Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2011, Síða 129
XV VISINDARAÐSTEFNA Hl
FYLGIRIT 66
V 145 Þróun líkans fyrir „wet-on-wet“ slímhimnuviðloðun
Bharat Bhushan1, Hákon Hrafn Sigurðsson1
‘Lyfjafræðideild HÍ
hhs@hi.is
Inngangur: Markmið slímhimnuviðloðandi kerfa er að auka viðveru
lyfja við slímhimnu og auka þannig frásog auk þess sem tíðni lyfjagjafa
minnkar og hugsanlegum aukaverkunum fækkar. Erfitt getur verið að
meta lyflosunareiginlega slíkra kerfa meðan verið er að þróa þau nema
þá helst í dýrum. Æskilegra er að nota gott in-vitro líkan sem líkir eftir
raimverulegri slímhimnu. Markmið verkefnisins er að þróa einfalt líkan
til mælinga á slímhimnuviðloðunareiginleikum lyfflutningskerfa.
Efniviður og aðferðir: í þessum hluta verkefnisins var einungis verið að
leita að hentugu slími og himnu. Þurrt slím úr svínsmaga var leyst upp
í eimuðu vatni í mismunandi styrk og dreift jafnt á mismunandi himnur
sem komið var fyrir í líkaninu og það keyrt á mismunandi skolhraða.
Mælt var hversu vel tilbúna slímið hélst við viðkomandi himnu í tvo
tíma með því að mæla styrk slíms í skolvökvanum.
Líkanið er smíðað úr plexigleri og samanstendur af þremur ferhyrndum
einingum sem skrúfaðar eru saman ofan á hvor aðra. Miðjueiningin
inrúheldur ílangt flæðihólf sem tengt er við sprautupumpu sem dælir
skolvöka inn við endann, yfir tilbúnu slímhimnuna og út við hinn
endann á hólfinu. Sílikonhimnur, skiljunarhimnur og síupappír var
notaður sem líkanhimnur.
Niðurstöður: Slím virtist haldast best við Whatman síupappír númer
4 af þeim himnum sem prófaðar voru. Hentugur styrkur slímlausnar
var 1% og magn slíms var 0,50mg/cm2. Flæðihraði hefur áhrif á losun
slímsins en um 85% af slími hélst á himnunni ef flæðihraði var stilltur á
0,50ml/mín.
Ályktanir: Líkanið er einfalt í uppsetningu og notkun. Breytileiki þess
fer nokkuð eftir notandanum og nokkra æfingu þarf til að minnka
mælibreytileika milli daga. Næsta skref í þróun þess er að prófa
viðloðun þekktra fjölliða við slímhimnuna.
V 146 Áhrif hýdroxýprópýl-p-cýklódextríns á stöðugleika doxýcýklíns
Bjarki Þorvaldur Sigurbjartsson1, Þórdís Kristmundsdóttir1, Skúli Skúlason2, Árni
Þ. Kristjánsson2
‘Lyfjafræðideild HÍ, 2Lífi-Hlaupi ehf.
thordisk@hi.is
Inngangur: Matrixmetallópróteinasar (MMP) er hópur ensíma sem gre-
inst hafa í auknum mæli í tannholdsbólgum og munnangri. Sýnt hefur
verið fram á að bæling á virkni MMP flýtir bata og dregur úr fylgikvil-
lum þessara sjúkdóma. Rannsóknir hafa sýnt að doxýsýklín er sterkur
hemill á virkni MMP og klínískar tilraurúr hafa leitt í ljós að staðbundin
meðhöndlun á munnangri með smáskammta doxýsýklínhlaupi flýtir
bata. Tetrasýklín sameindir eru óstöðugar og viðkvæmar fyrir hýdrólýsu
og ljósi. Doxýsýklín er þar engin undantekning en fyrri rannsóknir hafa
sýnt að stöðugleiki doxýsýklíns eykst þegar það er míkróhúðað með
algínati. Markmið verkefnisins var að kanna áhrif hýdroxýprópýl-p-
sýklódextrín (HP-þ-CD) á stöðugleika doxýsýklíns sem míkróhúðað er
með algínati og kanna áhrif aðstæðna við míkróhúðunina á heimtur.
Efniviður og aðferðir: Doxýsýklín var míkróhúðað með algínati með
úðaþurrkunaraðferð. Könnuð voru áhrif mismunandi styrks HP-p-CD
á stöðuleika doxýsýklíns. Áhrif hitastigs við úðaþurrkunina á heimtur
voru kannaðar.
