Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1998, Page 156

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1998, Page 156
RITDÚMAR Kristín segir á fagran, ljóðrænan máta sögu með hrollvekjandi undirtóni. Þetta er saga af íjölskyldu sem hefur beðið sálrænt og tilfinningalegt skipbrot og af- leiðingar þess afhjúpast smám saman í rás frásagnarinnar. En þetta er ekki eina saga bókarinnar, í henni eru nefnilega margar vistarverur sem hver um sig væri efni í langa grein. Ég hef t.a.m. ekkert rætt hið athyglisverða himnaríki sem lýst er í bókinni, en sé sú himnavist sem okk- ar bíður eitthvað lík því sem þar er lýst er engu að kvíða. Þótt þessari sögu sem ég hef gert að umtalsefni (og vel má kalla „aðalsögu“ Elskan mín ég dey) sé miðlað í gegnum hefðbundinn sögumann sem segir ffá í 1. persónu, er frásögnin að öðru leyti fráleitt hefðbundin - enda hefði þá verið um meiri háttar breytingu hjá þessum höfundi að ræða. Bókin er samsett af fjölmörgum köflum og kaflabrotum og þótt sjónarhornið sé að mestu leyti hjá Högna, eins og fram er komið, er frásögn hans oft rofin. í slíkum „rofum“ fá orðið aðrar persónur - á himni og jörðu - við fáum t.a.m. texta sem kominn er úr skáldsögu skrifandi engils, við fáum „að heyra“ rödd mömmu af segulbandi sem systurnar tóku upp áður en hún dó, o.s.ffv. Hver kafli og hvert kaflabrot hef- ur fýrirsögn sem lesandinn getur ráðið í og látið víkka út merkingarsvið textans ef svo býður við að horfa. Fyrirsagnirnar eru „kapítuli útaf fýrir sig“ og það sama má segja um ótal orðatiltæki, setningar og klisjur um dauðann sem finna má í gegnum alla ffásögnina. Þannig er sífellt í frásögninni ítrekað grundvallarþema hennar: „Þeir deyja ungir sem guðirnir elska“. „Eins dauði er annars brauð“. „Tíminn græðir öll sár“. „Enginn veit hvað átt hefur fýrr en misst hefur“. Slík- um setningum er stráð um textann og einnig má benda á „grafskriftirnar“ sem bræðurnir finna upp á til að setja á leg- steina hinna ýmsu fjölskyldumeðlima sinna, dauðra og lifandi. Segja má að slíkar setningar sem tengjast dauðanum á einn eða annan hátt séu í hlutverki leiðarstefs sögunnar - spunnið út úr titl- inum: Elskan mín ég dey. Þessi skáldsaga Kristínar Ómarsdótt- ur er endalaus brunnur hugleiðinga og pælinga, svo er efniviður hennar ríkur og djúpur. Síðast en ekki síst er ástæða að ítreka hversu mikla lestrarnautn má hafa af þessum texta, því aldrei áður hefur Kristín sýnt slík tök á skáldskaparmáli sem hún gerir í þessari bók. Stílverðlaun hljóta að vera á næsta leyti. Soffía Auður Birgisdóttir Soffía leitar á Brynjúlf Brynjúlfur frá Minna-Núpi: Saga hugsunar minnar, um sjálfan mig og tilveruna. Hið ís- lenska bókmenntafélag 1997.135 bls. Brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi er eins konar huldumaður í íslenskum bók- menntum og menningarsögu, sem menn hafa að því er virðist átt nokkuð erfitt með að finna stað og jafnvel taka alvarlega. í þriðja bindi hinnar lærðu og efnisþrungnu íslensku bókmenntasögu - sem verður vitanlega ekkert síðri þótt sumir kunni ekki að taka gagnrýni - er hann aðeins nefndur tvívegis og þá stutt- lega, nánast í e.k. framhjáhlaupi; fá les- endur það eitt að vita, að hann hafi safn- að þjóðsögum. Þetta er mjög óréttlátt, því mönnum átti að vera kunnugt, að hann hafði tekið saman nokkur rit sem telja mætti til „alþýðlegrar sagnfræði", og er eitt þeirra a.m.k., Sagan afÞuríðifor- manni og Kambsránsmönnum, gagn- merkileg frásögn og þjóðlífslýsing, og auk þess mun læsilegra en ýmislegt það sem bókmenntamenn hampa ffá þess- um sama tíma. Fyrir þessa sögu átti hann vitanlega alla virðingu skilið. En það virðist hins vegar hafa farið fram hjá mörgum að Brynjúlfur hafði fleiri öngla á sinni línu. Svo er nefnilega að sjá að einungis fáeinir heimspekingar hafi haft veður af því að hann var einnig höfundur 154 TMM 1998:2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.