt. Breytur sem sýndu tengsl við p-gildi 0,05 eða lægra voru
notaðar í fjölþátta aðhvarfsgreiningu. Aldur og kyn voru breytur í öllum
fjölþátta greiningum.
Niðurstöður: Þátt tóku 1116 sjúklingar með sóra, 56% voru konur.
Skellusóri var til staðar hjá 94%, oftast á handleggjum, í hársverði og
á fótleggjum (85%, 77% og 71%). Naglbreytingar fundust hjá 36%.
Sóragigt var til staðar hjá 183 eða 16%. Nagllos, ofvöxtur naglbeðs og
nagldældir tengdust gigt. Fjölþátta aðhvarfsgreining sýndi OR=2,02
fyrir gigt ef nagllos var til staðar, en aðrar undirgerðir naglbreytinga
höfðu ekki tölfræðilega marktæk tengsl við gigt. Alls komu 122 (67%)
gigtarsjúklinga aftur til skoðunar einu til sex árum síðar. Algengi
naglbreytinga hafði aukist frá 36% í 80%. Naglbreytingar hurfu hjá innan
við 4% sjúklinga.
Alyktanir: Sóragigt hefur tengsl við naglbreytingar. Nagllos er með
sterkari tengsl við gigt en aðrar naglbreytingar. Algengi naglbreytinga
eykst með tíma og þær hverfa sjaldan.
V 23 Veiruhindrandi áhrif þorskatrypsína á Herpes Simplex veiru
gerð 1.
Hilmar Hilmarsson* 1, Bjarki Stefánsson', Jón Bragi Bjarnason1'2 Ágústa
Guðmundsdóttiru
'Raunvísindastofnun, 2verkfræði- og náttúruvísindasviði, 3 * * * * * *matvæla- og næringarfræðideild
heilbrigðisvísindasviðs HÍ
hilmarh@hi.is
Inngangur:Fyrrirannsóknirsýnaaðpensím,sýrustilltþorskatrypsínlausn
sem inniheldur próteinkljúfandi ensím, hefur veiruhindrandi áhrif gegn
inflúensu A bæði í tilraunaglösum og á húð. í þessari rannsókn voru
veiruhindrandi áhrif pensíms könnuð gegn herpes simplex veiru týpu 1
(HSV-1) í tilraunaglösum, til að kanna frekar áhrif þorskatrypsína gegn
veirum. Sýking af völdum herpesveira er ólæknaleg og leggst veiran
í dvala í taugahnoðum í líkamanum. Ablástur (frunsur) eru helstu
einkenni herpessýkinga en einnig getur veiran valdið heilabólgum og
alvarlegum augnsýkingum. Hægt er að halda sýkingum af völdum
herpes að einhverju leyti niðri með asýklóvír afleiddum veirulyfjum
sem geta hindrað veiruframleiðsluna í líkamanum. En í dag eru komnir
asýklóvír lyfjaónæmir stofnar.
Efniviður og aðferðir: Mismunandi styrk af pensími var blandað við
veirulausn við 37°C í mislangan tíma. Tíföldum þynningum pensím-
veirulausna var svo sáð á frumur og fundin út veirudrepandi virkni út
frá viðmiðunarlausnum.
Niðurstöður: Pensím er mjög virkt gegn HSV-1 í tilraunaglösum, sem
dæmi lækkar veirutíter 10 þúsund falt eftir 10 mínútna meðhöndlun
með 90 U/ml styrk af pensími. Svipuð virkni fæst einnig með lægri
pensím styrk ef meðhöndlunartíminn er aukinn.
Ályktanir: Pensím sem inniheldur próteinkljúfandi ensím klippir líklega
á yfirborðsprótein HSV-1 og jafnvel frumuviðtaka og nær þannig að
trufla og minnka sýkingarmátt veirunnar. Slík áhrif gætu reynst vel í
baráttunni gegn lyfajaónæmum herpesstofnum.
V 24 Hjúpgerðir og sýklalyfjanæmi pneumókokka hjá heilbrigðum
leikskólabörnum
Helga Erlendsdóttir1-2, Árni Sæmundsson1, Kolbeinn Hans Halldórsson1, Þórólfur
Guðnason,11, Ásgeir Haraldsson1-3, Karl G. Kristinsson1-2
'Læknadeild HÍ, 'sýklafræðideild Landspítala, 'Bamaspítala Hringsins, 'sóttvarnarsviði
landlæknisembættisins
helgaerl@landspitali. is
Inngangur: Minnkað næmi pneumókokka gegn penisillíni hefur
undanfarin ár verið um 40% í innsendum öndunarfærasýnum
frá börnum á sýklafræðideild Landspítala. Fyrirhugað er að hefja
bólusetningu hjá börnum gegn pneumókokkum hér á landi vorið 2011.
