Skírnir - 01.01.1967, Blaðsíða 97
Skírnir
Uni Æverlinga
95
um að Urðarvatni (Hvammstjörn). En ættin var göfug, sem
sést af því, að hún mægist við Möðruvellinga og síðar við
afkomendur Ingólfs Arnarsonar. Ef til vill hefur hún tengzt
áuðugri ættum í Vesturhópi, afkomendum Sóta á Breiðaból-
stað eða Hrings í Vesturhópshólum, sem var maður „ætt-
stór“ og átti eitt hlunnindamesta landnám í öllu Húnavatns-
þingi.
Allt eru þetta getgátur, en það sem gæti stutt það, að Már
Húnröðarson hafi borið nafn Más á Másstöðum, er auk þessa
vinfengi Más við Gris á Geitaskarði, þingmann og nágranna
Húnröðar, og að í Landnámu er Þorgeir ofláti talinn hafa
vegið Blót-Má at Móbergi, en það viðurnefni hafa menn tengt
Mávi Jörundarsyni.
Már Jörundarson hefur orðið gamall maður, því að hann
hefur hlotið að vera kominn um eða yfir sjötugt, er Kolfinnu-
mál hin fyrri gerðust. Bak við athugasemdina um Þorgeir of-
láta hlýtur að leynast einhver saga, sem Landnámuhöfund-
inum hefur verið kunn (Húnröðarsaga?), og sé Blót-Már at
Móbergi sami maður og Már Jörundarson, getur hann hafa
verið kominn í hornið til frændkonu sinnar nákominnar, eins
og Egill Skallagrímsson. Vigdís hét dótturdóttir Húnröðar og
Védís (Vigdís?) dóttir Más Húnröðarsonar. Vigdís hét og
jarlsdóttirin föðursystir Más Jörundarsonar, ættmóðir Vatns-
dælagoðanna. Það skyldi þó ekki vera, að kona IJúnröðar
hafi borið þetta nafn?
Við þetta má bæta þeirri frásögn Vatnsdælu, að Þorsteinn
Ingimundarson hafi gerzt höfðingi yfir Vatnsdælum og Vest-
urhópi. Hér getur verið um vatnsdælskt steigurlæti að ræða,
en sé einhver fótur fyrir þessu, hendir hann til tengda við
menn í Vesturhópi, sem varla hefðu að öðrum kosti viður-
kennt Vatnsdælagoðann sem höfðingja sinn. Frá þeim geta
svo nöfnin Már og Vigdis hafa komizt inn í ætt Æverlinga.
Þá átti Bergþór Másson, bróðir Hafliða, dóttur að nafni Hall-
dís, gifta Finni Hallssyni lögsögumanni 1139—1145. Enn eitt
af dísanöfnum Vatnsdæla!
Hvað sem þessum bollaleggingum liður, verður að telja
það ekki ósennilegt, að kvonfang Húnröðar hafi verið liður í