Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2011, Síða 101
XV VISINDARAÐSTEFNA Hl
FYLGIRIT 66
starfsánægju, þar sem starfsálag, sjálfstæði í starfi og stuðningur á
vinnustað var skoðaður á tveimur tímabilum.
Efniviður og aðferðir: Um er að ræða lagtímarannsókn (gögnin
verða mæld á þremur tímabilum). Þátttakendur í rannsókninni á
tíma 1 voru hjúkrunarfræðingar og ljósmæður sem voru í starfi á
kvenna- og barnasviði vorið 2009 (79% þátttaka, n=163). Á tíma 2 var
rannsóknin framkvæmd vorið 2010 (78% þátttaka, n=161). Leitast
var við að svara meginrannsóknarspumingu, er marktækur munur á
heildarstarfsánægju (eða undirþáttum) hjá þeim hjúkmnarfræðingum
og ljósmæðrum sem hafa a) sótt námskeið í fjölskylduhjúkrun og b)
þeim sem hafa framhaldsnám í hjúkrun eða ljósmóðurfræðum.
Niðurstöður: Fram kemur í niðurstöðunum að þeir hjúkrunarfræðingar
og ljósmæður sem höfðu sótt námskeið í fjölskylduhjúkrun á tíma
1 mælast með marktækt hærri heildarstarfsánægju og sjálfstæði í
starfi (undirkvarði) en þeir hjúkrunarfræðingar og ljósmæður sem
ekki höfðu farið á slíkt námskeið (p=0,ll). Auk þess kemur fram að
þeir hjúkrunarfræðingar og ljósmæður sem eru með framhaldnám í
hjúkrun og ljósmóðurfræðum (svo sem diplómanám, meistaranám eða
doktorsnám) meta sig marktækt hærra á undirkvarðanum „sjálfstæði
í starfi" en þeir hjúkrunarfræðingar og ljósmæður sem ekki eru með
sambærilegt framhaldsnám bæði á tíma 1 og tíma 2 (p=,008). Munur var
á heildar starfsánægju þeirra á tíma 2, en sá munur reyndist ekki vera
marktækur (p=,052).
Ályktanir: Þessar niðurstöður eru mikilvægar fyrir þróun hjúkrunar
og innleiðingu fjölskylduhjúkrunar á Landspítala. Auk þess kemur
fram í þessum niðurstöðum að áframhaldandi stuðningur við
hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra er mikilvægur á klínískum vettvangi.
V 58 Stuðningur við foreldra barna með respiratory syncytial veiru á
bráðamótttöku barna
Sólrún W. Kamban', Erla Kolbrún Svavarsdóttir2,3
’Bráðmóttöku bama Landspítala, 2hjúkrunarfræðideild HÍ, 3Landspítala
swk1@hi.is
Inngangur: Rannsóknir hafa sýnt að RS veiran (respiratory syncytial
virus) getur haft áhrif á öndunarfæri barna sem af henni veikjast öll
æskuárin. Rannsóknir á foreldrum þessara barna gefa vísbendingar
um að þau gangi í gegnum erfitt tímabil meðan á veikindunum
stendur. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna hvort stuttar
meðferðarsamræður (SM) við hjúkrunarfræðing veiti foreldrum
tilfinningu fyrir auknum stuðningi á veikindatímabilinu. I rannsókninni
er byggt á hugmyndafræði fjölskyldumeðferðar Calgary líkansins.
Efniviður og aðferðir: Aðlagað tilraunasnið með fyrir- og eftirprófun
var notað. Tuttugu og níu fjölskyldum var skipt í tilraunahóp
og samanburðarhóp. Tilraunahópnum var boðin hjúkrunarmeðferð
í formi stuttrar meðferðarsamræðu við hjúkrunarfræðing en
samanburðarhópurinn fékk hefðbundna hjúkrunarmeðferð. Lýsandi
tölfræði og dreifigreining fyrir endurteknar mælingar voru notaðar
við úrvinnslu á niðurstöðum. Þátttakendur í tilraunahópi voru 23 á T1
með svörun 91,3% á T2 eða 21 þátttakandi. í samanburðarhópnum voru
þátttakendur 23 með 87% svörun eða 20 einstaklingar svöruðu á T2.
Þátttakendur voru því 46 á tíma 1 og 41 á tíma 2.
