Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1998, Side 94

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1998, Side 94
SIGÞRÚÐUR GUNNARSDÓTT1R Heimsmaður í mótun Síðasti efnisþráður minningabókanna sem rakinn verður hér er hvernig Halldór lærir á útlönd en hann skiptir miklu máli íyrir mótun persónunnar Halldórs Laxness. Hann var alinn upp í Mosfellssveit og Reykjavík, sem um þær mundir taldi um það bil fimmtán þúsund sálir, en varð einn mesti heimsborgari íslands; skrifaði bækur sínar að stórum hluta erlendis og hlaut að sumu leyti frama sinn að utan. Það gefur auga leið að við fyrstu utan- landsferð slíks manns verða þáttaskil í lífi hans, enda eru henni gerð ítarleg skil. Halldór er alger viðvaningur við upphaf ferðarinnar, kallar sig krakka á skipinu og ber mikla virðingu fyrir samferðafólki sínu sem var „virðulegt og prúðbúið fólk, dönsk og íslensk eða danskíslensk háborgarastétt; núna sést aldrei fólk í svona fallega saumuðum fötum á skipunum [. . .]“ (Úev 8). Halldór er klaufi, missir gleraugun af sér uppi á þilfari í besta veðri og uppsker vorkunn allra viðstaddra „þó allir sem áhuga höfðu á því máli hefðu getað sagt sér sjálfir að þetta var rúðugler.“ (Úev 12). Hann er sem sagt bæði klaufalegur og tilgerðarlegur innan um allt fína fólkið. Þegar til Danmerkur kemur gengur allt á afturfótunum, meðal annars reynist Halldóri erfitt að finna sér samastað. Loks fær hann húsaskjól hjá vel stæðri verkamannafjöl- skyldu í Kaupmannahöfn en þar birtist sveitamennska aðalpersónunnar beinlínis líkamlega: „Er þar skemst frá að segja að ekkert var hér á borðum sem ekki [vakti] mér hroll þegar í stað; jafnvel nautakjöt hafði ég aldrei getað látið innfyrir mínar varir [. . .] vissi ég ekki fyr til en ég var byrjaður að kúgast.“ (Úev 22-23). En Halldór lærir á Danmörku upp á eigin spýtur,sækir söfn, les bókmenntir og skoðar sig um. Svíþjóðarferðin gengur vel, þangað kemst Halldór klakklaust sjálfur og finnur sér samastað án nokkurra vand- kvæða og þótt vinur hans þurfi að bjarga honum heim er það vegna blank- heita en ekki klaufaskapar. í sjöunda kafla Úngur eg var fjallar Halldór um það að læra á útlönd, en hann ber það skemmtilega heiti ,Að borða og drekka í útlöndum". Harm- leikurinn með nautakjötið endurtók sig ekki, og það sem meira var, Halldór afvandist íslenskum matarvenjum. Hann lærir líka að borða ávexti, drekka með mat og hvað skuli panta á veitingahúsum ef maður vill vera tekinn alvarlega. Á heimleið frá Danmörku er Halldór strax orðinn heimsborgara- legri, siglir meira að segja á „eigin skipi“, þ.e. skipi Eimskipafélagsins sem hann átti hlut í, og ekki ómerkilegri maður en dr. Helgi Pjeturs, sem verður honum samferða heim, kannast við skrif Halldórs frá Laxnesi. Þegar Halldór og Jóhann Jónsson leggja upp í langferð vorið 1921 eru greinilega engir aukvisar á ferðinni heldur reyndir heimsmenn. í umfjöllun um útlönd er stigskiptingin skýr. í listum og menningu er 92 TMM 1998:2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.