Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2011, Qupperneq 140
XV VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ
FYLGIRIT 66
miRNA hefur verið tengd við EMT ferlið en hefur ekki áður verið
skoðað í brjóstastofnfrumum.
Efniviður og aðferðir: Tjáning allra þekktra miRNA var skoðuð með
örflögugreiningu (Illumina bead array) í brjóstastofnfrumum sem höfðu
undirgengist EMT í samrækt með æðaþelsfrumum.
Niðurstöður: Við EMT, sem einkennist meðal annars af minnkaðri
prótíntjáningu einkennisprótína brjóstaþekju, verður mikil breyting á
tjáningu miRNA. Við sjáum minnkaða tjáningu allra meðlima miRNA-
200 fjölskyldunnar. Einnig sést minnkuð tjáning af miRNA-203 sem er
talið hafa hindrandi áhrif á stofnfrumueiginleika. Tilraunir sem mæla
þessa eiginleika í EMT brjóstastofnfrumum staðfestu þetta. Ennfremur
voru mörg miRNA með aukna tjáningu og var þar mest áberandi aukin
tjáning 14 miRNA gena sem tilheyra callipyge seti á litningi 14.
Alyktanir: Tap á einkennsiprótínum þekju eru áberandi í EMT og
niðurstöður okkar sýna að allir meðlimir miRNA-200 fjölskyldunnar
eru með minnkaða tjáningu í EMT brjóstastofnfrumum. Við sjáum
einnig minnkun á miRNA-203 sem hefur verið tengt við tilurð
krabbameinsstofnfrumna. Aukin tjáning miRNA af callipyge seti hefur
ekki verið áður tengt við EMT. Frekari vinna miðar að því að skoða
nánar þau gen sem miRNA breytingar í kjölfar EMT hafa áhrif á.
V 180 Hlutverk Sprouty-2 í þroskun og sérhæfingu brjóstkirtils
Valgarður Sigurðsson12, Sigríður Rut Franzdóttir1'2, Þórarinn Guðjónssonu, Magnús
Karl Magnússon1-2-1
'Rannsóknastofu í stofnfrumufræðum Lífvísindasetri Læknagarðs, 2rannsóknastofu í
blóðmeinafræði Landspítala, 3rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði HÍ
valgardu@hi.is
Inngangur: Innanfrumustjórnprótín sem tilheyra sprouty fjölskyldunni
hafa áhrif á virkni boða gegnum týrósínkínasa viðtaka sem eru
mikilvægir í þroskun brjóstkirtilsins, þar með talið myndun greinóttrar
formgerðar. Fjögur mismunandi sprouty (Spry) gen finnast í spendýrum;
Spryl, 2,3 og 4, og gegna þau mikilvægu hlutverki í formgerðarmyndun
lungna, nýma og æðakerfis. Spry2 er talið mikilvægast í þessu samhengi
en tjáningamynstur og hlutverk þess í greinóttri formgerð brjóstkirtils
hefur lítið verið kannað.
Efniviður og aðferðir: Tjáning Spry2 í vef og í hefðbundnum og
þrívíðum frumuræktunum (3D-rækt) var metin með mótefnalitunum,
mótefnablettun og rauntíma-PCR. Tjáning Spry2 í frumulínum var bæld
með sh-RNA lentiveiruinnleiðslu (Spry2-KD). Til að rannsaka greinótta
formgerð voru notaðar brjóstastofnfrumur sem mynda greinótta
frumuklasa á 16 dögum (D16) í 3D-rækt.
Niðurstöður: Mótefnalitanir og blettun á músavef sýna að Spry2
tjáning eykst á þungunar- og mjólkunarstigi samfara vexti og greinóttri
formgerð mjóikurkirtilsins. í eðlilegum brjóstkirtli kvenna er tjáning
Spry2 aðallega bundin við kirtilþekju samanborið við vöðvaþekju. í
3D-rækt minnkar tjáning Spry2 þegar kóloníurnar byrja að mynda
greinótta formgerð (D9-D10) en hækkar aftur þegar henni er lokið á
D16. Mótefnalitun staðfestir háa tjáningu Spry2 í greinóttum endum
á D16. Spry2-KD í brjóstastofnfrumum leiðir til meiri vaxtarhraða og
aukningar í greinóttri formgerð í 3D-rækt.
Alyktanir: Spry2 tjáning í manna- og músabrjóstvef sveiflast í takt við
formgerðarmyndun en niðurstöður úr in vitro tilraunum gefa sterklega
til kynna að Spry2 hafi temprandi stjórnun á greinótta formgerð
brjóstkirtils og áframhaldandi vinna miðar að því að greina hvar Spry2
er að miðla boðum sínum í þessu ferli.