Niðurstöður: Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýna að mæður sem
fá stuttar meðferðarsamræður við hjúkrunarfræðing skynja marktækt
meiri stuðning samanborið við mæður í samanburðarhópnum. Hugrænn
stuðningur sker sig úr en það er stuðningur sem beinist að fræðslu og
að styrkja fjölskylduna í eigin bjargráðum hennar. Niðurstöðurnar sýna
einnig að mæður í tilraunahópnum skynja marktækt meiri stuðning en
feður eftir stuttar meðferðarsamræður.
Ályktanir: Samkvæmt niðurstöðum þessarar rannsóknar má álykta
að stuttar meðferðarsamræður hafi jákvæð áhrif á skynjaðan stuðning
mæðra bama sem veikjast af RS veiru.
V 59 Hlutverk skólahjúkrunarfræðinga í að taka á hindrunum og
viðhalda samfellu í heilbrigðisþjónustu meðal fjölskyldna unglinga
með astma
Erla Kolbrún Svavarsdóttir1'2, Brynja Örlygsdóttir'
'Hjúkrunarfræðideild Hí, 2Landspítala
eks@hi.is
Inngangur: Astmi er alþjóðlegt heilbrigðisvandamál sem kallar
á alþjóðlegt samstarf meðal rannsakanda í hjúkrun. Þrátt fyrir
framfarir í meðferð á astma er lítið vitað um það hlutverk sem
skólahjúkrunarfræðingar hafa til að tryggja samfellu í umönnun
barna með astma. Þessi alþjóðlega rannsókn greinir frá hlutverki
skólahjúkrunarfræðinga til að tryggja samfellu í heilbrigðisþjónustu fyrir
unglinga á Stór-Reykjavíkursvæðinu og í Minnesota í Bandaríkjunum.
Efniviður og aðferðir: Hugtakaramminn sem stuðst var við í
þessari rannsókn er samfella í fjölskyldumiðaðri umönnun. Lýsandi
rannsóknarsnið var notað þar sem hlutverk 17 skólahjúkrunarfræðinga
á Stór-Reykjavíkursvæðinu (allar konur) og 15 skólahjúkrunarfræðingar
í St. Paul, Minnesota (14 konur og 1 karl) í þremur focus
hópum sem sinntu 10-18 ára unglingum með astma. Meðalfjöldi
nemenda í skólunum sem hjúkrunarfræðingarnir sinntu var 549 hjá
íslensku skólahjúkrunarfræðingunum en 925 hjá kollegum þeirra í
Bandaríkjunum.
Niðurstöður: Þrátt fyrir að heilbrigðiskerfin á Islandi og í Bandaríkjunum
séu ólík, þá komu sameiginlegir þættir í ljós hvað varðar meginhlutverk
skólahjúkrunarfræðinganna varðandi samfellu á skimun á astma,
fræðslu og umönnun unglinga með astma. Meginmunurinn var þó sá
að skólahjúkrunarfræðingar í Reykjavík skýrðu frá því að þeir eyddu
hlutfallsleg minnstum tíma í viku hverri í að veita samfellda umönnun
til unglinga með astma samanborið við kollega þeirra í St. Paul, en þeir
eyddu meiri tíma í að fræða um astma og forvarnir til að fyrirbyggja
astmaköst. Skólahjúkrunarfræðingar í St. Paul greindu frá því að þeir
eyddu meiri tíma í að sjá um samfellu í umönnun unglinga með illa
meðhöndlaðan astma en þessir unglingar höfðu takmarkaðan eða engan
aðgang að heilsugæslu og/eða heilbrigðistryggingum.
Ályktanir: Það að leggja áherslu á alþjóðleg vandamál varðandi astma
getur leitt til betra heilbrigðis og umönnunar meðal nemenda með
astma og styður við þróun á árangursríkum aðferðum við samfellu á
skólatengdri umönnun unglinga með astma.
V 60 Árangursrík fyrirbyggjandi meðferð byggð á tilraunum í
storkurita gegn blæðingu hjá fæðandi konu með Bernard-Soulier
heilkenni
Brynjar Viöarsson', Brynja Guðmundsdóttir', Páll Torfi Önundarson1-2
‘Rannsóknastofu í blóðmeinafræði Landspítala, 2læknadeild HÍ
brynvida@lsh.is
Inngangur: Bernard-Soulier heilkenni (BSS) einkennist af lífshættulegri
blæðihneigð til dæmis við aðgerðir og fæðingar og fáum risablóðflögum
sem vantar yfirborðsviðtakann gp Ib/IX/V. Blæðingar eru meðhöndlaðar
með blóðflögugjöf og tranexamín sýru en blóðflögugjafir hætta fljótt
LÆKNAblaðið 2011/97 101