Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1998, Page 147

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1998, Page 147
RITDÚMAR borgarastyrjöldinni bætir veraldarsögu- legri vídd við íslenskan alþýðuveruleika. Kommúnistar tala einsog þeir séu að senda þá á íþróttamót, á ólympíuleika frelsisins. Þetta er kirfilega undirbyggð för og gengur upp í sögunni. „Á Spáni er maður sem heitir Franco. Ég hef hugsað mér að skjóta hann. Síðan kem ég aftur og elska þig jafn heitt og áður“ segir Olli við konu sína áður en hann fer, einn af þessum meitluðu ffösum sem skapa per- sónur bókarinnar. Þegar að borgara- styrjöldinni sjálffi kemur er lýsingin ennþá í brotum og smámyndum, hvöss- um myndum, hryllingi. Þetta eru einstök púsl í stóra mynd: Þegar Ragnar kom í heimsókn til pabba og mömmu sat hann í sófanum gegnt Þingvallamálverkinu og sagði sögur. „Eitt sinn eftir rosalegan bardaga við kvikindin," sagði hann, en það kallaði hann fasistana oft, „hvíldumst við í dal. Ég undraðist ótrúlega kyrrðina. Ég fór úr bolnum og byrjaði að tína af mér lýsnar, því við vorum lúsugir einsog flækingar. Svo lít ég upp og hvað sé ég: Tvöhundruð manns sem sitja þarna í dalverpinu og tína af sér lýsnar. Á sól- björtum degi. f steikjandi hita. Ragnar lýsti þessu einsog málverki, enda horfði hann á Þingvallamálverkið á meðan hann talaði. (198) Einar Már hefur látið að því liggja í við- tölum að hann muni sækja meira í sama brunn, söguefni Fótspora á himtium sé ekkj tæmt. Og þessi bók endar dálítið í lausu lofti, það er imprað á einhverju meiru. Pabbi sögumanns eltir þá bræður og félaga einsog hvolpur niður Lauga- veginn. Hópur fólks í fjarska, ekki lengur neinir niðursetningar, fetar sig nær nú- inu og sömuleiðis sagan sjálf. Þetta er frábær bók - eða því sem næst - og verðugur sporgengill Engla alheim- sins þó gagnólík sé. Hún er í senn heil- steypt og sundurleit. Það má kannski orða það svo að tekinn sé efniviður í stóra raunsæislega skáldsögu og ort upp- úr honum ljóð - og fjári gott ljóð. Út- koman virkar þrátt fyrir að áhætta sé tek- in; ljóðið fer út um víðan völl í útúrdúr- um og birtir erkimyndir af einstaklingum ffemur en venjulega útfyllta litabók af persónum en sem lýrísk skáldsaga gengur þetta verk algerlega upp, smellur saman ef svo má segja. Þetta er óvenjulegra verk en það sýnist í fyrstu þar sem viðtals- og heimildaforminu er steypt saman við ljóðrænu og þjóðsagnakenndan andblæ. Bókin er ekki gallalaus en hún er ein af allra bestu skáldsögum síðasta árs. Hermann Stefánsson Órofa hringrás Rúnar Helgi Vignisson: Ástfóstur. Forlagið 1997.256 bls. Það er nafnlaust, kynlaust og líflaust. Það hefur orðið í 20 ár og einhverjum mán- uðum betur. Það er eitt eytt fóstur og segir þroskasögu Teklu, móðurinnar sem það eignaðist ekki. Tekla er burðarás sög- unnar og allur þráðurinn er ofinn utan um hana þótt í upphafi virðist sem fóstrið ætli að einoka sögumiðjuna. En fljótlega sleppir þessi allslausi sögumað- ur landi og siglir án landsýnar um ólgu- sjó Teklu. Umfjöllunarefni Ástfósturs er sígilt og sammannlegt: ástarþríhyrning- ur, ótímabær getnaður og togstreita þeirra sem koma að lífi bókarinnar. Sjón- arhornið er að vissu leyti óvenjulegt þar sem hinn ótímabæri getnaður er gæddur orðagnótt og sagnagleði en hefðbundið að því leyti að fósturvísirinn er alvitur og alsjáandi. Utan á kápu bókarinnar er tákngervingur hans, fagurblátt auga sem er meira en sögumaður eignast nokkurn tímann fyrir alvöru. Sagan er a.m.k. þríein, jafnvel fjór- skipt. Fyrst er fjallað á ítarlegan hátt og hvaðanæva að um samdrátt Teklu og hinna ása þríhyrningsins, Kristófers Kára og séra Kolbeins. Hún er táknmynd hins fegursta og göfugasta í heimi hér og TMM 1998:2 145
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.