Til eru þrenns konar próteintengd pneumókokkabóluefni (PCV) sem
veita vöm gegn 7, 10 og 13 hjúpgerðum. Tilgangur rannsóknarinnar
var að kanna hjúpgerðardreifingu og sýklalyfjanæmi pneumókokka í
nefkoki hjá heilbrigðum leikskólabörnum.
Efniviður og aðferðir: Nefkokssýni voru tekin úr heilbrigðum
leikskólabörnum á 15 leikskólum á höfuðborgarsvæðinu vorið 2009
og 2010. Leitað var að pneumókokkum, þeir hjúpgreindir og gert
næmispróf.
Niðurstöður: Þátttakendur voru 516 börn vorið 2009 og 446 börn
vorið 2010. Berahlutfall pneumókokka var 72% og 66% og stofnar með
minnkað næmi voru 11% og 10%. Algengustu hjúpgerðinar bæði árin
voru 6B, 23F og 19F, 40-45% allra hjúpgerða. Hjúpgerð 19A fækkaði
um helming milli ára, en hjúpgerðum 14 og 3 fjölgaði um helming.
Algengasta hjúpgerðin með minnkað penisillín næmi var 19F, eða
alls 71% og 83%. Aðrar hjúpgerðir með minnkað næmi voru 6B og 14.
Flestir stofnar með minnkað penisillín næmi voru fjölónæmir. Makrólíða
ónæmi var 13% og 12% og bundið við hjúpgerðir 19F, 6B og 14. Af
hjúpgerðum pneumókokka sem ræktuðust úr nefkoki barnanna 2009 og
2010 er 56% og 61% að finna í PCV-7 og PCV-10 bóluefninu, en 77% og
79% í PCV-13.
Ályktanir: Minnkað penisillín næmi hjá pneumókokkum er umtalsvert
heilbrigðisvandamál. Mikilvægt er að fylgjast með breytingum á
algengi pneumókokkahjúpgerða til að betur megi spá fyrir um virkni
PCV-bóluefna og sýklalyfjanæmi. Alla stofnar pneumókokka með
minnkað penisillínnæmi sem ræktuðust í þessari rannsókn er að finna í
próteintengdu bóluefnunum.
V 25 Hjúpgerðir í ífarandi pneumókokkasýkingum áratuginn fyrir
bólusetningu
Helga Erlendsdóttir1-2, Þórólfur Guðnason1 J, Karl G. Kristinsson1'2
'Læknadeild HÍ, 'sýklafræðideild Landspítala, ‘sóttvarnarsviöi landiæknisembættisins
helgaerl@landspitali. is
Inngangur: Fyrirhugað er að hefja bólusetningu hjá börnum gegn
pneumókokkum hér á landi vorið 2011. Á markaði eru nú tvenns konar
próteintengd pneumókokkabóluefni (PCV), sem veita vörn gegn 10 og
13 hjúpgerðum. Hjúpgerðir í PCV-10 eru; 4, 6B, 9V, 14, 18C, 19F, 23F,
1, 5 og 7F og í PCV-13 bætast við hjúpgerðirnar 3, 6A og 19A. Þessi
bóluefni draga mjög úr ífarandi sýkingum pneumókokka, en hafa
einnig sýnt virkni gegn lungnabólgum og miðeymabólgum. Tilgangur
rannsóknarinnar er að kanna mögulega virkni þessarra bóluefna miðað
við nýgengi viðkomandi hjúpgerða í ífarandi sýkingum á árunum 2000-
2009.
Efniviður og aðferðir: Allar ífarandi pneumókokkasýkingar á landinu
öllu eru skráðar á sýklafræðideild Landspítala. Úr þeim gögnum voru
teknar upplýsingar um aldur og afdrif sjúklings (andlát), tegund sýkingar
(heilahimnubólga/aðrar ífarandi) og hjúpgerð pneumókokkanna.
Reiknað var nýgengið og hlutfall sjúklinga í mismunandi aldurshópum
með hjúpgerðir tilheyrandi viðkomandi bóluefnum.
Niðurstöður: Alls greindust 458 ífarandi pneumókokkasýkingar
á landinu öllu síðastliðin 10 ár, árlegt nýgengi 16/100.000 alls, en
87/100.000 hjá <2 ára og 49/100.000 hjá sjúklingum >65 ára. Hjúpgerðir
sem tilheyrðu PCV-7 og PCV-10 vom 74% og 86%. Fyrir heilahimnubólgu
90 LÆKNAblaðið 2011/97