Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1998, Síða 12

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1998, Síða 12
HALLDÚR KILJAN LAXNESS lega áttræða kona komst svo mjög við þegar hún mintist á landið sem verið hafði upphaf og endir allrar tilveru móður hennar í fjarlægðinni, að ég lenti í hálfgerðum vandræðum að skýra fyrir sjálfum mér hvernig hægt væri að taka svona mikið mark á sérstöku landi. Fjallið fyrir ofan og austan Spánar- forkssveit, þar sem sólin kemur upp yfir íslenska mormóna, Blessaðafjallið sem kallað er (Sierra Benida), er þó talið vegna symmetríu sinnar eitt fegursta fjall í allri Ameriku. I dag áður en ég fór að skrifa þetta var ég á akstri í þrjú þúsund metra hæð uppi í tröllagiljum (canyons) þess fjalls sem indíánar hafa heitið eftir frægri konúngsdóttur, Timpanogos; og þessi tröllagil eru sum- staðar alt uppí tíu sinnum hærri en Almannagjá, og þarna er skógurinn eintóm skjálfandi ösp, og í þessu bæði stórkostlega og unaðsfagra landslagi sem er þúsundfalt merkilegra en Island feingu íslendíngar að smala fé vild sína. Ég talaði áður um Helgu Gísladóttur sem einhverja mestu aðalskonu sem ég hefði augum litið, en áður en biskupinn fylgdarmaður minn fór með mig til Hönnu, sagði hann: „Nú ætla ég að sýna þér Hönnu, til þess þú fáir ofurlitla hugmynd um hvílík drotníng Þorgerður móðir hennar hefur verið.“ Já það er eingin lygi, ég hef vitað drotníngar, en aungvar einsog þessar af Hrífunessætt. Hún átti eftir móður sína tvær bækur, Sjöorðabókina og Ljóðmæli Þorláks skálds Þórarinssonar. Ég legg hér innaní mynd af Þorgerði, sem ekki er líkt því eins góð og aðrar sem ég sá, en það var myndin af henni ýngstri, og Hanna sagði: „Þetta er effirlætismyndin mín af móður minni. Ég bið þig að fara með hana til íslands og geyma hana þar.“ Úr Gísla Bjarnasyni, þessu mikla glæsimenni, varð semsé ekki neitt í Utah, nema hvað hann eignaðist myndarlega og vel gefna afkomendur, og eru sumir hverjir fyrirfólk á menníngarsviði hér, einsog t.d. Loftur Bjarnason hinn ýngri, og hinn eldri reyndar líka, sem af einhverjum óútskýrðum ástæðum kallaði sig Bjarnason (líklega eftir afa sínum sem var (Einar) Bjarnason. Gísli lifði í tvíkvæni, hann tók sér að annarri konu Maríu hálf- systur Halldóru konu sinnar og átti með henni son sem Magnús hét (ef ég man rétt) og dó sá á únglíngsaldri. Ég sendi þér hér að láni tvær myndir á kabínett-stærð af Gísla með báðum fjölskyldum sínum. Á fimm persóna myndinni eru þau hjón Gísli og Halldóra, en á bak við þau Loftur Bjarnason eldri og Helga sem ég talaði við í hjólastólnum á dögunum, en systirin sem á hnjánum liggur fremst á myndinni er mér ókunn að nafni. Á hinni myndinni hygg ég að konan sé María, en ekki Halldóra, þó afkomandi Gísla einhver í fjórða lið hafi skrifað aftaná myndina þessi orð: „Great grandpa Bjarnason & lst wife with child of second marriage - July 14 1959“ (svo). Dreingurinn á bakvið er m.ö.o. Magnús sonur Maríu. En sýnist þér ekki alveg örugglega vera sín hver konan á myndunum? Ég fæ með eingu móti séð að þetta sé sama konan. Munnsvipurinn er annar og augnasvipurinn. öðruvísi 10 TMM 1998:2
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.