V 181 Tjáning á þorskatrypsíni í örverum
Karen Ósk Pétursdóttir1, Bjarki Stefánsson1, Jón Bragi Bjarnason1-2, Ágústa
Guðmundsdóttir1-3
'Raunvísindastofnun íslands, 2verkfræði- og raunvísindasviði, 3matvæla- og
næringarfræðideild HÍ
ag@hi.is
Inngangur: Fyrirtækið Ensímtækni nýtir þorskatrypsín (kuldaaðlöguð
próteinkljúfandi ensím) í snyrtivörur og lyf. Verkefnið snýst um að
þróa og framleiða þorskatrypsín (trypsín I) og endurbættar afleiður
þess í örverum til notkunar í læknisfræðilegum tilgangi. Tjáning á
þorskatrypsíni hefur reynst erfið í hefðbundnum tjáningarkerfum, E.
coli og P. pastoris. I þessu verkefni var tjáning á þorskatrypsíni prófuð í
kuldaaðlagaðri E. coli bakteríu og í nýju tjáningarkerfi með kuldakæru
bakteríunni P. haloplcinktis.
Efniviður og aðferðir: Tjáning á trypsíni I í kuldaaðlagaðri E. coli
bakteríu (ArcticXpress) var framkvæmd við 10°C og 15°C en við 4°C í
P. haloplanktis. Tjáningu á trypsíni I f E. coli var beint í millihimnurými.
Trypsín I var tjáð tengt próteininu -amýlasa í P. haloplanktis sem leiðir til
seytingar trypsíns I út úr frumu yfir í æti. Trypsín I er tjáð með 9X His
merki sem var nýtt við mótefnaþrykk til að fylgjast með tjáningu í E. coli.
Merkið verður notað við hreinsun á trypsíns I á seinni stigum.
Niðurstöður: Tjáð trypsín I greinist í báðum tjáningarkerfum. Seyting
trypsíns I í millihimnurými í kuldaaðlagaðri E. coli gekk betur við 15°C
en við 10°C. Trypsín I tengt amýlasa finnst í leysanlegu formi í æti P.
Iialoplanktis við seinni veidisfasa vaxtar (72 klst.) og þar finnst einnig
mikil aukning á trypsínvirkni í æti.
Alyktanir: Færsla trypsíns I yfir í millihimnurými E. coli er háð hitastigi.
Niðurstöður í P. haloplanktis gefa til kynna að virkt trypsín I sé framleitt
í þessu tjáningarkerfi. Frekari prófanir verða gerðar á aðstæðum fyrir
tjáningu á trypsíni I í E. coli og P. Hnloplanktis, svo sem mismunandi æti
og sýrustig áður en hreinsun og virknimælingar á tjáðu trypsini I fara
fram.
V 182 Samanburður á trypsínum einangruðum úr Atlantshafsþorski
og trypsínum úr þorski af færeyska bankanum
Guörún Bima Jakobsdóttir1, Bjarki Stefánsson1, Jón Bragi Bjamason1-2' Ágústa
Guðmundsdóttiru
'Raunvísindastofnun, 2verkfræði- og náttúruvísindasviði, 3matvæla- og næringarfræðideild
heilbrigðisvísindasviðs HÍ
ag@hi.is
Inngangur: Trypsín eru próteinkljúfandi ensím sem finnast í
meltingarvegi þorska sem og annarra fiska. Trypsín úr Atlantshafsþorski
hafa verið rannsökuð við Raunvísindastofnun Háskóla íslands og notuð
sem fyrirmynd fyrir kuldaaðlöguð próteinkljúfandi ensím. Þessar
rannsóknir, ásamt öðrum rannsóknum, hafa leitt til þess að trypsín úr
Atlantshafsþorski eru notuð meðal annars í snyrtivörur og náttúrulegar
vörur til að meðhöndla exem, psóríasis og ýmsa aðra húðsjúkdóma.
Fyrri rannsóknir sýna að þorskur sem finnst suðvestur af Færeyjum, í
færeyska bankanum, vex hraðar en annar þorskur í Norður-Atlantshafi.
Sýnt hefur verið fram á samband milli virkni trypsína í meltingarvegi
fiska og vaxtarhraða þeirra. Ef trypsín úr þorski af færeyska bankanum
eru að einhverju leyti öðruvísi en trypsín úr Atlantshafsþorski gæti það
skýrt mun á vaxtarhraða þessara stofna en það var einmitt viðfangsefni
þessa verkefnis að bera saman trypsín úr færeyskum þorski við trypsín
úr Atlantshafsþorski.
Efniviður og aðferðir: Trypsín úr færeyskum þorski voru einangruð með
140 LÆKNAblaðið 2011/97