Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1955, Page 67

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1955, Page 67
THOMAS MANN — og þó aldrei nema með hálfu hjart- anu. I Tóníó Kröger hafði hann sagt: ..En þið, sem tilbiðjið fegurðina, þið, sem kallið mig tómlátan og kaldlynd- an, ættuð að minnast þess, að til er listamannseðli, sem stendur svo djúpt, er svo upprunalegt og áskapað, að því er engin þrá samgrónari og kærari en sú, sem kallar eftir unaði hversdags- leikans.“ Þetta listamannseðli átti Thomas Mann. Hann stóð alltaf öðr- um fæti í veruleikanum með ást á lifi og mannfélagi. Skyldi lífið þá verða allsráðandi í list? Átti hún að verða auðmjúkur þjónn þess? Einhver hafði kennt: lífið á engan dómara yf- ir sér. Skyldi sú verða hin nýja stefna í listum? Ekki hvarflar fremur að Thomasi Mann að fylgja henni. Lífið, mannfélagið þarf á leiðsögn andans að halda. Þess vegna verður að finna sátt og samtengsl milli lífs og anda; líf og andi verða að vera eilíf endur- nýjun hvors annars. Að gera þessa sátl milli þeirra er hlutverk mannsins. Það mannfélag verður að skapa þar sem sú sátt fari fram. Maðurinn á andstæðurnar í sér, andstæður lífs og anda, veruleika og listar. í lífsháska stöddum í Töfrafjallinu kom Hans Castorp sú vitrun að maðurinn væri æðri bæði lífi og dauða og hann væri drottnari andstæðna sinna. Mannsins bíður að skapa þjóðfélag þar sem list- in eignast lífsgrundvöll og heilnæmt andrúmsloft. Hans er að skapa list sem lyftir þjóðfélaginu á æðra stig menningar; þar sem siðgæði, mann-- úð og list eru eitt hugtak; fagurt satt og goit fullkomin eining. Hans er að skapa heim þar sem þjóðfélagið og listin eiga eitt takmark: alhliða þroska og fullkomnun mannsins. Adrian segir á einum stað: „Trúið mér, allur lífstónn listarinn- ar mun breytast og verða bjartari og einfaldari -— það er óhjákvæmilegt, og þar í felst hamingja. Margur metn- aðarsvipur mun hverfa af raunalegri ásýnd hennar og einlægni og sakleysi mun falla henni í skaut. Framtíðin mun felast í henni, hún sjálf mun skoða sig helgaða þjóðfélagi, sem slitið hefur ai sér takmörkun mennt- unarlausrar „siðmenningar“, heíur ef til vill í sér sanna menningu. Vér eie- um erfitt með að leiða oss þetta skýrt fyrir sjónir, en þó mun það verða svc og þykja eðlilegast af öllu: ’Jst án þjáningar, sálarlega heilbrigo, vfir- lætislaus, hugbjört, einlæg, list sem talar beint til mannlegs brjósts.“ Mannhugsjón skáldsins Mikið hefur verið rætt hér að fram- an um andstæður borgara og skálds, lífs og anda, veruleika og listar sem kjarnann í verkum Thomasar Manns og hvert vandamál þessar andstæður hafi verið skáldinu. En hér er þó í rauninni aðeins um að ræða ýmsar liliðar á sama viðfangsefni sem er maðurinn sjálfur, maðurinn á jörð- inni, eðli hans og uppruni, lífsham- TIMARIT mái.s og mrnnincar 257 17
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.