Niðurstöður: Stöðugleiki doxýsýklíns eykst við míkróhúðun með al-
gínati. Niðurstöður benda til að auka megi stöðugleikann enn frekar
með því að bæta HP-p-CD f framleiðsluna í mólhlutföllunum 2:1 og 3:1
HP-p-CD:doxýsýklín. Hærra mólhlutfall leiddi til aukins óstöðugleika.
Við allar aðstæður reyndist doxýsýklín óstöðugast þegar mólhlutföllin á
milli doxýsýklíns og HP-p-CD voru 1:1.
Ályktanir: Stöðugleiki doxýsýklíns eykst eftir míkróhúðun með algínati.
HP-p-CD eykur stöðugleikann ennfrekar sé það notað við framleiðsluna
í réttum styrkleika. Hár styrkur HP-p-CD við míkróhúðun doxýsýklíns
lækkar stöðugleikann og dregur þannig úr stöðgandi áhrifum
míkróhúðunarinnar. Heimtur aukast með hækkuðu hitastigi en gæta
þarf að doxýcýklín er viðkvæmt fyrir miklum hita.
V 147 Mónókaprin í tannlími til meðhöndlunar á eða fyrirbyggjandi
gegn sveppasýkingum undir gervitönnum
Tinna Davíðsdóttir1, Þórdis Kristmundsdóttir1, W. Peter Holbrook2, Skúli Skúlason3,
Árni Þ. Kristjánsson3
’Lyfjafræðideild, 2tannlæknadeild HÍ, 3Lífi-Hlaupi ehf.
thordisk@hi.is
Inngangur: Sveppasýking undir gervitönnum er meðal algengustu
sjúkdóma í munni þeirra sem nota gervitennur. Sýkingar eru
meðhöndlaðar með staðbundinni eða systemískri gjöf sveppalyfs,
sem er ekki áhrifarík meðferð til lengri tíma litið og getur
leitt til aukinnar ónæmismyndunar gegn algengum sveppalyfjum.
Mónókaprín (1-mónóglýseríð af kaprínsýru) er náttúrulegt fituefni
sem sýnt hefur mikla virkni gegn ýmsum bakteríum, veirum og
sveppum. Rannsóknir á virkni mónókaprínlausna gegn örverum sem
sýkja munnhol hafa sýnt fram á virkni gegn Candida sp. Markmið
verkefnisins var að finna hentugan styrk mónókaprfns í tannlími sem
hefur sveppadrepandi áhrif og að kanna leysnihraða mónókapríns
úr tannlíminu, sýrustigsbreytingar á mónókaprínblöndunni og áhrif
mónókapríns á viðloðun tannlíms.
Efniviður og aðferðir: Næmispróf var notað til þess að finna hentugan
styrk mónókapríns; losun mónókaprins úr tannlíminu var könnuð
með leysnihraðaprófi. Breytingar á sýrustigi með þynningum á
mónókaprínblöndu voru athugaðar og breytingar á eiginleikum
tannlíms mældar með viðloðunartæki en þróa þurfti aðferð til að kanna
áhrif mónókapríns á viðloðunareiginleika tannlímsins.
Niðurstöður: Næmnispróf sýndi að mónókaprínið flæddi vel úr
tannlíminu og 3% styrkur sýndi góða hömlun á sveppavöxt.
Sýrustigsbreytingar voru mjög litlar. Viðloðunarmælingar sýndu að
mónókaprín hafði lítil áhrif á slitkraft en meiia áhrif á vinnu samloðunar
á tannlími.
Ályktanir: Af mónókaprínblöndum hafa 3% góða hömlun á sveppavöxt
og eru hentug til áframhaldandi prófana í klínískum rannsóknum til að
kanna möguleika á að fyrirbyggja sveppasýkingar undir gervitönnum.
V 148 Þróun þurrdufts og taflna sem innihalda þorskalýsi og ómega-
3 fitusýrur
Fífa Konráðsdóttir1, Þormóður Geirsson1', Þorsteinn Loftsson1, Amar Halldórsson2
'Lyfjafræðideiid HÍ, 2Lýsi hf.
fifa@hi.is
Inngangur: Heilsusamleg áhrif fiskiafurða sem inrúhalda ómega-3
fitusýrur í kjölfar reglulegrar neyslu þeirra er orðin vel þekkt. Markmiðið
var að koma þorskalýsi og ómega 3 forte fiskiolíu á töfluform. í
báðum fituefnum eru ómega-3 fitusýrur, flestar á formi þríglýseríða í
þorskalýsinu en í formi etýl estera í ómega-3 forte. Sýklódextrín (CD),
LÆKNAblaðið 2011/97 129